Erlendir vinaklúbbar Engeyjar

 Síðastliðið  haust var stofnað til vinasambands við tvo erlenda Lionsklúbba. Annars vegar við Lions Club of Kathmandu Gliese í Nepal sem er öflugur klúbbur 29 karla og hins vegar Torravieja Costa Lions Club á Spáni sem er blandaður klúbbur og okkur að góðu kunnur.

Engey

                          Félagar í Torravieja Costa Lions Club 

 Félagi okkar Katrín Árnadóttir hefur reglulega sótt fundi  hjá þeim klúbbi þegar hún dvelst á Spáni. Hún segir félagana hörkuduglega í fjáröflun og uppfinningasama eins og ítrekað hefur komið fram í fréttabréfum hennar.Vinasamband klúbbanna hefur verið staðfest af LCI í Oakbrook. Hafa klúbbarnir í vetur skipst á upplýsingum um starfsemina í máli og myndum.

Þorrablót Engeyjar

Happdrtti__orrablti 

            Happdrættisvinningar á þorrablóti

Ilmur af, hákarli, hangikjöti og súrmat hlykkjaðist niður stigann og fyllti vitin strax og inn í anddyrið var komið. Það var laugardagurinn 28. janúar og Lkl. Engey fagnaði þorra í Sóltúni 20. Hlaðborð svignaði undan hefðbundnum þorramat, félagar ásamt gestum fjölmenntu og gerðu mat og drykk góð skil. Var haft á orði að maturinn hefði bragðast óvenjuvel (sem að vísu er sagt á hverju þorrablóti). Haraldur Gunnar Hjálmarsson, félagi í Lkl. Perlunni lék létt lög á píanó undir borðum auk þess sem hann stjórnaði fjöldasöng. Kvöldið var sérlega ánægjulegt, stemningin létt og skemmtileg og fuku þar margir góðir brandarar og gamansögur. Ungir tónlistarmenn sungu og léku á gítar við góðar undirtektir og að lokum var dregið í glæsilegu happdrætti. Ágóði af happdrættinu rennur í líknarsjóð klúbbsins.

Heimsókn í Skógarbæ

Eitt af skemmtilegri verkefnum Engeyjar er árleg sunnudagsheimsókn í Hjúkrunarheimilið Skógarbæ. Þá bjóðum við heimilisfólki ásamt gestum og starfsfólki upp á heimabakaðar kökur með eftirmiðdagskaffinu og gjarnan tónlistaratriði til skemmtunar. Hefur okkur verið tjáð að heimsóknarinnar sé alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu.

Engey_Heimskn__Skgarb

                    Engeyjarkonur við hlaðborðið

 Sunnudaginn 12. febrúar sl. mættum við að venju, hlaðnar tertum, kökum og brauði, enda eru í hópi okkar snillingar í bakstri og tertugerð eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Engey_Hnakrinn

                        Húnakórinn í Skógarbæ

Tónlistaratriðið að þessu sinni var Húnakórinn sem söng nokkur lög, íslensk og erlend við mikinn fögnuð viðstaddra.

Haustferð Engeyjar

Í Lionsklúbbnum Engey hófst vetrarstarfið með ógleymanlegu ferðalagi um Fjallabaksleið nyrðri.  Lagt var af stað frá Lionsheimilinu að morgni 10. september í sól og blíðu sem hélst alla ferðina.  Landið skartaði sínu fegursta en fjallasýn í fjarlægð var nokkuð í móðu vegna ösku í lofti sem gaf ævintýrablæ.  Á leiðinni var stoppað bæði í Landmannalaugum og Hólaskjóli, nestinu gerð skil, umhverfið skoðað og útiverunnar notið. 


Myndirnar eru teknar í ferð Lionsklúbbsins Engeyjar um Fjallabaksleið nyrðri haustið 2011.

Í ferðalok var snæddur þriggja rétta kvöldverður að Höfðabrekku í Mýrdal en áður höfðum við þegið veitingar í húsi sem félagi okkar, Heiðrún Rútsdóttir, á ásamt systur sinni í Vík í Mýrdal.  Á leið til Reykjavíkur var  komið við á Þorvaldseyri þar sem við sáum kvikmynd um gosið í Eyjafjallajökli og áhrif þess.  Það var komið fram yfir miðnætti þegar þreyttar og glaðar Engeyjarkonur komu í bæinn eftir 17 klukkustunda óbyggðaferð.           

Skyggnilýsingafundur

Þórhallur MiðillÞetta var í annað skipti sem við höldum skyggnilýsingafund með Þórhalli sem fjáröflun. Fyrri fundurinn var haldinn 2009 og tókst mjög vel en þá sóttu hann rúmlega eitthundrað manns, s.s. fullur salur í Gerðubergi.
Fundurinn um daginn var ekki eins vel sóttur, 48 manns, en við kennum veðrinu um. Þetta kvöld var aftaka veður, brjálað rok og rigning. En eins og á fyrri fundinum skemmti fólk sér vel, miðillinn var í góðu
formi og fór á kostum og allir fóru sáttir heim. Við erum ákveðnar að stefna að öðrum fundi að ári og höfum fengið vilyrði Þórhalls fyrir því. Vonum bara að veðrið verði betra.

Edda Briem

Deila á Facebook