Alþjóðastjórn
Alþjóðaþing - International Convention
Alþjóðaþingið er æðsta stofnun Lionshreyfingarinnar. Árlega er haldið Alþjóðaþing Lions og þar hittast um 20.000 Lionsfélagar í eina viku. Þingin eru haldin á sumrin, næsta þing verður í Seattle í Bandaríkjunum 4.-8. júlí 2011 og þar næst í Busan, Koreu 22.-26. júní 2012. Síðan 5.-9. júlí 2013 í Hamborg, Þýskalandi; 4.-8. júlí 2014 í Toronto, Kanada; 26.-30; júní 2015 á Honolulu, Hawaii.
Skrúðganga þjóðanna
Alþjóðaforseti
Á alþjóðaþingi Lions 2010 í Sydney var Sid L. Scruggs III kjörinn alþjóðaforseti starfsárið 2010-2011. Hann er frá Norður-Karólínu í Bandaríkjunum og er fyrrverandi flugmaður. Á þessu þingi var Dr. Wing-Kun Tam frá Hong Kong kjörinn fyrsti varaforseti og Wayne A. Madden frá Bandaríkjunum annar varaforseti.
Kjörorð Sid Scruggs er „A Beacon of Hope“ eða „Ljós vonar“.
„Venjulegt fólk sér hlutina eins og þeir eru. Lionsfélagar eru öðruvísi. Þeir sjá hlutina eins og þeir gætu verið. Þess vegna eru Lionsfélagar „Ljós vonar“ fyrir framtíðina“ segir alþjóðaforseti.
Alþjóðastjórn
Á alþjóðaþingi er kosin stjórn til að fara með vald alþjóðaþingsins milli þinga. Alþjóðastjórn Lions skipa 38 menn. Alþjóðaforseti, fyrsti og annar varaforseti og fráfarandi alþjóðaforseti, svo og 34 alþjóðastjórnarmenn, þar af 6 frá Evrópu. Alþjóðastjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára en aðrir til eins árs. Fjöldi alþjóðastjórnarmanna er ákveðinn frá hverju hinna sjö skipulagssvæða (álfa), þannig að tryggt sé, að hver klúbbfélagi geti látið rödd sína heyrast, með því að hafa samband við sinn umdæmisstjóra, sem getur auðveldlega haft samband við sinn alþjóðastjórnarmann. Á þingi 2010 voru kjörnir 17 alþjóðastjórnarmenn og þar af 3 frá Evrópu, þeir Janez Bohoric frá Slóveníu, Per Christensen frá Danmörku og Guðrún Björt Yngvadóttir frá Íslandi. (sjá nánar hér – pdf)
Auk Guðrúnar hafa fjórir Íslendingar gegnt stöðu alþjóðastjórnarmanns, en þeir eru Þorvaldur Þorsteinsson, Björn Guðmundsson, Svavar Gests og Jón Bjarni Þorsteinsson.
Fundir alþjóðastjórnar
Alþjóðastjórn heldur fjóra staðbundna fundi á ári, en þess á milli eru haldnir símafundir og veffundir nefnda og vinnuhópa. Stjórnin mótar stefnu og stýrir þróun og heldur utan um alla starfsemi LCI. Stjórnin gerir fjárhagsáætlun allra deilda alþjóðaskrifstofu og hefur eftirlit með eignum og sjóðum alþjóðasamtakanna. Alþjóðastjórnarmenn skiptast í 12 nefndir.
Hlutverk alþjóðastjórnarmanns – International Director
Alþjóðastjórnarmaður er fulltrúi síns svæðis/álfu á alþjóðlegum vettvangi og tengiliður milli Lionsfélaganna og Alþjóðasambandsins. Engu að síður er hann fulltrúi allra 206 Lionslandanna og má aðeins gera það sem er best fyrir alla Lionshreyfinguna. Til að uppfylla þessar skyldur þarf hann að heimsækja sem flest lönd og umdæmi á sínu svæði, kynnast starfseminni og taka reynsluna inn í alþjóðastjórnina. Hann á einnig að kynna stefnu og nýjungar frá alþjóðasamtökunum, veita upplýsingar og fræðslu, aðstoða við að leysa vandamál og að ná markmiðum.
