Dagur íslenskrar tungu
![]() |
|
Frú Vigdís Finnbogadóttir setur af stað spilun á prufu- |
Á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember 2011, var kynntur mikilvægur áfangi í Talgervilsverkefni Blindrafélagsins, sem ber yfirskriftina: „Nýr íslenskur talgervill í þjóðareign – bætt lífsgæði – íslensk málrækt.“ Þetta verkefni var sem kunnugt er styrkt af Lions, með afrakstri Rauðufjaðrarsöfnarinnar í vor.
Áfanginn felst í því að prufuútgáfur af nýjum íslenskum talgervilsröddum, Karli og Dóru, heyrðust í fyrsta sinn opinberlega. Frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari verkefnisins, setti af stað spilun á röddunum á samkomu sem var í húsi Blindrafélagsins kl. 14:00 á degi íslenskrar tungu.
Nánari upplýsingar um talgervlaverkefni Blindrafélagsins má sjá hér: http://www.blind.is/verkefni/talgervlaverkefnid/ og hér: http://www.blind.is/frettir/nr/1338

