Villimannakvöld hjá Lionsklúbbnum Geysi 17. febrúar 2012

Að kvöldi Þorraþrælsins þann 17 febrúar síðastliðinn stóð Lionsklúbburinn Geysir fyrir Villimannakvöldi í Úthlíð í annað sinn. Þetta var karlasamkoma. Megintilgangur kvöldins var að gæða sér á hrossaketi og hrossabjúgum í miklu magni ásamt meðlæti og að sjálfsögðu að kæta andann, sýna sig og sjá aðra.

2012_Villimannakvold_17.feb
F.v. Hafsteinn Hannesson hjá Matvælastofnun, Kristófer A. Tómasson Lkl. Geysi og Umdæmisstjóri 109A og afmælisbarnið Hilmar Ragnarsson Lkl. Geysi og húsasmíðameistari. 

Þarna komu saman hátt í 100 lionsmenn úr allmörgum klúbbum. Til dæmis birtust rúmlega 20 lionskarlar úr Grindavík og allnokkrir úr klúbbunum á Höfuðborgarsvæðinu og öðrum klúbbum í Árnessýslu. Nokkrum vinir og velunnarar lionsmanna voru á samkomunni.

2012_Johannes_og_Bjarni_buralegir__i_eldhusinu
Geysisfélagarnir f.v. Jóhannes Helgason og Bjarni Kristinssona siðameistari í eldhúsinu

Veislustjóri var Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður og fór hann á kostum. Meðal þeirra sem fluttu gamanmál voru Árni Johnsen alþiningismaður, Sveinn Sæland blómabóndi, fulltrúar Grindvíkinga og ekki síst aðalgestgjafinn Björn Sigurðsson bóndi í Úthlíð en honum var tíðrætt um að Biskupstungnamenn hefðu aldrei tapað orrustum.

Lionsklúbburinn fer í heimsókn til Grindavíkur

Lionsklúbburinn Geysir í biskupstungum brá undir sig betri fætinum á aðventunni og fórí opinbera heimsókn til Suðurnesja með sérstaka áherslu á Grindavík.

Ekið var um hinn nýja Suðurstrandarveg og tóku forystumenn Lionsklúbbs Grindavíkur á móti hópnum á mörkum Árnessýslu og Gullbringusýslu. Sérstakur leiðsögumaður var Aðalgeir Johansen vert á veitingastaðnum Bryggjunni.  Sá maður fór gjörsamlega á kostum, enda þekkjandi hverja þúfu og hvern stein í sínum heimabæ. Grindavík er hinn myndarlegasti bær og margt þar að sjá. Saga einstakra húsa og hverfa var rakin. Auk þess var hópurinn fræddur um hin mörgu skipsströnd sem átt hafa sér stað við strönd bæjarins. Staðurinn hefur vaxið jafnt og þétt og eru íbúar um 2.900 talsins. Klúbbfélögum var sýnd fiskvinnsla hjá fyrirtækinu Stakkavík. Það var nýstárlegt fyrir þessa miklu landkrabba. Í Stakkavík er snyrtimennskan greinilega í fyrirrúmi.

Lkl_Geysir_nov_og_des_Stakkavik
Gestgjafarnir í Grindavík sýna Lionsmönnum og mökum þeirra, fiskvinnslu Stakkavíkur.

