Medic Alert

Lionshreyfingin á Íslandi stofnaði MedicAlert á Íslandi, alþjóðlegt neyðarþjónustukerfi, fyrir rúmum aldarfjórðungi. Lionsklúbbarnir hafa jafnan stutt starfsemina með styrkjum og þannig haldið henni gangandi.
MedicAlert er alþjóðlegt neyðarþjónustukerfi sem er rekið án ágóða og víða í sjálfboðavinnu.
Kerfið er þríþætt:- Áletrað merki til að bera um úlnlið, háls eða annars staðar á sér. Á merkinu eru upplýsingar um sjúkdóm, ofnæmi eða annað sem þarf að vita varðandi skyndihjálp. Auk þess er neyðarsímanúmer og auðkenninúmer eiganda.
- Plastspjald í kreditkortastærð með frekari upplýsingum, m.a. nöfnum og símanúmerum aðstandenda og lækna.
- Enn ýtarlegri upplýsingar, sem eru varðveittar í tölvu á Slysa- og bráðadeild Landspítalans, þar sem svarað er gjaldfrjálst í neyðarsíma MedicAlert allan sólarhringinn.
Lestrarátak – Barátta gegn ólæsi Alþjóðlegt Lionsverkefni
Lestrarátak
Þegar alþjóðarforsetar Lions hefja starfsárið sitt, kynna þeir gjarnan nýtt verkefni, sem er aðaláhersla þeirra og okkar það árið. Wayne Madden alþjóðaforseti í ár ákvað berjast gegn ólæsi og hvetja til lestrar. Hugtakið læsi, á ensku literacy, er notað um lágmarksfærni til að lesa texta og skrifa á tilteknu tungumáli. Það tekur því bæði til lestrar og ritunar. Þetta verkefni er einfalt og býður upp á marga möguleika, auðvelt að laga að aðstæðum. T.d. getur Lionsfélagi aðstoðað einstaklinga við lestur; Lionsklúbbur getur sinnt sínu byggðarlagi og klúbbar geta unnið saman á landsvísu við stærri verkefni. Við getum einnig stutt lestrarverkefni í þróunarríkjum og breytt og bætt líf margra kynslóða.
Lestrarverkefni í 10 ár
Verkefnið hefur fengið mjög góðar viðtökur alls staðar í heiminum. Á Evrópuþingi Lions sem var í Belgíu í september s.l., var verkefni kynnt og rætt í tveimur vinnuhópum. Lýstu menn yfir ánægju sinni með verkefnið og samþykkti Evrópuþingið að skora á alþjóðastjórn að sinna þessu verkefni næstu 10 árin. Á fundi alþjóðastjórnar í byrjun nóvember, var fjallað um þessa tillögu Evrópu og var hún einróma samþykkt. Langtímaverkefni skila betri árangri en skammtíma-verkefni og geta klúbbar núþegar byrjað að skipuleggja lestrarverkefni til lengri tíma.
Draumaverkefnið
Það hlýtur að vera draumaverkefni bókaþjóðarinnar að vinna að auknum bóklestri. Þetta er verkefni sem allir íslenskir klúbbar geta tekið þátt í, án mikils tilkostnaðar eða erfiðleika; bara skemmtilegt og gefandi. Lestrarátakið er til 10 ára og ekki vitlaust að byggja upp samstarf við skóla eða aðra í sveitarfélaginu, eða við samtök sem vinna að málefninu og að huga vel að þörfum blindra og sjónskertra. Tími eða peningar? Lions getur gert margt til að auka lestur, bæði í sjálfboðastarfi og með fjárstuðningi eða gjöfum. Það er mjög hvetjandi að veita börnum verðlaun fyrir bóklestur eða ritgerðasmíð. Lionsklúbbbar geta staðið að slíkum viðburðum með skólum eða kennurum. Lionsfélagar geta skipst á að lesa fyrir börn t.d. á bókasöfnum, það glæðir lestraráhuga. Svo lesum við auðvitað fyrir börnin okkar og barnabörn! Það er hægt að auka bóka- eða tölvukost í skólum og bókasöfnum. Rétt er að hafa samband við skóla og spyrja hvernig Lions gæti lagt þeim lið. Það má með sama hætti sinna blindum og öldruðum. Svo má nefna lestrarörðugleika vegna dislexíu eða ýmissa vandamála eða fötlunar. Það má styðja einstaklinga eða fjölskyldur sem glíma við dýr meðferðarúrræði og vinna með sérfræðingum á þessu sviðum.
