Lions Quest í Noregi birtir myndband um félagsfærni

20110329_DMV_youtube_Lions_Qest

Til að horfa á myndbandið er hægt að velja hér >>>>>>> 

Frá því er sagt í frétt frá Lions í Noregi, að við í Lions höfum ákveðið að leggja áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn notkun eiturlyfja. Myndbandið lýsir hvað námsáætlun Norðmanna „Þetta er þitt val“ fjallar um.

„Lions Quest“ er alþjóðlegt kennsluefni á vegum Alþjóðahreyfingar Lions sem Norðmennirnir hafa ákveðið að kalla „Þetta er mitt val.“ Myndin er góð kynning á námsáætluninni. Sérstaklega hvað varðar félags- og tilfinningafærni unglinga.

 

Sjá má norsku fréttina hér >>>>

 

 

Kona tekur við stjórn Lions í Noregi

Egil-Moe-Helgesen-Heidi-Lill-Mollestad-Oppegaard-og-Arne-Kolsrud
Frá vinstri: Egil Moe-Helgesen framkvæmdastjóri, Heidi Lill Mollestad Oppegaard verðandi framkvæmdastjóri og Arne Kolsrud fjölumdæmisstjóri

Lions í Noregi hefur ráðið Heidi Lill Mollestad Oppegaard sem framkvæmdastjóri Lions í Noregi.  Hún mun taka við 1. júlí.  Þetta er fyrsta sinn sem norskir félagar í þessum mannúðarsamtökum með svo miklar hefðir velja konu sem sinn æðsta stjórnanda.

Sjá grein í Lions Norge

Frétt frá Finnlandi

Lionshreyfingin í Finnlandi er með þrjú verkefni í Sri Lanka það er stuðningur við börn, byggingu Sight First sjúkrahúsins í Rathnapura, síðan vinir Lionsklúbba í Sri Lanka.  Þeir sem eru góðir í finnsku geta lesið meira á

Lions Finnlandi

 

Lions í Noregi er komnið með nýjan vef

Lions í Noregi hefur opnað nýjan vef.  Á vefnum eru allir klúbbar í Noregi 476 með sína undirsíðu og eru þeir flokkaðir eftir fylkjum.  Vefur Normanna notar sama útlit og Alþjóðasíðan.

Við óskum Lions í Noregi til hamingju með nýan vef. lions.no.

Sjá lions.no

Lions í Danmörku styður Pakistan vegna flóða

Lions í Danmörku sendi þann 14. ágúst 1 million dkkr eða um 20 milljónir íslkr. til flóðasvæða í Pakistan. Fleiri en 1600 manns létust í flóðunum í Pakistan og fleiri en 14 milljónir lentu í flóðum og þar herjuðu sjúkdómar eins og kólera.

Sjá á lions.dk 

Fjölskyldur flytja í ný hús á Hahiti

Sexhundur fjölskyldur hafa nú flutt inn í ný hús sem hafa verið byggð með aðstoð frá alþjóðahjálparsjóði Lions LCIF.  Þar kemur fram að Lions í Svíþjóð með sína 12.800 séu þátttakendur í þessu verkefni með öðrum 1.3 milljón Lions félögum í heiminum. 

Á sama hátt erum við 2200 íslenskir Lionsfélagar hluti af LCIF og tökum þátt í að styrkja Hahiti.

Sjá lions.se

Unglingaskipti til Mongólíu

Á dönsku Lions síðunni, er frétt sem segir frá því að það er hægt að komast langt með unglingaskiptaverkefni Lions.  Sophie Kilde sem er tengd Lionsklúbbi í Herlev, fékk tilboð um að fara til Mongólíu.

Sjá Lions.dk 

Deila á Facebook