Fyrirlestur um sogæðanudd vegna bjúgs
Lionsklúbburinn Árdísir stendur fyrir fyrirlestri í Hótel Selfoss fimmtudaginn 23. febrúar kl.20, um
Sogæðanudd vegna bjúgs á líkama.
Fyrirlesturinn er fjáröflun fyrir líknarsjóðinn og stendur yfir í 30 mínútur en síðan verður boðið upp uppá umræður og spurningar. Aðgangur er kr1500. Boðið verður uppá kaffi.
Bjúgur er mjög falið og algengt vandamál sem læknavísindin hafa ekkert svar við. Eina þekkta lausnin við Bjúg á líkama er sogæðanudd.
Fyrirlesarinn er formaður Árdísar (Bryndís Ólafsdóttir) sem er sjúkraþjálfari og ein af fáum sogæðanuddurum hérlendis með alþjóðlega viðurkennt nám.
Við biðjum þig formaður góður, um að áframsenda þennan póst sem fyrst á alla félaga Lionsklúbbsins þíns og við biðjum alla félaga að láta ættingja og vini sem þjást af þessu vandamáli að nýta sér þetta fágæta tækifæri sem þessi fyrirlestur er.
Nánari upplýsingar hjá undirritaðri ef þess er óskað.
Einnig væri mjög gott að fá upplýsingar um fjölda þátttakenda hjá félögum svo hægt sé að átta sig örlítið á fjölda. Hægt er að senda á þetta netfang tilkynningu um þátttöku.
Bestu kveðjurBryndís Ólafsdóttir
Íþróttakennari og Sjúkraþjálfari
Formaður Árdísar
Formaður kraftlyftinganefndar UMFS
Villimannakvöld hjá Lionsklúbbnum Geysi 17. febrúar 2012
Að kvöldi Þorraþrælsins þann 17 febrúar síðastliðinn stóð Lionsklúbburinn Geysir fyrir Villimannakvöldi í Úthlíð í annað sinn. Þetta var karlasamkoma. Megintilgangur kvöldins var að gæða sér á hrossaketi og hrossabjúgum í miklu magni ásamt meðlæti og að sjálfsögðu að kæta andann, sýna sig og sjá aðra.

F.v. Hafsteinn Hannesson hjá Matvælastofnun, Kristófer A. Tómasson Lkl. Geysi og Umdæmisstjóri 109A og afmælisbarnið Hilmar Ragnarsson Lkl. Geysi og húsasmíðameistari. Á bakvið þá standa Birgir Ólafsson og sr. Birgir Thomsen. úr Lkl. Skjaldbreið.
Þarna komu saman hátt í 100 lionsmenn úr allmörgum klúbbum. Til dæmis birtust rúmlega 20 lionskarlar úr Grindavík og allnokkrir úr klúbbunum á Höfuðborgarsvæðinu og öðrum klúbbum í Árnessýslu. Nokkrum vinir og velunnarar lionsmanna voru á samkomunni.

Geysisfélagarnir f.v. Jóhannes Helgason og Bjarni Kristinssona siðameistari í eldhúsinu
Veislustjóri var Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður og fór hann á kostum. Meðal þeirra sem fluttu gamanmál voru Árni Johnsen alþiningismaður, Sveinn Sæland blómabóndi, fulltrúar Grindvíkinga og ekki síst aðalgestgjafinn Björn Sigurðsson bóndi í Úthlíð en honum var tíðrætt um að Biskupstungnamenn hefðu aldrei tapað orrustum.
Komin er á vefinn nýtt Lionsblað
Lionsblað 270 er komið á vefinn. Í því eru meðal annars grein eftir Árna V. Friðriksson fjölumdæmisstjóra og Guðrúnu Björt Yngvadóttur alþjóðastjórnarmann Lions. Myndir eru frá nýafstöðnu Norðurlandaþingi Lions sem haldið var í Reykjavík í síðastliðnum mánuði. Ritstjóri blaðsins lýsir eftir frekari fréttum af þinginu.
Sjá >>>>
Íslensk viðurkenning í samkeppni um besta friðarveggspjaldið.

