Árið 2012 hjá Lkl. Húsavíkur
Árið 2012. Er mikið afmælis ár í Lionsklúbbi Húsavíkur, merkisafmæli hjá mögum félögum og hófst þessi törn 1. jan þegar Tryggvi Finnson varð 70. ára, Haukur Logason 75.ára , Guðmundur Guðjónsson 60. ára. Ásmundur Bjarna 85. ára, Tryggvi Óskars 70. ára Árni Vill 75. ára. svo bara heldur þetta áfram út árið.
Á fundi 1. mars afhenti Lionsklúbburinn Björgunarsveitinni Garðari gjafabréf kr. 300,000,- sem styrk til kaupa á björgunarbát. Við styrknum tók Sigrún Þórólfsdóttir
|
Sigrún þakkar. |
Á fundi Lionsklúbbs Húsavíkur 15. mars var Ásmundur Bjarnason gerður að Melvin Jones félaga. Ásmundur er einn af tryggu meðlimum klúbbsins og aldursforseti 85 ára, mætir vel og ómissandi á klúbbfundi, Ádi er mikill sögumaður, hefur húmorinn í lagi og er uppi með munnhörpuna ef sungið er.
![]() Formaður afhendir Ásmundi Melvin Jones |
![]() Karlinn þræl klár í kollinum |
Ádi hikar ekki við sem ljónatemjari að áminna og jafnvel að kæra, og svo ekki síst að reka menn úr og í skó eftir því sem við á. Eitt sinn kom Umdæmisstjóri sem er kona og sýslumaður í heimsókn og fór úr skónum, þetta fór illa í Ásmund , hann þorði ekki að kæra frúna enda var hún sýslumaður. Ásmundur var settur af sem ljónatemjari í fyrra, því yngja átti upp í því embætti, Ásmundur setti þá ofaní við formann og sagði að þetta þætti sér skrítið,“ því Villi sem taka átti við því embætti“ er 1-2 árum yngri, og yrði fljótur að ná sér í aldri, þetta sá formaður og skipaði Áda aftur ljónatemjara, og allt féll í ljúfa lög.
![]() Ádi lætur Tryggva heyra það |
|
|
Guðmundur Guðjónsson og Tryggvi Óskarsson áttu merkisafmæli. Guðmundur 60 ára. Og Tryggvi 70 ára. við það tækifæri, tilkynnti Tryggvi að hann ætlaði ekki að halda okkur veislu en ætlaði að gefa klúbbnum kr.1000,- fyrir hvert ár sem hann hafði lifað, magnaður bóndi og góður Lionsfélagi hann Tryggvi.
Húsvíkingar í blóðsykurmælingu 10. Des 2011
Ertu með sykursýki?
Lionsklúbbur Húsavíkur, í samvinnu við starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, buðu Húsvíkingum upp notalega og jafnframt gagnlega stund í húsakynnum sínum í gær.
![]() |
| 10. des yndislegt jóla veður |
Þar buðu þeir upp á fría blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu sem 125 manns þáðu.Að sögn Sigríðar Jónsdóttur yfirhjúkrunarfræðings hjá H.Þ reyndist blóðsykurinn minna áhyggjuefni en í fyrra og var aðeins tveimur ráðlagt að koma í nánari skoðun á heilsugæslustöðina. Athygli vakti hinsvegar að blóðþrýstingur var kominn á rautt ljós hjá 24 einstaklingum og var þeim ráðlagt eftirlit og greining hjá heimilislækni á þessu sjúkdómseinkenni.Starfsfólk heilsugæslunnar var fyrir þessa skimun búið að vekja athygli á enn einum áhættuþætti sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma sem er kviðfita og hvatti fólk til að mæla mittisummálið hjá sér.
![]() |
| Skrifarar höfðu nóg að gera |
Það er aukin áhætta hjá körlum sem mælast með meira en 102 cm. í mittismál og hjá konum sem mælast með meira en 88 cm. í mittisummál.
Sigríður segir það mikilvægt fyrir starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga að finna stuðning og velvilja þeirra sem nota þjónustuna og einnig frá fyrirtækjum og félagasamtökum.
![]() |
| Liðtækur gjaldkeri við mælingu |
![]() |
![]() |
| Hér dugar ekkert nema dýralækni | Árni við vöfflubakstur |
Þingeyingar í ristilspeglun
Íbúum á svæði Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga býðst fljótlega ókeypis ristilspeglun. Um er að ræða forvarnarverkefni gegn ristilkrabbameini sem Lionsklúbbur Húsavíkur stendur fyrir.
Verkefnið er hugsað þannig að næstu 5 árin verður öllum 55 ára íbúum á svæðinu boðið upp á ókeypis ristilspeglun. Íbúar svæðisins fá fljótlega bréf með nánari upplýsingum um verkefnið og framkvæmd þess en það er árgangur 1957 sem verður fyrst boðaður í skoðun á næsta ári og síðan koll af kolli. Verkefnið er alfarið fjármagnað af Lionsklúbbi Húsavíkur sem leitað hefur stuðnings hjá félögum og fyrirtækjum á svæðinu. Það er síðan unnið í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Sjá frétt á RÚV >>>
Lokafundur Lkl. Húsavíkur
27. maí 2011 var haldinn lokafundur Lionsklúbbs Húsavíkur. Það hefur verið venja undanfarin ár að halda fundinn annars staðar en í Lionshúsinu og þá gjarnan farið út fyrir bæinn. Að þessu sinni var farið stutt, eða í Heiðarbæ sem er félagsheimili 15 km sunnan við bæinn. Skemmtinefnd undir forystu Sassa sá um að undirbúa fundinn með stjórninni, sjá um skemmtiatrið, dúka og leggja á borð og græja salinn.

