Lionsklúbbur Hveragerðis
Jólaballið sem haldið var á Hótel Örk 26.12. 2011 tókst í alla staði afar vel og sóttu það yfir 250 manns. Hljómsveitin okkar góða sem Kristinn G. Kristjánsson setti saman og Eyjólfur Harðarson var í forsöngmennsku fyrir tókst vel upp og keyrði upp kátínuna og stuðið hjá krökkunum sem dönsuðu kring um jólatréð. Svo komu tveir jólasveinar á svæðið, þeir 
Hurdaskellir mundi eftir þessari frá þvi hún var litil stúlka.
Hurðaskellir og Kertasníkir sem gáfu börnunum gjafir. Boðið var upp á kaffi og te, kleinur og vínarkökusneiðar og kókómjólk. Við útgöngu fengu svo börnin jólalitabók og liti.
Melvin Jones hátíð, vina- og makafundur hjá Lionsklúbbnum Ýr Kópavogi
Mánudaginn 9.janúar var haldin Melvin Jones hátíð og var eiginmönnum og vinum boðið á fundinn ásamt Umdæmisstjóra Kristófer Tómassyni og konu hans Sigrúnu Sigurðardóttir.

Melvin Jones viðurkenningu hlutu 11 konur sem allar eru stofnfélagar klúbbsins en hann verður 28 ára í mars. Ein kona forfallaðist og fær hún sína viðurkenningu á næsta fundi. Alls eru 14 stofnfélagar í Lionsklúbbnum Ýr en þrjár voru handhafar MJ viðurkenningar. Þannig að allir stofnfélagar klúbbsins eru handhafar MJ viður kenningarinnar.
Krakkarnir á Stuðlum
Krakkarnir á Stuðlum hafa upplifað allskyns áföll á sinni stuttu ævi, brottrekstur úr grunnskólum og mörg með þroskafrávik eins og ofvirkni og fleira. Starfsfólkið vinnur þarna af æðruleysi við mjög erfiðar aðstæður dag hvern og lyftir oft grettistaki í aðstoð við börnin og unglingana sem koma oft í áfengis og eiturlyfjavímu.

Sólveig Ásgrímsdóttir forstöðumaður Stuðla, Dan Sommer formaður Fjörgynjar ásamt stjórnarmönnum og félögum í Verkefnanefnd Fjörgynjar.
Félagar í Lionsklúbbnum Fjörgyn tóku ákvörðun eftir heimsókn til Stuðla að leggja lið þessu þarfa verkefni og styrkja Stuðla og gáfu á núna aðventunni sófasett, flatskjá og 3 snjóbretti að verðmæti 550.000 krónur.
Með ósk um gæfuríkt komandi ár,
Eggert J Levy, ritari.
Lkl. Geysir heimsækir Lkl. Grindavíkur.

Gestgjafarnir í Grindavík sýna Lionsmönnum og mökum þeirra, fiskvinnslu Stakkavíkur.
Eitt af því sem lífgar upp á starf klúbba er að þeir hittist og haldi fundi saman. Á vef Lionsklúbbsins Geysis er ferðasaga Geysismanna, er þeir fóru til Grindavíkur. Sjá meira >>>>
Hurðaskellir á jólaballi hjá Lkl. Ýr

Hurðaskellir í fullu fjöri.
Þann 20.desember hélt Lionsklúbburinn Ýr Kópavogi í samstarfi við Styrktarfélag krabbameinssjúkra barn jólaball. Lkl. Ýr sá um húsnæði Lionssalin í Auðbrekku og veitingar, var borðið hlaðið hnallþórum og öðru góðgæti sem gestir kunnu vel að meta og gerðu góð skil.
Séra Pálmi Matthíasson flutti börnunum jólahugvekju, Helga Möller og Magnús sáu um söng og undirspil og jólasveinninn hurðarskellir kom í heimsókn og gerði stormandi lukku.

Börnin hlusta á jólahugvekju séra Pálma.
Formaður félagsins Rósa Guðbjartsdóttir þakkaði fyrir þann hlýhug í garð félagsins sem Ýrar konur sýndu þeim. Það mátti ekki á milli sjá hvort var glaðara börnin eða Ýrar konur.
Eins og kvenna er siður eru veitingar aldrei af skornum skammti og gátu Ýrar konur slegið upp annari veislu sem þær og gerðu en þann 21.desember héldu þær niður í kaffistofu Samhjálpar og slógu upp annari veislu við mikla gleði starfsmanna og gesta þar.
Skatan er sterk í ár

