Hjálparsjóður Lions á Íslandi
Hjálparsjóður Lions er til að veita neyðaraðstoð ef skjótt á að bregðast við í nafni Lionshreyfingarinnar á Íslandi vegna náttúruhamfara t.d. og styrkir innlend og alþjóðleg verkefni.
Minningarkort Lions er aðalfjáröflunarleið sjóðsins. Þau eru til afhendingar á Lionskrifstofunni og eiga að vera til í öllum klúbbum Lionshreyfinngarinnar.
Styrkumsóknir berist til Guðmundar Finnbogasonar, formanns sjóðstjórnar, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. s:8613894.
Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.
Reglugerð Íslenska Hjálparsjóðs
Lionsfjölumdæmis 109
1. Sjóðurinn heitir Hjálparsjóður Lionsfjölumdæmis 109. Sjóðurinn skal ávaxtaður með bestu kjörum eins og þau eru á hverjum tíma. Stofnfé sjóðsins er kr. 2.500.000,-.
2. Markmið sjóðsins er að veita neyðaraðstoð og styrkja innlend og alþjóðleg verkefni.
3. Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur einstaklingum. Tveir kjörnir á Fjölumdæmisþingi til þriggja ára í senn. Skulu þeir vera formaður og ritari sjóðsins. Skal kjörtímabil þeirra skarast um tvö ár. Sá þriðji er fráfarandi fjölumdæmisstjóri og situr hann í eitt ár. Formaður stjórnar skal sitja í Fjölumdæmisráði fjölumdæmis 109.
4. Fjölumdæmisstjórn, fjölumdæmisráð, einstakir klúbbar og svæði geta sent tillögur eða beiðnir til sjóðsins um styrkveitingar.
5. Stjórn sjóðsins skal fjalla um allar tillögur og beiðnir sem sjóðnum berast og afgreiða þær án óþarfa tafa. Einfaldur meirihluti stjórnar ræður hvort af styrkveitingu verður.
6. Við úthlutun úr sjóðnum má ekki ganga á stofnfé nema um sé að ræða neyðaraðstoð.
7. Stjórn sjóðsins skal leitast við að bæta sjóðnum upp útgjöld vegna styrkja sem fyrst. Fjár til sjóðsins má afla með frjálsum framlögum frá Lions- eða Lionessuklúbbum, með samningsbundnum framlögum frá Lions- eða Lionessuklúbbum, með sölu minningarkorta Lions, eða með öðrum tiltækum ráðum sem tengja má líknarverkefnum Lionshreyfingarinnar.
8. Reglum þessum verður aðeins breytt eða sjóðurinn lagður niður með samþykki einfalds meirihluta á Fjölumdæmisþingi.
