Lions á Íslandi 60 ára AFMÆLISÁR
Framundan er afmælisár Lions, en við fögnum nú 60 ára afmæli Lions á Íslandi.
Afmælisárið hófst formlega á þinginu í Stykkishólmi í maí 2011, en því lýkur síðan á þinginu í Reykjavík í apríl 2012. Á afmælisárinu verður ýmislegt gert til að minna á þessi tímamót og mörg verkefni okkar kynnt almenningi.
Markmiðið er að hafa það skemmtilegt og vera sýnileg.
Fyrsti stóri atburðurinn á afmælisárinu verður afhending á söfnunarfé síðustu Rauðrar fjarðar. Athöfnin fer fram 28. júní klukkan 16:00 í heimili Blindrafélagsins, en safnað vara fyrir talgervli fyrir blinda og sjónskerta.
Næsti atburður er heimsókn formanns LCIF, Alþjóða hjálparsjóðsins, Sid L Scruggs (fyrrv. alþjóðaforseta) og konu hans Judy. Þau koma fimmtudaginn 11. ágúst og fara aftur sunnudaginn 14. ágúst. Stofnun fyrsta Lionsklúbbs á Íslandi og þar með Lionshreyufingarinnar á Íslandi, verður fagnað laugardaginn 13. ágúst. Athöfn verður við leiði stofnanda Lions á Íslandi, Magnúsar Kjarans, í gamla kirkjugarðinu við Suðurgötu. Afmælishátíð verður síðan í Lionsheimilinu á laugardagskvöldinu og er hún öllum opin. Vonandi sjá sem flestir Lionsfélagar sér fært að taka þátt í afmælishátíðinni. Nánar auglýst síðar.