Félagar úr Kótelettufélaginu aðeins að taka stöðuna.
Þeir fengu Kótelettufélag Íslands til að sjá um matinn og mættu fjórir kótelettukarlar í slaginn, reyndar eru 3 Lionsfélagar „félagar“ í Kótelettufélagi Íslanda svo það var frekar auðvelt að koma því í kring. Það er skemmst frá því að segja að étnar voru kótelettur sem eldaðar voru að hætti Kótelettufélags Íslands og fórum við öll vel mett heim, glöð og ánægð með framtakið.

Fullur salur, nærri 100% mæting
Birgir Þór formaður setti fund og fór örfáum orðum um vetrarstarfið og sagði frá Færeyjaferð og vinaklúbbasambandi við Lionsclub Suðuroyjar sem staðfest var 7. maí í Hofi á Suðuroy. Síðan færði formaður Sigríði Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi smá vinargjöf fyrir hjálpina við sykursýkisverkefni sem við unnum að í vetur. Að þessu loknu sleit Birgir Þór formaður klúbbsins fundi og gaf Sigurði Aðalgeirssyni veislustjóra orðið og þar með hófst gamanið með söng og gleði fram eftir kvöldi, Sigurður Hallmarsson bæjarlistamaður spilaði á harmonikku og sagðar sögur og brandarar.
Frá Lkl. Húsavíkur
Lionsklúbbur Húsavíkur bauð íbúum Norður-Þingeyjarsýslu upp á ókeypis blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu dagana 11. des 15., 16. og 17. febrúar og 28.apríl sl. í samtarfi við starfsfólk heilsugæslustöðvanna á Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Mývatnssveit og Þingeyjasveit. Einnig var boðið upp á fræðsluerindi um sykursýki sem Sigríður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur sá um.

Hér er verið að undirbúa mælingu.(þetta gæti verið stór hættulegt, eða það sýnist mér)
Þátttaka var mjög góð á öllum stöðum og var fólk ánægt með þetta góða framtak og ekki skemmdi nú fyrir að boðið var upp á kaffi og með því að loknum mælingum .
Öllum sem reyndust vera of háir í blóðþrýstingi og/eða sykri var ráðlagt eftirlit á heilsugæslustöð. Á þriðja tug greindust með háþrýsting sem þurfti meðhöndlunar við og tveir hafa nú þegar fengið greininguna sykursýki og í einu tilviki var sjúkdómurinn á háu stigi. Átak LIONS manna og starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga hefur því skilað miklu til samfélagsins forvarnarlega séð og framhaldsmeðferð mun án efa bæta lífsgæði þeirra sem greindust með háan blóðsykur og háþrýsting.