Dýrindis humarsúpa var snædd á Bryggjunni, þar var saga staðarins rakin ennfrekar í máli og myndum. Haldið var að Stað og þar tekið hús í tilraunafiskeldisstöð Hafrannsóknarstofnunar. Þar er Matthías Oddgeirsson formaður Lionsklúbbs Grindavíkur húsbóndi. Hann leiddi okkur í allan sannleika um starfsemina. Meðal þeirra lífdýra sem þar bar fyrir augu var sandhverfa sem ku vera mjög dýr matfiskur. Þessi starfsemi hefur verið í gangi á þriðja áratug. Eftir að hafa kvatt Grindvíkinga lá leiðin að Ásbrú, gamla svæði bandaríkahers á Keflavíkurflugvelli. Þar heimsótti hópurinn Ragnar Sæ Ragnarsson fyrrum sveitarstjóra Bláskógabyggðar. En hann rekur þarna hið glæsilegasta heilsuhótel. Starfsemina kynnti hann ítarlega. Boðið er upp á tveggja vikna heilsumeðferð sem byggir á andlegri og líkamlegri uppbyggingu auk þess má meðal annars fara í svokallað Detox. Að þessu loknu var snæddur kvöldverður í Hafnafirði og ekið heim á leið yfir Hellisheiði.  Þessi ferð var afar vel heppnuð og minnir okkur á að það þarf ekki alltaf að fara um langan veg til að sjá eitthvað fróðlegt og framandi. Um 25 manns tóku þátt í ferðinni og voru nokkrir makar meðtaldir.

Fyrir hönd Lkl Geysis Kristófer Tómasson

Fréttir frá Lkl.Geysi

Miðvikudaginn 6. apríl síðastliðinn voru teknir inn þrír nýir félagar og verður sá fjórði tekinn inn þann 20. apríl næstkomandi. Þá mun Lionsklúbburinn Geysir telja 22 félaga. En einn félagi var tekinn inn í nóvember. Þess ber að geta að vorið 2008 fyrir þremur árum var félagatalan 11.

Lions_april_2011_nyjir_felagar_aHelgina 8.-10. apríl lögðu klúbbfélagar  Rauðu fjaðrar söfnuninni lið. Sérstök áhersla var lögð á að standa vaktina við kjörstað Tungnamanna og voru viðtökur afar góðar.

Seinna í vor verður farin enn ein fræðsluferð. Þá verður ekki farið langt yfir skammt, heldur að Drumboddsstöðum þar sem er mjög myndarlegur búskapur.

Lokafundur og stjórnarskipti eru fyrirhuguð fyrsta miðvikudag í maí.

Árleg gróðursetningarferð í Rótarmannatorfur á Kili verður að vanda farin fyrsta föstudag í júní.

Það má sjá á þessu  að það er líf og fjör í Lionsklúbbnum Geysi, eins og svo mörgum, góðum félögum í sveitinni okkar.

Lionsklúbburinn Geysir færir gjafir

Félagar í Lionsklúbbnum Geysi færðu fyrir skömmu Heilsugsælustöðinni í Laugarási tæki til eyrnaskoðunar að gjöf. Einnig færði klúbburinn sveitarfélaginu Bláskógabyggð öryggismyndavélar að gjöf til nota í íþróttamannvirkjum í Reykholti. Báðar þessar gjafir koma að góðum notum.

Villimannakvöld

Lionsklúbburinn Geysir stóð fyrir villimannakvöldi í Úthlíð föstudagskvöldið 18. febrúar og bauð til sín félögum úr karlaklúbbum á svæði  4 ásamt öðrum gestum.

Lions_feb._2011_014a
Kátir Lionsmenn á Villimannakvöldi Lkl. Geysis.

Á borðum var hrossakjöt og hrossabjúgu ásamt nýmóðins meðlæti.

Lions_feb._2011_011a

Sævar Ástráðsson Lkl. Laugardals og
Tómas Jónsson Lkl  Þorlákshafnar taka
til matar síns

Var gerður góður rómur að þessu framtaki þeirra og var ekki að sjá annað en viðstaddir tækju vel til matar sins. Ýmsar frásagnir voru auk þess fram reiddar og skemmtu menn sér hið besta fram eftir kvöldi. Ekki er ólíklegt að Geysismenn endurtaki þetta að ári.

Lions_feb._2011_009a

Halldór Runólfsson Lkl. Selfoss og Björn Sigurðsson Úthlíð Lkl. Geysi.

 

Deila á Facebook