Stofnskrárhátíð Lkl. Ylfu á Akureyri

Ylfur

Stofnskrárhátíð Lkl. Ylfu á Akureyri var haldin föstudaginn 28. október. Nærri 70 manns tóku þátt í hátíðinni. Óvenjumargir heiðursgestir voru mættir og má þar nefna alþjóðastjórnarmann Lions, Guðrúnu Björt Yngvadóttur, Jón Bjarna Þorsteinsson frv. alþjóðastjórnarmann, fjölumdæmisstjórann og umdæmisstjóra 109B auk annarra og síðast en ekki síst bæjarstjórann á Akureyri og frv. Hængsfélaga, Eirík Björn Björgvinsson og konu hans Ölmu.

Ylfur58
Jörgensen umdæmisstjóri 109B  afhendir Rannveigu Heimisdóttur
formanni Ylfu stofnskrárskjalið

Frétt frá Lkl. Ylfu Akureyri.

Fyrsti fundur Lkl. Ylfu Akureyri var haldinn 22. september sl. Þessi klúbbur var stofnaður í vor af konum á Akureyri og nágrenni. Einungis var haldinn þessi eini stofnfundur og síðan tókum við okkur frí yfir sumarið. En þrátt fyrir að engir fundir hafi verið haldnir þá var samt samband milli allra Ylfanna á Netinu. Það var góð leið til að halda því nýja sambandi sem þessar konur höfðu myndað.

 Stjórn klúbbsins og varastjórn ásamt 2. varaformanni hafa í raun unnið sem ein stjórn.  Það fyrirkomulag er örugglega komið til að vera hjá okkur. Við höfum komið okkur upp lokuðu svæði á Facebook þar sem við getum „rætt“ saman. Það er reynsla okkar að þau netsamskipti ganga betur og auðveldar fyrir sig en venjulegur tölvupóstur. Þar sem allar Ylfurnar eru tölvuvæddar þá eru öll gögn sem klúbbinn varða send rafrænt til klúbbkvenna til kynningar og upplýsinga.

 Það má með sanni segja að þessi fyrsti fundur haustsins tókst með miklum ágætum. Okkur sem stóðum að stofnum klúbbsins er mikið í mun að virkja allar konurnar og því höfum við ekki enn skipað nefndir.  Mestur hluti fyrsta fundar fór  í hugmyndavinnu  um framtíð Ylfu. Það gaf konunum tækifæri á að kynnast enn betur. Það skorti ekki hugmyndirnar um  hvernig hafa bæri góðan Lionsklúbb.  Til gamans má geta þess að allflestar tillögurnar voru um vinnu inn á við í klúbbnum.

Það er sameiginlegt með okkur öllum að við viljum vera í Lions til þess m.a. að bæta okkur sjálfar.  Þess má geta að þær sem höfðu  sótt „Leiðtogaskóla Lions“ nýttu sér þá þekkingu sem þær höfðu fengið þar við skipulagningu hópavinnunnar. Skólanum var sýndur mikill áhugi og ætla nokkrar að sækja um „skólavist“ næsta ár.

Gerður Jónsdóttir ritari Lkl. Ylfu.

Nýr Lionsklúbbur á Akureyri

Mánudaginn 18. apríl var stofnaður nýr Lionsklúbbur á Akureyri, Lionsklúbburinn Ylfa.  Móðurklúbbur Ylfu er Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri. Þrjátíu og sex konur frá Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hrísey og Húsavík eru stofnfélagar. Það vekur athygli hversu aldursdreifingin í klúbbnum er mikil. Yngsta konan er fædd árið 1991 og sú elsta 1946. Einnig er áhugavert að fjórar mæðgur eru í klúbbnum.

YlfaÁ myndinni eru undirbúningshópurinn aftari röð frá vinstri Arna Tryggvadóttir varaformaður, Gerður Jónsdóttir ritari, Magnfríður Sigurðardóttir 2. varaformaður. Fremri röð frá vinstri: Rannveig Heimisdóttir formaður, Anna Kolbrún Árnadóttir formaður félaganefndar og Jóhanna Anna Jóhannesdóttir gjaldkeri.

Eins og í öllum Lionsklúbbum á Íslandi verður aðalverkefnið að vinna að  mannúðarmálum ásamt því að styrkja og efla félagskonur. Á fyrsta starfsárinu verður lögð áhersla á að konurnar kynnist hver annarri  og vinni að stefnumótun fyrir klúbbinn. Mikilvægt er að hafa gaman af samverunni. Stjórn Ylfu skipa: Rannveig Heimisdóttir formaður, Gerður Jónsdóttir ritari og Jóhanna Anna Jóhannesdóttir gjaldkeri. Formaður félaganefndar er Anna Kolbrún Árnadóttir.

Stefnt er að stofnskrárhátíð seint í sumar eða haust.
Deila á Facebook