Blindir lesa
Við megum ekki gleyma okkar aðalverkefni, að vinna með blindum og sjónskertum. Að aukna tækifæri og möguleika á lestri, leiðir til aukins sjálfstæðis og bætts lífs fjölmargra blindra og sjónskertra einstaklinga. Það er aðeins flóknara og kostarsamara að gefa út bækur á punktaletri. Það er mikil þróun á þeim vettvangi og við getum svo sannarlega lagt þessum málaflokki lið. Lionsklúbbar gætu , m.a. stutt við bókaútgáfu og hljóðbókagerð. Þessi verkefni nýtast fólki á öllu landinu og eru glæsileg viðfansefni á landsvísu; góð hugmynd fyrir stærri klúbba og samstarfsverefni t.d. svæða.
Punktaletur
Blindrafélagið stendur núna fyrir punktaletursverkefni sem gætu fallið mjög vel að þessu. En það er verkefni sem felur í sér að gera punktaletursnotendum, sem leggja stund á tónlist, að lesa nótur á punktaletri. Einnig styður Blindrafélagið annað verkefni til að auka tölvulæsi fullorðins fólks sem er blint eða sjónskert, með þýðingu á tölvuforritinu „Guide“. Kristinn Halldór Einarsson formaður Blindrafélagsins ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) getur gefið nánari upplýsingar.
Kennslubók í þrívídd
Nýtt mjög áhugavert verkefni er núna í farvatninu, sem Kristinn nefndi sérstaklega, en það er bókin „Skoðum líkamann“ Kennslubók í þrívídd fyrir blind og sjónskert börn á aldrinum 6 til 8 ára, eftir Höllu Sigríði Margrétardóttur. Bókin mun vera fyrsta þrívíða bókin fyrir þennan hóp og er hún kynnt í nóvemberblaði Lions. Þetta er mjög glæsilegt og metnaðarfullt verkefni sem Lionsklúbbar gætu styrkt með sóma. Þeir sem vilja kynna sér þetta nánar geta haft samband við Höllu Siggu á netfangi:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Barátta gegn ólæsi Talið er að um einn milljarður manna séu ólæsir í heiminum í dag og að einn af hverjum fjórum fullorðnum geti ekki lesið. Í Bandaríkjunum eru einn af hverjum sjö ólæsir, geta varla lesið auglýsingaskilti eða uppskrift. Í þróunarríkjunum er vandinn mun stærri. Með aukinni þekkingu getur fólk sigrast á fátækt, sjúkdómum og öðrum félagslegum meinum. Með lestrarkunnáttu geta einstaklingar öðlast sjálfstraust sem þarf til að móta eigin framtíð. Við þurfum að ná til fleiri barna í hættu. Við Lions gegnum mikilvægu hlutverki í baráttu við ólæsi og menntunarskorti og við styðjum þetta verkefni.
Viðurkenningar
Hver Lionsklúbbur sem sinnir verkefni í „Lestrarátaki Lions“ (Reading Action Program) og skráir það á rafræna verkefnaskýrslu Lions/LCI, fær sent sérhannað merki átaksins (merki til að setja á klúbbfánann). Hver umdæmisstjóri, þar sem að minnsta kosti helmingur klúbba umdæmisins tekur þátt í Lestrarátaki Lions (skráir það), fær sérstaka viðurkenningu til staðfestingar á árangri umdæmisins.
Unglingaskipti
Unglingaskipti Lions er eitt stærsta alþjóðlega verkefni Lions. Ungu fólki er gefinn kostur á að kynnast daglegu lífi, starfi og menningu annarra þjóða með því að búa hjá fjölskyldum Lionsmanna í öðrum löndum, ásamt því að dvelja í unglingabúðum. Árlega fara 15-20 íslenskir unglingar til nokkurra vikna dvalar erlendis og álíka margir erlendir unglingar koma til Íslands.
