Fjölumdæmi-109

ArniÁrni V. Friðriksson fjölumdæmisstjóri MD 109

Ágæta Lionsfólk.

Nú eru flestir klúbbar komnir á skrið, búnir að kalla saman stjórnarfundi og margir hafa þegar haldið almennan klúbbfund. Við í fjölumdæmisráði og umdæmisstjórnum höfum þegar haldið okkar fyrsta fund. Að þessu sinni vorum við í Munaðarnesi. Tókum eina helgi, vorum með málefnavinnu, hristum mannskapinn saman og skemmtum okkur vel við leik og störf. Vona ég að allir hafi snúið heim fullir áhuga og einhvers vísari.

Þetta ár er afmælisár.

Lions á íslandi varð 60. ára þann 14. ágúst síðastliðinn. Fyrsti Lionsklúbburinn á landinu var stofnaður þann dag árið 1951 af Magnúsi Kjaran. Það verður haldið upp á tímamótin með margvíslegum hætti.

Fyrrverandi alþjóðaforseti (nú stjórnarformaður alþjóða hjálparsjóðsins, LCIF) Sid Scruggs og kona hans Judy komu í heimsókn dagana 11. til 14. ágúst. Forsetahjónin fyrrverandi voru yfir sig ánægð enda dagskráin fjölbreytt og veðrið ótrúlega gott. Hápunktur heimsóknarinnar var afmælishátíðarkvöldverður í Lionsheimilinu að kvöldi 13. ágúst.

NSR (norræna samvinnan) er 50. ára og það verður sérstaklega haldið upp á þau tímamót á næsta NSR þingi í Reykjavík dagana 19. til 21. janúar. Ég hvet alla Lionsmenn til að sækja þingið og þess má geta að B umdæmið í Noregi hefur tilkynnt um 50 fulltrúa frá þeim þannig að norskir fulltrúar verða líklega nærri 70.

Kynningarmál.

Við höfum fengið styrk frá alþjóðastjórn til kynningarmála. Ætlunin er að gera átak í þeim málum og við höfum ráðið Jóhann Guðna Reynisson sem verkefnisstjóra kynningarmála. Honum til halds og trausts hefur verið skipuð 5 manna nefnd undir forystu Magnúsar Gunnarssonar Lkl. Ásbirni en með honum í nefndinni starfa þau Benjamín Jósefsson Lkl. Akraness, Rúna Kr. Sigurðardóttir Lkl. Sunnu, Lárus Páll Pálsson Lkl. Tý og Lena Grétarsdóttir Lkl. Ynju.  Við munum kynna ykkur betur síðar hvernig þið getið notið hjálpar og leiðsagnar Jóhanns Guðna við að skrifa greinar, fréttatilkynningar og fl.

Leiðtogamál.

Leiðtogaskólinn verður haldinn í Munaðarnesi aðra helgina í febrúar og sömuleiðis aðra helgina í mars í vetur. Undanfarið hefur verið biðlisti og er það ánægjulegt.  Þrátt fyrir leiðtogaskólann er alltaf skortur á að Lionsfólk bjóði sig fram til starfa fyrir Lionshreyfinguna. Ég tel að ég hafi fengið alveg frábært fólk í fjölumdæmisráðið en það er pláss fyrir fleiri því sumir gegna allt að þremur embættum. Það er óþarfi því við eigum fullt af frábæru fólki. Það þarf bara að láta vita af sér og bjóða sig fram.  

Þetta á einnig við um embætti svæðisstjóra, umdæmisstjóra og fjölumdæmisstjóra.

Við erum í góðum málum hvað varaumdæmisstjórana varðar í báðum umdæmum þetta árið en það vantar dálítið upp á hvað varasvæðisstjórana varðar.

Félagamál.

Framundan er stofnskrárhátíð Lkl. Ylfu á Akureyri. Stofnun þess klúbbs (36 konur) finnst mér sanna að það er leikandi hægt að stofna fleiri klúbba, ekki síst kvennaklúbba. Það útheimtir mikla vinnu sem eins og oftast mæðir á fáum. Leiðtogi slíkrar vinnu þarf að þekkja til bæði í Lions og í því samfélagi sem hinn nýi klúbbur mun starfa. Í þessu sambandi er ekki síst horft til höfuðborgarsvæðisins en það eru einna fæstir Lionsfélagar miðað við fólksfjölda. Út úr vinnu GMT/GLT fulltrúana og kynningarátaksins þyrfti að koma til stofnunar nýrra klúbba og minna brottfalls úr núverandi klúbbum.

Niðurlag.

Þetta afmælisár verður án efa viðburðarríkur tími fyrir mig sem fjölumdæmisstjóra enda mikið starf framundan. Ég veit að það er blómlegt starf í klúbbunum út um allt land. Getið þið hugsað ykkur hvernig samfélagið væri án starfssemi Lionsklúbba? Ég býð ykkur öll velkomin til starfa og óska ykkur velfarnaðar í störfum ykkar í vetur!

Með Lionskveðju,

Árni V. Friðriksson
Fjölumdæmisstjóri

 

Deila á Facebook