Svæðisfundur í Eyjum

29 aprl 2012lions 019

Svæðisfundur á svæði 4 var haldinn í fyrsta sinn í Eyjum síðast liðinn laugardag. Svæðisstjórinn Ingimar Heiðar Georgsson setti fundinn. Þeir klúbbar sem mættu voru: Lkl. Hveragerði, Lkl. Selfoss, Lkl. Emblur, Lkl. Geysir, Lkl. Laugardals, Lkl. Þorlákshafnar og Lkl. Vestmannaeyja.  Formenn klúbbanna sögðu frá stöðinni í sínum klúbbum. Síðan var rætt um unglingaskipti. Þá var komið að því að kynna næsta svæðisstjóra sem er Hilmar Einarsson frá Lkl. Laugardals. Að lokum var rætt um fjölgun í klúbbum og passa sérstaklega upp á nýju félagana. Eftir fundinn var boðið upp á súpu frá Einsa kalda og að síðustu var farið í rútuferð um Eyjuna.

Kveðja 

Sævar Þórsson




Krakkarnir á Stuðlum

Krakkarnir á Stuðlum hafa upplifað allskyns áföll á sinni stuttu ævi, brottrekstur úr grunnskólum og mörg með þroskafrávik eins og ofvirkni og fleira. Starfsfólkið vinnur þarna af æðruleysi við mjög erfiðar aðstæður dag hvern og lyftir oft grettistaki í aðstoð við börnin og unglingana sem koma oft í áfengis og eiturlyfjavímu.

VerkefnanefndStjrn_Fjrgynjar
Sólveig Ásgrímsdóttir forstöðumaður Stuðla, Dan Sommer formaður Fjörgynjar ásamt stjórnarmönnum og félögum í Verkefnanefnd Fjörgynjar.

Félagar í Lionsklúbbnum Fjörgyn tóku ákvörðun eftir heimsókn til Stuðla að leggja lið þessu þarfa verkefni og styrkja Stuðla og gáfu á núna aðventunni sófasett, flatskjá og 3 snjóbretti að verðmæti 550.000 krónur.

Með ósk um gæfuríkt komandi ár,

Eggert J Levy, ritari.

Stórtónleikar í Grafarvogskirkju

Tónnleikagestir ásamt forsetahjónunum
Tónleikagestir ásamt forsetahjónunum

Lkl. Fjörgyn hélt sína árlegu stórtónleika þann 10. nóvember síðastliðinn. Tónleikarnir voru haldnir til styrktar BUGL, barna- og unglingageðdeild LSH og Líknarsjóði Fjörgynjar.  Allur ágóði af tónleikunum fer í að leggja börnum lið í baráttunni þeirra fyrir bættri heilsu og betri aðbúnaði. Um 90 flytjendur allt frábærir listamenn gáfu framlag sitt til tónleikanna, þökk sé þeim. Flestir klúbbfélaganna unnu að verkefninu og skiluðu samtals 500 vinnustundum.

Karlakórinn Stefnir
Karlakórinn Stefnir

Frábær kvöldstund með frábæru tónlistafólki.

Stórtónleikar í Grafarvogskirkju 10. nóvember 2011

Lionsklúbburinn Fjörgyn heldur sína árlegu stórtónleika til styrktar BUGL, barna- og unglingageðdeildar LSH og Líknarstjóði Fjörgynjar 10. nóvember  n.k.  í Grafarvogskirkju. Með ágóða af þessum tónleikum vilja félagar í Fjörgyn m.a. leggja lið í baráttunni fyrir bættri heilsu og aðbúnaði barna hjá BUGL.  

fjrgyn_tnleikar_minna_plakat

Fjörgyn afhenti BUGL í janúar s.l. tvær bifreiðar til eignar. Þær eru notaðar fyrir starf með inniliggjandi börnum og unglingum og fyrir vettvangsteymi göngudeildar til að auðvelda þeim samskipti við skjólstæðingana á heimaslóðum. Einnig sér klúbburinn um rekstrarkostnað bifreiðanna í 3 ár í samvinnu við N1, Sjóvá og Bifreiðar og landbúnaðarvélar. Við sama tækifæri gaf Fjörgyn BUGL fartölvu, skjávarpa og sýningartjald. Líknarsjóður Fjörgynjar hefur einnig stutt við unglingastarf Grafarvogskirkju og tekið þátt í matargjöfum um jólin.

Þessir árlegu tónleikar eru orðnir að föstum lið í lífi fólks sem kemur ár hvert og styrkir gott málefni og nýtur um leið tónlistarveislu þess mikla fjölda listamanna sem hefur lagt Fjörgyn lið og Fjörgynjarmenn standa í mikilli þakkarskuld við. Allir, sem tök hafa á, eru hvattir til að tryggja sér miða á tónleikana áður en það verður uppselt og hlýða á marga af bestu tónlistarmönnum landsins við mjög góðar aðstæður í einni stærstu kirkju landsins, um leið og stutt er við gott málefni. Þau sem fram koma eru:

Egill Ólafsson, Eyjólfur Kristjánsson, Fabula, Felix Bergsson, Geir Ólafs og Furstarnir, Greta Salóme og hljómsveit, Guðrún Gunnarsdóttir, Hera Björk Þórhallsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Lay Low, Magnús Þór Sigmundsson, Páll Rósinkrans, Raggi Bjarna, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Stefán Hilmarsson, Karlakórinn Stefnir Mosfellsbæ og kórarnir Voces Maskulorum og Vox Populi.

Verð aðgöngumiða er kr. 3.000. Miðasala verður frá 31. október er til 9. nóvember hjá N1, Ártúnshöfða, Bíldshöfða og Gagnvegi. Einnig hjá Olís, Álfheimum, Gullinbrú og Norðlingaholti.

Fjörgyn styrkir BUGL

att00001

Í janúar afhenti Lkl. Fjörgyn  Barna- og unglingageðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss tvær bifreiðar til eignar.  Bifreiðarnar verða nýttar af starfsmönnum BUGL fyrir inniliggjandi börn og unglinga ásamt  vettvangsteymi göngudeildar.  Klúbburinn mun einnig veita árlegt fjárframlag til reksturs bífreiðanna næstu árin.  

N1 styrkir verkefnið með bensínúttekt og Sjóvá vegna trygginga á bifreiðunum.  Við sama tækifæri gaf klúbburinn skjávarpa og sýningartjald til þess að nota í samveruherbergi skjólstæðinga BUGL.

Deila á Facebook