Frá Lionsklúbbi Hafnarfjarðar
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hélt sína árlegu Gaflarasölu í nóvember undir einkunnar orðunum „Styðjum langveik börn“. Sala Gaflarans gekk mjög vel og þakkar klúbburinn Hafnfirðingum sérlega vel fyrir góðar móttökur og stuðning við fjáröflunina sem er aðal fjáröflun klúbbsins ár hvert.