Verðlaunamynd Emily Diná Fannarsdóttur 11 ára úr Gerðaskóla Garði
Emily Diná Fannarsdóttir 11 ára úr Gerðaskóla Garði er meðal þeirra 23 sem fá viðurkenningu af þeim 350.000, sem sendu inn mynd í keppnina um besta friðarveggspjaldið. Emily Diná sendi myndina inn á vegum Lionsklúbbsins í Garði. Dómnefndin dæmdi eftir sköpunarkrafti, frumleika og tilvísun til þemans „Börn þekkja frið“. Sigurvegari keppninnar var Trisha Co Reyes 13 ára stúlka frá Filippseyjum. Þau sem fengu viðurkenningu voru frá Brasilíu, Kína, Kólumbíu, Englandi, Gvam, Íslandi, Indlandi, Japan, Panama, Perú, Portúgal, Rúmeníu, lýðveldisins Suður-Afríku, Taívan, Taíland og Bandaríkjunum (Arizona, Connecticut , Georgia, Kansas, Minnesota, New Hampshire og Norður-Karólína)
Plöntum trjám
Alþjóðaforsetinn okkar 2011-2012 Wing-Kun Tam byrjaði á því að hvetja okkur Lionsfólk um allan heim að gróðursetja tré til umhverfisverndar.
Hann vissi greinilega ekki hvað við Lions erum öflug – hann setti markmið á eina milljón trjáa.
1.000.000 Tré J
Árangurinn sem við erum búin að ná með hvatningu Tam er í dag
6.657.278 Tré JJJ
Já við Lionsfélagar getum svo sannarlega glaðst yfir árangrinum.
Við sinnum svo mörgum góðum verkefnum, jafnvel verkefnum sem okkur eru orðin töm í klúbbastarfinu okkar að við veitum því varla eftirtekt hvað þessi verkefni eru mikilvæg.
Í mínum klúbbi höfum við í mörg ár gróðursett í það minnsta eitt tré á ári í lítinn gróðurlund sem við höfum afnot af. Margt smátt gerir eitt stórt – allt telur í starfi okkar.
Við vitum öll að með gróðursetningu trjáa erum við að bera umhyggju fyrir umhverfi okkar.
Ritarar okkar í klúbbunum skila í hverjum mánuði skýrslum inn á alþjóðavefinn okkar.
Það er mjög mikilvægt að setja inn upplýsingar inn á „Service Activity Report“ t.d. ef við gróðursetjum tré – þar látum við til okkar taka í talningunni.
Ég er svo sannfærð um að margir klúbbar hafa gróðursett tré og hafa ekki skráð það inn.
Við verðum öll að vera dugleg að láta vita af verkum okkar.
Styðjum umhverfið okkar, styðjum okkur sjálf , styðjum Tam alþjóðaforseta með því að tilkynna gróðursetningu klúbbanna, leyfum honum að fylgjast með hvað við erum að gera.
Ég gegni starfi sem umhverfisfulltrúi í Fjölumdæmisráði þetta starfsár.
Ég veit að flestir klúbbar eru að vinna að einhverjum umhverfismálum á hverju ári, það heyrði ég í klúbbaheimsóknum mínum á síðast liðnu starfsári.
Það er alveg frábært og ég hvet alla klúbba til að sinna slíkum störfum, þetta eru oft mjög ánægjuleg og gleðileg verkefni sem við hlúum að saman úti í náttúrunni.
Kristín Þorfinnsdóttir, umhverfisfulltrúi Lions
Medic Alert er alþjóðlegt öryggiskerfi fyrir sjúklinga
Eftir Davíð Gíslason lækni
Medic Alert var stofnað í Bandaríkjunum 1956 af lækni að nafni Marion C Collins. Þremur árum áður hafði dóttir hans fengið lífshættuleg ofnæmisviðbrögð.
Collins gerði sér grein fyrir því að aðstæður, svipaðar þeim sem dóttir hans lenti í,
geta oft komið upp og að skjót og rétt viðbrögð við mörgum sjúkdómum geta skipt verulegu máli og jafn vel ráðið úrslitum um líf eða dauða. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að sjúklingurinn beri á sér upplýsingar sem gera rétt viðbrögð möguleg. Medic Alert kerfinu er einmitt ætlað að koma að gagni
við slíkar aðstæður. Merkisberar eru nú um fjórar milljónir, 2,3 milljónir í Bandaríkjunum og 1,7 milljón í níu löndum utan Bandaríkjanna, þar sem Medic Alert er starfandi.
Sjá grein hjá Líonsklúbbi Kópavogs
Lionsklúbburinn Bjarmi á Hvammstanga afhendir neyðarbúnað
Lionsklúbburinn Bjarmi afhenti á næst síðasta degi ársins 2012 Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga neyðarbúnað sem nota á ef til þess kemur að sinna þurfi hópslysi. Í ljós kom eftir sameiginlega hópslysaæfingu í Víðidal nú íhaust að nokkuð vantaði á þann búnað sem stofnunin hefur yfir að ráða.

