Lokafundur Lkl. Laugardals

Lokafundur Lkl. Laugardals var haldinn föstudaginn 3. júní á Trésmíðaverkstæði Tómasar Tryggvasonar. Eftir stuttan innifund var klúbbfélögum skipt í fjóra hópa og fékk hver hópur sitt verkefni. Þau fólust í því að sinna uppgræðslu, dreifa kurli í göngustíg og áburði á viðeigandi stöðum. Eftir að þessu var lokið var aftur safnast saman á funarstaðnum og sest að veitingum, rúgbrauði með reyktum silungi og flatkökum með hangikjöti. Tókst þessi gróðurfundur vel þar sem vel var mætt og segja má að margar hendur vinni fislétt verk.
Lkl. Laugardals

Jóhann Gunnar Friðgeirsson meðmælandi, Davíð Örn Theódórsson, Örn Ólafsson og Sævar Ástráðsson formaður.
Tveir nýir félagar gengu í klúbbinn á fundinum 11. maí og eru þá alls komnir 20 nýir félagar á þessu starfsári. Það er því hægt að segja að bjart sé yfir Laugardalnum og mikil áskorun framundan hjá félögum klúbbsins að móta starfið á næsta ári.
Lokafundur verður gróðurfundur 3. júní en þá tökum við til hendinni og bætum eitthvað í umhverfinu.
Nýir félagar í Lkl. Laugardals
Fróðleikur um Lionsklúbb Laugardals
Lionsklúbbur Laugardals var stofnaður 13. maí 1972. Móðurklúbbur hans er Lkl. Hveragerðis. Eitt af aðal markmiðum klúbbsins er að stuðla að gróðurvernd og uppgræðslu og er það í takt við stefnuyfirlýsingu alþjóðastjórnar Lions í umhverfismálum frá sama ári. Þar segir m.a: „Lionshreyfingin er ein þessara alþjóðastofnana sem ættu að leggja fram krafta sína til að bæta og vernda umhverfið til hagsbóta fyrir alla menn og afkomendur þeirra.“ Klúbburinn hefur frá stofnun tekið þátt í ýmsum verkefnum bæði innlendum og erlendum. Ófá eru þau verkefni sem klúbburinn hefur unnið að eða styrkt í nærumhverfi sínu. Má þar t.d. nefna heilsugæsluselið á Laugarvatni en flest tæki þar hefur klúbburinn kostað.
Björgunarsveitin Ingunn var stofnuð af frumkvæði klúbbsins og hefur hún verið styrkt af og til. Klúbburinn starfar í góðri samvinnu við önnur félagasamtök í Laugardalnum.
