Lionsklúbbur Ísafjarðar styrkir leikskólana
![]() |
|
|
Nú er skötusala Lionsklúbbsins komin á fulla ferð fyrir Þorláksmessu. Mikil eftirspurn er eftir þessari gæðaframleiðslu „Ljónanna“, enda komin áralöng reynsla á framleiðsluna. Verkun á skötu og harðfiski og sala afurðanna er helsta fjáröflunarleið klúbbsins á Ísafirði.
Frá Lkl. Ísafjarðar
Garðar Einarsson útnefndur ævifélagi Lionsklúbbs Ísafjarðar, ásamt Kára Þór Jóhannssyni formanni og Erni Ingasyni gjaldkera klúbbsins.
Garðari Einarssyni fyrrum bankastarfsmanni á Ísafirði var í vetur veitt viðurkenning fyrir 50 ára starf með Lionsklúbbi Ísafjarðar. Af því tilefni var Garðar gerður að ævifélaga í klúbbnum, fyrstur allra félaga.
Garðar Einarsson gekk til liðs við Lionsklúbb Ísafjarðar 24. janúar 1961 og hefur starfað ötullega sem Lionsmaður allar götur síðan. Þess má geta að Garðar hefur ekki misst úr fund í klúbbnum, nema í örfáum undantekningartilfellum, sem hann hefur yfirleitt unnið upp með því að sækja fundi í nágrannaklúbbum í staðinn.
Nú á 50 ára starfsafmæli sínu fyrir Lions fékk Garðar sérstaka viðurkenningu frá alþjóðaforseta hreyfingarinnar, þar sem honum voru þökkuð störf í þágu klúbbsins, hreyfingarinnar og samfélagsins.
Frá Lkl. Ísafjarðar

Harðfisksala á kosningadaginn 2009. Guðjón Arnar fyrrum alþingismaður smakkar á framleiðslunni.
Lionsklúbbur Ísafjarðar var stofnaður 25. júní 1957. Stofnendur voru 29 talsins. Helsti hvatamaður að stofnun klúbbsins var Matthías Bjarnason bóksali og framkvæmdastjóri Djúpbátsins, síðar alþingismaður og ráðherra.
Á 50 ára afmæli klúbbsins árið 2007 gáfum við út veglegt afmælisrit með fjölda mynda og greina úr starfi klúbbsins. Sama vor tóku klúbbfélagar sig til og fóru í utanlandsreisu til Parísar ásamt mökum.
Árið 2009 náði klúbburinn því að allir meðlimir hans höfðu hlotið Melvin Jones viðurkenningu og fjölmenntum við á Melvin Jones hátíð í Kópavogi þann vetur í tilefni áfangans.
Nú eru 18 félagar í klúbbnum, sem heldur reglulega fundi yfir veturinn annan og fjórða hvern þriðjudag á Hótel Ísafirði kl. 19.30.

Lionsklúbburinn færir leikskólum bæjarins peningagjöf fyrir hver jól.
Helsta fjáröflun klúbbsins síðustu ár hefur verið sala á kæstri skötu og hertum harðfiski og á klúbburinn marga trygga viðskiptavini sem kunna að meta hágæða vestfirska framleiðslu.

