Lionsklúbbur Þorlákshafnar
Lionsklúbbur Þorlákshafnar var stofnaður 27. maí 1975.
Aðalsmerki klúbbins eru jarð- og trjárækt við Skýjaborgir sem er óþrjótandi verkefni og aukast landgæði með hverju ári. Á síðast liðnu vori var plantað út nokkur hundruð trjáplöntum og borið á allt svæðið. Félagar í Lionsklúbbi Þorlákshafnar voru frumkvöðlar í notkun lúpínu við uppgræðslu á söndunum við Þorlákshöfn.
Önnur samfélagsverkefni sem unnið er að utan líknarmála eru vegahreinsun á vorin, jólasveinaaðstoð á aðfangadag og aðstoð við þrettándabrennu. Einnig veitir klúbburinn viðurkenningar fyrir góðan námsárangur tíundu bekkinga í Grunnskóla Þorlákshafnar.
Klúbburinn hefur lagt samfélaginu lið með ýmsum hætti í gegnum árin bæði með fjárframlögum og vinnuframlagi.
Félagar í Lionsklúbbi Þorlákshafnar hafa tekið virkan þátt í umdæmisstjórnum Lions á Íslandi.
Fundir eru haldnir öllu jafna í Ráðhúskaffi Hafnarbergi 1, annan og fjórða hvern þriðjudag og hefjast klukkan 19:30.
Vefur: http://e-clubhouse.org/sites/thorlakshafnar/index.php
Netfang Lionsklúbbs Þorlákshafnar er:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Fréttir frá Lionsklúbbi Þorlákshafnar
Lionsklúbbur Þorlákshafnar er kominn með heimasíðu.
Haustið 2011 var ráðist í að prufa heimasíðuformið sem boðið er upp á frá aðþjóðaskrifstofu Lions, Lions e-Clubhouse. http://www.e-clubhouse.org
Heimasíðuformið er nokkuð einfalt í notkun og kostar ekkert. Ágætar leiðbeiningar á ensku fylgja með. Helsti gallinn við þetta heimasíðuform er að nokkur takmörkun er á notkun íslenskra stafa og ekki er hægt að íslenska heiti staðalsíðanna. Einnig er takmörkun á fjölda síða.
Funda og viðburðadagatalið er mjög gott og uppfærist sjálfkrafa, næsti fundur/viðburður er efstur og það sem er liðið dettur sjálfkrafa út.
Boðið er upp á lokað félagasvæði þar sem hægt er að vera með félagatalið og fréttatilkynningar. Spjallkerfi er inn á félagavefnum en það er ónothæft vegna þess að þar er ekki hægt að nota íslensku stafina.
10. febrúar 2012. Guðmundur Oddgeirsson vefstjóri Lkl Þorlákshafnar.

