Fullt var út að dyrum á tónleikum í Hveragerðiskirkju

Lionsklúbbur Hveragerðis stóð fyrir mjög vel heppnuðum tónleikum í Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 2. nóvember. Fullt var út að dyrum, en tónleikarnir voru til styrktar baráttu gegn einelti í samstarfi við samtökin Liðsmenn Jerico . ( Landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda ). www.jerico.is
Á tónleikunum koma fram Ragnheiður Gröndal , Páll Rósinkranz, Magnús Þór Sigmundsson og barnakór úr grunnskóla Hveragerðis . Allir sem að tónleikunum standa gefa vinnu sína og rennur miðverð óskipt til málefnissins.