Lions Quest
Lions-Quest verkefnið hefur verið samstarfsverkefni Lionshreyfingarinnar á Íslandi og Námsgagnastofnunar til margra ára. Í verkefninu felst útgáfa á námsefninu Að ná tökum á tilverunni og námskeiðahald fyrir kennara og aðra sem ætla að nýta efnið í vinnu með ungu fólki. Í sátt og samlyndi er annað Lions-Quest námsefni sem einnig tilheyrir verkefninu.
Varnir gegn sykursýki
Sykursýki
Baráttumál Lionshreyfingarinnar í áratugi.
Sá sjúkdómur sem er í hvað mestri sókn á Vesturlöndum þessi árin er áunnin sykursýki af gerð tvö. Aukin þyngd manna og auknar kyrrsetur bjóða heim þessum vágesti. Talið er að hunduð manna á Íslandi gangi með sykursýki án þess að vita það. Þessi sjúkdómur leggur fólk að velli hljóðlega og er án einkenna lengi framan af en getur valdið blindu og eyðilagt blóðrásina í fótum ef hann greinist ekki fljótt. Greiningin er einföld og smá blóðdropi getur bent til að að ástæða sé til að leita læknis.
Baráttan fyrir því að fræða fólk um sjúkdóminn og finna þá sem ganga með dulda sykursýki hefur verið mikið baráttumál Lionshreyfingarinnar í tæp 60 ár.
Til hamingju íslenskir Lions-ljósmyndarar
Lkl. Búðardals og Björn A. Einarsson

Smölun í Dölum Ljósmyndari: Björn A. Einarsson, Lkl. Búðardals
Íslenska myndin komstfjórða árið í röð í Lions-almanakið,en Alþjóðasamband Lions gefur almanakiðút til styrktar LCIF – Alþjóðahjálparsjóði Lions.Í Lions-almanakinu eru birtar bestu myndirnar í alþjóðlegu ljósmyndakeppni Lions “Myndir úr náttúrunni”. Dómnefnd velur myndirnar í almanakið hverju sinni og fer almanakið í sölu á alþjóðaþingi Lions í júní-júlí. Á þinginu gefst þinggestum kostur á að kjósa bestu myndirnar í hverjum flokki. Allar vinningsmyndirnareru frá Bandaríkjunum að þessu sinni.
Ljósmyndin sem við sendum út í alþjóðlegu samkeppnina, var sigurvegarií íslensku keppninni 2011-2012. Það var framlag Lkl. Búðardals „Smölun í Dölum“, en ljósmyndari er Björn A. Einarsson.Við óskum Birni og Búðdælingum hjartanlega til hamingjumeð árangurinn og þökkum þeim kærlega fyrir framlagið til LCIF.
Myndin prýðir marsmánuð í almanakinu 2013, en það mun verða til sölu á Lionsskrifstofunni frá og með september 2012.
LCIF - Herferð Lions gegn mislingum
Dag hvern deyja 450 börn, sem hefði verið hægt að bjarga með einni stungu = einni bólusetningu, sem kostar aðeins eitt hundrað krónur.
LCIF hefur skuldbundið sig til að safna 10 milljónum dollara í ár, til mislinga- bólusetninga, vegna markmiðsins að bólusetja 157 milljón barna árið 2012.
EF þú ert ekki búin/n að borga þinn árlega stuðning til LCIF, þá gætir þú /þið merkt framlagið núna MISLINGA-ÁTAKINU, eða að minnsta kosti hluta af því.
Ef þú vilt sérstaklega hjálpa börnum, er þetta rétta tækifærið!
