Lionsklúbburinn Muninn var stofnaður 29. apríl 1971
Stofnfélagar voru 23. Nú eru félagar 27 en flestir hafa þeir verið 36. Aðalhvatamaður að stofnun Munins var Friðrik Haraldsson sem var einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Kópavogs 1959. Hann var fyrsti formaður Munins og hefur verið í þeim klúbbi allar götur síðan. Lkl. Muninn hefur meðal annars stutt skátastarf í Kópavogi, Ösp, íþróttafélag fatlaðra og samtökin Vímulaus æska/Foreldrahús. Einnig hafa félagar málað Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð að utan þriðja til fjórða hvert ár og lagt til málningu með stuðningi frá viðeigandi fyrirtækjum. Fyrir hver jól hafa ein til þrjár fjölskyldur sem vitað var að ættu í erfiðleikum verið aðstoðaðar með fjárframlögum. Í um það bil 30 ár hefur Muninn boðið eldri borgurum í Kópavogi til kirjuferðar á höfuðborgarsvæðinu. Hafa allar kirkjur sem geta tekið á móti að minnsta kosti 100 manns til viðbótar við aðra kirkjugesti verið heimsóttar og sumar oftar en einu sinni. Konur í Lkl. Ýr hafa síðan boðið til kaffidrykkju á eftir. Í samvinnu við Lkl. Kópavogs hefur í mörg ár verið efnt til nýjársfagnaðar fyrir eldri borgara í lok janúarmánaðar. Þátttaka hefur verið allt að 200 manns.
Vímulaus æska
Starfsemi
Foreldrasamtökin Vímulaus æska eru starfandi fyrir alla landsbyggðina. Samtökin voru stofnuð 20 september 1986.
Vímulaus æska rekur Foreldrahúsið í Borgartúni 6 í Reykjavík en það var opnað 8. apríl 1999.
Í nóvember 2006 var opnað foreldrahús Vímulausrar æsku í Hafnarfirði.
Samtökin sinna námskeiðahaldi og fyrirlestrum víðsvegar á landinu í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög viðkomandi staða.
Gestir á fundi hjá Muninn í Kópavogi
inn í myndasafnið. Til fundarins var boðið félögum úr Lkl. Seltjarnarnes og nokkrir félagar tóku með sér gesti. Að loknum málsverði tók ágætur Lionsmaður, Níels Árni Lund til máls og flutti og söng ýmis gamanmál á sinn frjálslega hátt og skellihlógu gestir fundarins hvað eftir annað. Aldeilis gaman að því. Síðan komu ýmis málefni klúbbanna, m.a. söfnun vegna hamfaranna í Japan og framlög í LCIF sjóð Lionshreyfingarinnar vegna þeirra. Fram kom að báðir klúbbarnir myndu gefa 1.000 dollara í söfnunina af þessu tilefni. Fleiri upplýsingar voru gefnar um væntanlega tónleika KK í Salnum í Kópavogi, til styrkta Foreldrahúsi Vímulausrar æsku. Fundurinn tókst sem sagt frábærlega og stóð til kl. 22:00 og væntanlega hafa allir farið glaðir í sinni til síns heima. Myndirnar eru hér !