Lions á Íslandi 60 ára AFMÆLISÁR

Framundan er afmælisár Lions, en við fögnum nú 60 ára afmæli Lions á Íslandi.Afmælisárið hófst formlega á þinginu í Stykkishólmi í maí 2011, en því lýkur síðan á þinginu í Reykjavík í apríl 2012. Á af...

Medic Alert

Lionshreyfingin á Íslandi stofnaði MedicAlert á Íslandi, alþjóðlegt neyðarþjónustukerfi, fyrir rúmum aldarfjórðungi. Lionsklúbbarnir hafa jafnan stutt starfsemina með styrkjum og þannig haldið henn...

Unglingaskipti

Unglingaskipti Lions er eitt stærsta alþjóðlega verkefni Lions. Ungu fólki er gefinn kostur á að kynnast daglegu lífi, starfi og menningu annarra þjóða með því að búa hjá fjölskyldum Lionsmanna í öðr...

  • Lions á Íslandi 60 ára AFMÆLISÁR

  • Medic Alert

  • Unglingaskipti

Fréttir

MÁLÞING:
FRAMTÍÐ BARNA: Forvarnir 1, 2 og 3!

AUGNLÆKNINGATÆKI fyrir Landsspítala háskólasjúkrahús.

RBFHáskóla Íslands – Öskju
Sturlugötu 7, stofu 132 á 1. hæð
Fimmtudag 23. febrúar,
kl. 16:30-18:30

Lions á Íslandi  heldur málþing í samvinnu við  Rannsóknastofnun
í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Á málinginu verður fjallað um valin málefni sem eru viðkvæm og brennandi úrlausnarefni sem varða börn og fjölskylduvernd. Eitt af því sem ber á góma er svokölluð óhamingjugildra.

Dagsskrá:

  • Lions með börnum og ungmennum.
  • Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd
  • Rannsóknir um vernd barna:  Kynning á RBF og verkefninu Læsi á lífið: 
  • Barn í blóma, forvörn til framtíðar:
    Kynning á þverfaglegu þróunarverkefni sem felst í nýstárlegu námskeiði  til að efla og styrkja fjölskyldur á Íslandi.  
  • Forvarnarverkefni gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi

Fyrirlesarar:

  • Guðrún Björt Yngvadóttir, alþjóðastjórnarmaður Lions, 
  • Elísabet Karlsdóttir framkvæmdastýra, RBF 
  • Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, HÍ 
  • Katrín Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi
  • Sigríður Björnsdóttir, verkefnastjóri Blátt áfram

Allir velkomnir – Aðgangur ókeypis!                                                                          

Sjá dagskrá >>>>>

Sjá grein: Börn geta lent í óhamingjugildru

A_woman_eyeÍ tilefni að 60 ára afmælis Lionshreyfingarinnar á Íslandi hefur hreyfingin sóttu um styrk til alþjóðahjálparsjóðsins LCIF um að styðja stórt verkefni á Íslandi og hefur verið ákveðið að þetta verkefni verði fjáröflun til kaupa á augnlækningatæki fyrir Landsspítala Háskólasjúkrahús.  Tækið kostar um 18-19 Mkr. Samkvæmt reglum LCIF getur sjóðurinn að hámarki styrkt verkefnið um 75.000$ (um það bil 9 Mkr.) gegn jafnháu mótframlagi frá Lions á Íslandi. Styrkumsóknin hjá LCIF verður afgreidd í apríl.  Leitað verður til allra Lionsklúbba á landinu um stuðning, auk fyrirtækja sem tengjast heilbrigðisþjónustu. 

Um er að ræða tæki til aðgerðar innarlega í auganu svo sem í glerhlaupi, sjónhimnuaðgerðir svo sem við sjónhimnulos, aðgerðir vegna sykursýkisskemmda í augnbotni og loks vegna slysa sem liggja djúpt í auganu.

Sjónverndin hefur verið efst á blaði hjá Lionshreyfingunni gegn um tíðina og má þar nefna  Helen Keller og sjónverndarátökin sem eru enn í gangi til dæmis í Kína. Við sölu fyrstu rauðu fjaðrarinnar hér á landi var gert stórátak í tækjavæðingu Augndeildar auk þess sem heilsugæslustöðvar voru tækjabúnar t.d. með augnþrýstimælum ofl. En í því sambandi hefur augndeildin heldur orðið útundan á síðustu árum. 

Deila á Facebook