EINFALT MÁL bara að hafa samband við Sigríðar Kvaran á Lionsskrifstofunni Sóltúni 20, sími 561-3122, netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sjá nánar >>>>>
Orkester norden
Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Upphafið á sér rætur í Svíþjóð á árunum 1986 - 1987, þegar þáverandi alþjóðaforseti fól sænskum Lionsfélaga, Lennart Fridén, að finna samnorrænt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 15 -25 ára. Lennart, sem var skólastjóri við tónlistarskóla, datt strax í hug að sameina ungt fólk í tónlist með því að koma á laggirnar sinfóníuhljómsveit í hæsta gæðaflokki. Hann fékk til samstarfs Samband norrænu félaganna, Musik og Ungdom og Norræna menningarsjóðinn ásamt Lionshreyfingunni á Norðurlöndum.
Það var svo sumarið 1993 að fyrsta námskeiðið var haldið í Arvika í Svíþjóð en því lauk með tónleikaferð um Svíþjóð. Í hljómsveitinni voru 67 hljóðfæraleikarar, þar af 7 frá Íslandi. Fyrsta verkið sem hljómsveitin flutti var eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld.
Í mars árið 1994 var hljómsveitinni boðið á þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi, þar sem hún lék við afhendingu bókmennta- og tónlistarverðlauna ráðsins.
Myndir úr náttúrunni. Skilafrestur framlengdur til 1. febrúar
Lions-ljósmyndarar
Lions á Íslandi á marga fjölhæfa einstaklinga í sínum röðum, þar á meðal afburða ljósmyndara. Lionsfélagar eru hvattir til að sýna hvað í þeim býr og taka þátt í alþjóðlegu ljósmyndasamkeppni Lions, sem við munum nú í fjórða sinn taka þátt í. Það er fullt af ljósmyndatækifærum framundan, síðustu haustlaufin, fyrstu snjókornin eða frostrósirnar, svo eiga menn ýmislegt frá sumrinu. Það er best að drífa í þessu fljótlega, svo það dragist ekki og gleymist í jólaamstrinu. Klúbbar þurfa að gera upp hug sinn fljótlega eftir jól, hvaða mynd þeir senda, en fresturinn rennur út í lok janúar.
Alþjóðleg ritgerðar-samkeppni
Skilafrestur er framlengdur til 22. nóvember
Alþjóðleg ritgerðarsamkeppni Lions um frið, er ætlað ungmennum sem eru blind eða sjónskert (skv. viðmiðun sem gildir í heimalandi þeirra) og eru á aldrinum 11-13 ára, miðað við 15. nóvember 2011. Markmiðið með keppninni er að hvetja börn til að hugsa um frið, sjá heiminn í stærra samhengi og að leggja sitt af mörkum í friðarumræðunni.
Alþjóðasamband Lionsklúbba hefur staðið fyrir samkeppni um gerð friðarveggspjalds, meðal 11–13 ára ungmenna árlega í meira en tvo áratugi. Ungmennum hefur verið gefið tækifæri til að tjá sig í myndlist og túlka sínar hugmyndir í litum, línum og formum um frið, friðarboðskap og framtíðarsýn þeirra. Um fjórar milljónir ungmenna í yfir 100 löndum hafa tekið þátt í þessari samkeppni Lions. Nú er í fyrsta sinn haldin ritgerðarsamkeppni um frið, sem sérstaklega er ætluð blindum og sjónskertum ungmennum.
Það er Alþjóðasamband Lionsklúbba sem stendur fyrir þessar samkeppni um allan heim, en það er í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar – UNESCO og er mikilvægur þáttur í friðaruppeldi barna og unglinga. Lionshreyfingin starfar í 206 þjóðlöndum og eru Íslendingar einn hlekkur í þeirri stóru keðju með um 2.400 Lionsfélaga starfandi í 90 klúbbum um allt land.
Október mánuður sjónverndar

Október er mánuður sjónverndar en laugardagurinn 8. okt. er „Alþjóðlegur sjónverndardagur Lions“ og laugardagurinn 15. okt. er: „Dagur hvíta stafsins“. Í október er kjörið að kynna sjónverndarverkefni Lions, á Íslandi og á heimsvísu, einkum í þróunarlöndunum. Íslenskir Lionsfélagar voru ótrúlega rausnarlegir í átaksverkefninu „Campaign Sigt First II“. Lionsfélagar geta verið stoltir af þessari miklu þróunaraðstoð og að gefa milljónum manna sjónina aftur. Upplagt er að senda frétt í bæjarblöðin og kynna Lionsklúbba svæðisins í leiðinni. Þeir sem vilja fá fund eða fyrirlestur fyrir Lionsfélaga og almenning í sinni heimabyggð, um sjónvernd, augnsjúkdóma og blindu, geta leitað til sjónverndarfulltrúa umdæmanna. Fyrirlesarar finnast líka á næstu heilbrigðisstofnunum og í skólum.