„Við erum búnir með þrjár verkanir síðan í haust þannig að við stöndum okkar vakt,“ segir Kári Þór Jóhannsson, formaður Lionsklúbbs Ísafjarðar sem ásamt félögum sínum í klúbbnum verkar skötu í tonnavís. Skötusala er helsta fjáröflun klúbbsins og er sívinsæl.
„Fastakúnnarnir eru löngu byrjaðir að panta og menn eru byrjaðir að senda Íslendingafélögunum erlendis eins og undanfarin ár. Skatan fer á alla staði þar sem Íslendingar eru, þeir eru allmargir komnir á bragðið hjá Vestfirðingum. Eins er hún send út um allt land.“
Sjá meira á MBL.is
Lkl. Vestmannaeyja afhendir jólatré
Lionsklúbbur Vestmannaeyja heimsótti íbúa Sambýlisins og afhennti þeim fullskreytt jólatré og fleira
jólaskraut. Við fengum góðar móttökur eins og alltaf þegar við komum. Það voru allir komnir í jólaskap og hlökkuðu mikið til jólana. Það er búið að skreyta mikið í eyjum, bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa skreytt mikið. Það hefur verið kalt hér hjá okkur síðustu vikur eins og aðrir landsmenn hafa orðið varir við og það hefur snjóað þónokkuð hér hjá okkur en nú er útlit á að það verði rauð jól hjá okkur.
Við óskum öllum Lions og landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, þökkum öllum fyrir samveruna á árinu sem er að líða.
Lionsklúbbur Vestmannaeyja
Gleðileg jól
Skötuveisla Lions í Kópavogi
Lionsklúbbarnir í Kópavogi
standa að Skötuveislu
í Lionssalnum Lundi
Auðbrekku 25-27 í Kópavogi
22. desember frá kl. 17 til 21
Skata sterk
Skata mild
Tindabikkja
Skötustappa
Saltfiskur
Plokkfiskur
Kartöflur
Rófur
Gulrætur
Hangiflot
Hamsar
2 teg hnoðmör
Smjör
Rúgbrauð
Flatbrauð
Verð á mann kr. 3.500
Frítt fyrir 12 ára og yngri
Miðasala við inngang
Gáfu minningargjöf um góðan félaga til HSS
Félagar úr Lionsklúbbnum Garði komu færandi hendi í gær á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Færðu þeir D-deild HSS sjónvarpstæki að gjöf til minningar um góðan félaga sinn úr klúbbnum, Anton Eyþór Hjörleifsson. Anton lést þann 10. desember á síðasta ári.

Bryndís Sævarsdóttir og Þórunn Benediktsdóttir við gjöfinni frá
Pálma Hannessyni formanni Lionsklúbbsins Garðs.

Lionsfélagar við gjöfina sem hefur verið komið haganlega fyrir uppi á
vegg á stofu 50 á D-deild HSS
VF-myndir: Hilmar Bragi sjá Víkurfréttir
Húsvíkingar í blóðsykurmælingu 10. Des 2011
Ertu með sykursýki?
Lionsklúbbur Húsavíkur, í samvinnu við starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, buðu Húsvíkingum upp notalega og jafnframt gagnlega stund í húsakynnum sínum í gær.
![]() |
| 10. des yndislegt jóla veður |
Þar buðu þeir upp á fría blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu sem 125 manns þáðu.Að sögn Sigríðar Jónsdóttur yfirhjúkrunarfræðings hjá H.Þ reyndist blóðsykurinn minna áhyggjuefni en í fyrra og var aðeins tveimur ráðlagt að koma í nánari skoðun á heilsugæslustöðina. Athygli vakti hinsvegar að blóðþrýstingur var kominn á rautt ljós hjá 24 einstaklingum og var þeim ráðlagt eftirlit og greining hjá heimilislækni á þessu sjúkdómseinkenni.Starfsfólk heilsugæslunnar var fyrir þessa skimun búið að vekja athygli á enn einum áhættuþætti sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma sem er kviðfita og hvatti fólk til að mæla mittisummálið hjá sér.
![]() |
| Skrifarar höfðu nóg að gera |
Það er aukin áhætta hjá körlum sem mælast með meira en 102 cm. í mittismál og hjá konum sem mælast með meira en 88 cm. í mittisummál.
Sigríður segir það mikilvægt fyrir starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga að finna stuðning og velvilja þeirra sem nota þjónustuna og einnig frá fyrirtækjum og félagasamtökum.
![]() |
| Liðtækur gjaldkeri við mælingu |
![]() |
![]() |
| Hér dugar ekkert nema dýralækni | Árni við vöfflubakstur |
Gáfu 2,2 milljónir til líknarmála
Hafin er hin árlega fjáröflun Lionessuklúbbs Keflavíkur með sölu á hinum vinsælu sælgætiskrönsum. Verða þeir skreyttir íslensku konfekti í ár frá Freyju og Nóa Síríus.
Síðastliðið ár gaf Lionessuklúbbur Keflavíkur 2,2 milljónir til velferðarmála og viljum við þakka Suðurnesjamönnum enn og aftur frábærar móttökur. Eins þökkum við Rauðakrossdeild Suðurnesja kærlega fyrir afnot af húsnæði í ár. Lionessur eru þegar farnar að bjóða kransana til sölu og reynum við að ná til sem flestra. Einnig er hægt að hringja í síma 898-9790 Hulda, 895-1299 Unna og 844-7057 Hanna.
Sjá Víkurfréttir >>>






