Kvöldskemmtun eldri borgara í Borgarnesi
Þriðjudagskvöldið 11. október var haldið árleg kvöldskemmtun fyrir eldri borgara í Borgarnesi. Það voru lionsklúbbarnir Agla í Borgarnesi og Lionsklúbbur Borgarnes sem höfðu veg og vanda að þessari kvöldskemmtun. Á boðstólunum voru ýmis skemmtiariði eins rímnakveðskapur, dansatriði, söng og tónlistaratriði. Á milli atriða var boðið var upp á kaffihlaðborð með fjölbreyttum kræsingum. Ekki var annað að sjá og heyra en allir hafi átt skemmtilega og góða kvöldstund.
Myndir frá kvöldskemmtun eldri borgara í Borgarnesi
Saga klúbbsins
Á fundi 2. apríl 1957 sem haldinn var að Hótel Borgarnes var Lionsklúbbur Borgarness stofnaður. Móðurklúbbur var Lionsklúbbur Akraness þá ársgamall. Stofnfélagar voru 15. Sigurður Gíslason var fremstur í flokki þeirra manna sem höfðu sýnt því áhuga að stofna klúbbinn og varð hann fyrsti formaður hans. Ásamt Sigurði voru í fyrstu stjórn þeir Hjörtur Magnússon, ritari, Þorkell Magnússon, gjaldkeri og Þórður Magnússon, temjari. Auk stofnfélaga mættu á fundinn fjórir aðkomumenn þeir Magnús Kjaran frv. umdæmisstjóri, Árni Kristjánsson, vara umdæmisstjóri, Albert Guðmundsson umdæmisritari og Jón Ben Ásmundsson ritari Lionsklúbbs Akraness sem var reyndar fæddur og uppalinn Borgnesingur. Starf klúbbsins hefur eins og Jón Eyjólfur Einarsson, sagði í ræðu sem hann flutti á 25. ára afmæli klúbbsins verið tvíþætt, annars vegar starf sem er til góðs fyrir samborgara okkar og hins vegar innra starf klúbbsins, sem miðar að því að gera félagana ánægða og áhugasama klúbbfélaga og samhenta. Síðari þátturinn hefur aðallega verið ræktur með því að hafa klúbbfundi áhugaverða og skemmtilega og eins með því að stofna til skemmtikvölda, skemmtiferða og fleira slíkt. Klúbburinn er sá ellefti í röð Lionsklúbba á Íslandi.
Þann 21. september 1957 var síðan haldinn Stofnskrárfundur en það var áttundi fundur klúbbsins. Þetta var nokkurs konar skírnarathöfn þar sem félagarnir voru formlega teknir í alþjóðasamtök Lionsmanna. Á fundinn mætti þáverandi umdæmisstjóri Einvarður Hallvarðsson og afhenti hann Sigurði Gíslasyni stofnskrána. Stofnskrárfundinn sóttu, auk umdæmisstjóra, um 20 gestir frá umdæmisstjórn og nálægum klúbbum, þar á meðal Guðbrandur Magnússon fyrrverandi umdæmisstjóri og Þór Guðjónsson, umdæmisritari.