Sjá myndband um sjónvernd http://www.youtube.com/watch?v=zsY1tNYYKpk
„Börnin þekkja frið“
Friðarveggspjaldasamkeppni meðal ungs fólks
Alþjóðlega Lionshreyfingin hefur staðið fyrir friðarveggspjaldasamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 11 – 13 ára í 20 ár. Lionshreyfingin starfar í 206 þjóðlöndum og erum við Íslendingar einn hlekkur í þeirri keðju með 2.400 Lions félaga starfandi í 89 klúbbum.
Við leitum til þín í þeirri von að þinn skóli vilji vera þátttakandi í þessu skemmtilega verkefni. Hver skóli sem tekur þátt fær viðurkenningarskjal frá Lionshreyfingunni á Íslandi.
Sá nemandi sem vinnur samkeppnina á Íslandi fær verðlaun og viðurkenningarskjal.
Alþjóðlega Lionshreyfingin veitir vinningshafa í fyrsta sæti í alþjóðakeppninni $2.500 og ferð ásamt tveimur fjölskyldumeðlimum og formanni stuðningsklúbbs á sérstaka vinningshátíð sem haldin verður í New York (gæti breyst). Þátttakendur í 2. – 23. sæti fá $500.
Þema árið 2011 er „Children know Peace“ „Börnin þekkja frið“
Hér má sjá reglur keppninnar >>>>
Náttúru hamfarir Japan

Ágætu Lionsfélagar
Lionshreyfingin á Íslandi vill leggja lið vegna náttúruhamfaranna í Japan og greiða til LCIF. Lionsfélagar í Japan hafa verið rausnarlegir og veitt langstærstu framlögin til LCIF og núna þurfa þeir okkar aðstoð. Við á Íslandi höfum fengið rausnarlega styrki frá LCIF, þegar við höfum þurft á því að halda.
Mars er mánuður samstarfs við Sameinuðu þjóðirnar
Dagur Lions hjá Sameinuðu þjóðunum” er haldinn í mars.
Lions er sýndur mikill heiður og streyma Lionsfélagar til New York til að taka þátt í deginum, sem haldinn hefur verið 31 sinni. Dagskráin er helguð Lions allan daginn og er sérstaklega hátíðlegur.
Alþjóðsamband Lionsklúbba tók virkan þátt við stofnun Sameinuðu þjóðanna í okt. 1945 og hefur Lions átt fulltrúa hjá SÞ frá 1947.
Mörg Lionslönd halda hátíðlegan SÞ-dag á sínum heimaslóðum, til að minna á samvinnu Lions og SÞ á mörgum sviðum. Lions á samstarf við margar deildir SÞ, m.a. UNESCO. UNICEF, FAO, ECOSOC og WHO.
Rauð fjöður Landssöfnun Lions var haldin 8. – 10. apríl 2011.

Íslendingar, tóku þátt í landssöfnun Lions á Íslandi 8.-10. apríl síðast liðin fyrir Rauða fjöður. Markmiðið var að safna fyrir talgervli í samvinnu við Blindrafélagið, www.blind.is.
Staðfest er að safnast hafa tæpar 20 milljónir kr.
Verndari söfnunarinnar var frú Vigdís Finnbogadóttir.
Alþjóða hjálparsjóður Lions - LCIF

Alþjóðlegi hjálparsjóður Lions – LCIF veitir styrki m.a. vegna náttúruhamfara. Íslendingar hafa fengið styrk úr sjóðnum vegna eldgossins í Vestmannaeyjum, snjóflóðanna í Súðavík og Flateyri og jarðskjálfta á Suðurlandi.
