Myndir úr náttúrunni. Skilafrestur framlengdur til 1. febrúar
Lions-ljósmyndarar
Lions á Íslandi á marga fjölhæfa einstaklinga í sínum röðum, þar á meðal afburða ljósmyndara. Lionsfélagar eru hvattir til að sýna hvað í þeim býr og taka þátt í alþjóðlegu ljósmyndasamkeppni Lions, sem við munum nú í fjórða sinn taka þátt í. Það er fullt af ljósmyndatækifærum framundan, síðustu haustlaufin, fyrstu snjókornin eða frostrósirnar, svo eiga menn ýmislegt frá sumrinu. Það er best að drífa í þessu fljótlega, svo það dragist ekki og gleymist í jólaamstrinu. Klúbbar þurfa að gera upp hug sinn fljótlega eftir jól, hvaða mynd þeir senda, en fresturinn rennur út í lok janúar.

Íslenska vinningsmyndin frá í fyrra prýðir aprílmánuð í Lions-Almanakinu, en það er ,,Seyðisfjörður” eftir Ómar Bogason í Lkl. Seyðisfjarðar.
Alþjóðleg ljósmyndasamkeppni Lions
Lionsfélagar geta tekið þátt í alþjóðlegu Lions ljósmyndasamkeppninni „Lions Environmental Photo Contest“. Keppnismyndin þarf að vera frummynd, óbreytt, svart-hvít eða litmynd úr náttúrunni - úr umhverfi klúbbsins. Árið 1972 samþykkti alþjóðastjórn Lions stefnuyfirlýsingu í umhverfismálum. Markmiðið með keppninni er að sýna fegurð náttúrunnar og kynna umhverfisverkefni Lions.
Dómnefnd metur myndirnar eftir frumleika, listrænum eiginleikum og túlkun á myndefni.
Lionsfélagar geta sent ljósmyndir úr sínu umhverfi (án fólks) í einum af eftirfarandi flokkum:
- Dýralíf
- Landslag úr borg eða náttúru
- Plöntulíf
- Veðrafyrirbrigði
- Verndun framtíðar með trjám. ( Ljósmyndir af trjám og hlutverki þeirra í umhverfi okkar )
Lionsklúbbur velur og sendir vinningsmynd klúbbsins á Lionsskrifstofuna Sóltúni 20, 105 Reykjavík, í umslagi merkt: Ljósmyndasamkeppni Lions. Í lokuðu umslagi með myndinni er skráð nafn Lionsklúbbs og ljósmyndara ásamt síma og netfangi. Myndin á að vera útprentuð: 8”x10” eða 20,3 x 25,4 cm. Frestur til 1. febrúar 2012.
Íslenskum sigurvegurum (vinningsmyndum) verða veittar viðurkenningar á þinginu í vor í öllum fimm flokkunum. Einnig verða þær birtar í Lionsblaðinu, á vefsíðu Lions og sýndar á þingstað. Ein mynd verður valin og send út í alþjóðlegu ljósmyndasamkeppnina.
Alþjóðasamband Lionsklúbba „LCI“ sýnir myndirnar á alþjóðaþinginu í Busan í júní 2012. Skráðir þátttakendur á þinginu geta greitt atkvæði um ,„bestu myndina“. Sigurvegarar í hverjum flokki fá viðurkenningu. Sex myndir verða birtar á vefsíðu LCI, þ.e. vinningsmyndir úr flokkunum fimm, ásamt ,„bestu myndinni“ að mati þinggesta. Úrval mynda mun birtast í Lions-Almanaki, sem gefið er út árlega til styrktar LCIF.
Alþjóðlega vinningamyndin prýðir svo forsíðuna á Lions-Almanakinu 2013.
Upplýsingar
Klúbbar eða Lionsfélagar sem hafa áhuga eða vilja fá nánari upplýsingar, geta haft samband Kristínu Þorfinnsdóttir, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Smáa letrið: Lionsljósmyndarar bera sjálfir kostnað við myndtökur og framköllun. Vinningsmyndir verða eign LCI – Alþjóðasambands Lionsklúbba. LCI áskilur sér rétt til að hafna keppnismyndum sem uppfylla ekki keppnisreglur, þykja óviðeigandi eða ósæmilegar
Kristín Þorfinnsdóttir
Lkl. Emblu
Gsm 863-1420
