Umdæmi 109B
| Atriðaskrá greina |
|---|
| Umdæmi 109B |
| Bjarney heimsækir klúbba |
| Allar síður |
Bjarney Jörgensen umdæmisstjóri
Þá er komið að því, nýtt starfsár hafið hjá okkur Lionsfólki og undirrituð tekin við embætti umdæmisstjóra í umdæmi 109 B. Mér finnst það hafa verið í gær, þegar leitað var til mín um að taka við þessu „stjórastarfi“, en það var víst vorið 2009. Ótrúlegt hvað tíminn líður.
Einkunnarorð mín, sem umdæmisstjóri verða: „Virðing, viska, víðsýni“ og tákn mitt verður Snæfellsjökull. Ég var búin að velta því lengi fyrir mér hver yrðu mín einkunnarorð og alltaf endaði ég á sömu orðunum; virðing, viska og víðsýni. Kannski vegna þess, að þessi orð hafa verið áberandi í skólalífi barnanna minna, hvort sem var í grunnskóla eða menntaskóla og segja það sem ég vil leggja áherslu á í mínu starfi sem umdæmisstjóri.
Öll eigum við skilið að njóta virðingar. Virðing endurspeglast meðal annars í þeirri kurteisi sem við sýnum hvert öðru, hvernig við tölum við annað fólk og hvernig við tölum um það. Virðum skoðanir annarra, skoðanaskipti eru af hinu góða og auka visku okkar.
Lífið væri harla snautt án visku og það að fá að miðla þekkingu minni og uppfræða hinn almenna Lionsmann um Lionshreyfinguna er mér mikið hjartans mál. Hvort sem það tengist innra eða ytra starfi hreyfingarinnar, víðsýni tel ég af hinu góða.
Víðsýni felur í sér að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum. Hugleiða þær og jafnvel ráðast í breytingar, ef þörf er á. Það er öllum hollt að endurmeta hlutina og sjá þá í nýju ljósi.
Ég efa ekki að næsta starfsár verði skemmtilegt og hlakka til að takast á við þetta starf og mun gera mitt besta við að sinna því vel. Ef ég klúðra nú einhverju, þar sem ég er algjör nýgræðingur í þessu, þá munið eftir siðareglum Lions: „Vertu gætinn í gagnrýni og örlátur á viðurkenningu. Byggðu upp, en rífðu ekki niður“.
Bjarney Jörgensen
umdæmisstjóri 109 B
Starfsárið 2011-2012