Á mynd frá afhendingu eru frá vinstri talið: Hólmfríður Berentsdóttir, deildarstjóri, Valdimar Gunnlaugsson formaður Bjarma, Geir Karlsson yfirlæknir, Gunnar Sveinsson gjaldkeri Bjarma, Helga Hreiðarsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur og Hörður Gylfason ritari Bjarma.
Leitað var til ýmissa félagasamtaka í héraði um að styrkja búnaðarkaupin.
Lionsklúbburinn Bjarmi kom á mjög myndarlegan hátt að þessu verkefni og
afhenti Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga í dag ýmiss konar búnað til
notkunar á vetvangi hópslysa alls að verðmæti um 300 þúsund krónur. Fram
kom í máli stjórnenda stofnunarinnar að nú væri stofnunin vel búin til að takast á við stórt útkall þó svo að vonandi komi ekki til þess. Færðu þau félögum í Bjarma innilegar þakkir fyrir rausnarlegan stuðning. Að öðrum ólöstuðum hefur Hólmfríður Berentsdóttir deildarstjóri starfað ötullega að þessum búnaðarkaupum fyrir hönd stofnunarinnar. Allmargir félagar í Lionsklúbbnum Bjarma mættu við afhendinguna til að skoða búnaðinn og var virkni hans reynd á nokkrum þeirra.
Sjá frétt hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands >>>>
Lionsþing í Reykjavík 20. og 21 apríl 2012
57. Lionsþing fjölumdæmis 109
57.Lionsþing fjölumdæmis 109 verður haldið í Reykjavík dagana 20. og 21. apríl næstkomandi. Það er fjölumdæmið sem hefur umsjón með þinginu að þessu sinni. Hér í viðhengjum eru drög að dagskrá ásamt upplýsingum um þingið og þingstörfin. Þessar upplýsingar eru ekki síst til þess að auðvelda væntanlegum þingfulltrúum að fylla út meðfylgjandi skráningarblað og kjörbréf (www.lions.is).
Mikilvægt er eyðublöðin séu vandlega útfyllt og þau berist fyrir 1. mars því þau liggja til grundvallar öllu skipulagi þingsins. Eingöngu er tekið við skráningu á viðkomandi skráningarblaði. Minnum á að framboð vegna embætta sem kosið er til þarf að skila fyrir 15.febrúar 2012. Í fjölumdæmi eru laus embætti alþjóðasamskiptastjóra 2012-‐2014, kynningarstjóra 2012-‐2014 og varafjölumdæmisstjóra 2012-‐2013. Skila skal framboðum til fjölumdæmisritara. Í umdæmum skal skila framboðum til sitjandi umdæmisstjóra.Sjá nánar í grein Árna V Friðrikssonar í desemberútgáfu LION blaðsins. Minnum einnig á að skilafrestur á málum sem óskað er eftir að leggja fyrir umdæmis- / fjölumdæmisþing er til 6.mars 2012 og skal erindum skilað til umdæmis / fjölumdæmisstjóra.
Bréf til klúbba >>>>>>
Kjörbréf >>>>>>
Skráningar eyðiblað >>>>>>
Lkl. Embla
24. janúar s.l. var hátíð í bæ hjá Lkl. Emblu, en þá var Kristínu Þorfinnsdóttir afhentur Melvin Jones skjöldurinn. Kristín gekk til liðs við Lionshreyfinguna 21. maí 1998 og varð frá fyrsta degi verðmætur liðsmaður og góður vinur. Hún hefur gegnt mörgum störfum m.a. verið gjaldkeri og formaður klúbbsins , tengslafulltrúi vegna fjölumdæmisþings og umdæmisstjóri 109A á síðastliðnu starfsári.

Mynd: f.v. Þuríður Fjóla Pálmarsdóttir formaður, Guðríður Þorbjörg Valgeirsdóttir meðmælandi Kristínar á sínum tíma og Kristín Þorfinnsdóttir fyrrverandi umdæmisstjóri.
Skötuveisla Lkl. Laugardals
Þann 23. desember síðastliðinn hélt Lkl. Laugardals í annað sinn skötuveislu sína fyrir gesti og gangandi. Veislan var haldin í matsal Menntaskólans að Laugarvatni og fór ákaflega vel fram en um 70 manns komu til að njóta matarins í góðum félagsskap. Á boðstólum var fyrstaflokks skata sem og saltfiskur fyrir þá sem það vildu heldur ásamt öllu nauðsynlegu meðlæti.

Norrænt Lionsþing á Íslandi.

Dagana 20. – 21. Janúar 2012 var Norræna Lionsþingið NSR, haldið á Radison Blu Saga Hotel (Hótel Sögu) og voru mörg fróðleg erindi og umræður í boði.
Á þingi sem þessum gefst íslenskum Lionsfélögum einstakt tækifæri til að hitta félaga sína frá hinum Norðurlöndunum, kynnast þeirra viðhorfum til Lionsstarfsins, skiptast á skoðunum við þá og ekki síst skemmta sér með þeim.
NSR þingið er ákaflega mikilvægt fyrir Norræna Lionssamstarfið og stór þáttur í að efla kynni milli landanna.
Meðal áhugaverðara dagskrárliða má nefna námsstefnur um samstarf Norðurlandanna við alþjóðlegt hjálparstarf, ungmenna, félaga- og fræðslumálefni og upplýsingatækni.
Meginþema þingsins var Framtíð og Styrkur Norrænnar Lionssamvinnu. Einróma niðurstaða var að efla skyldi samstarfið með meiri samskiptum með rafrænum hætti. Ítrekað var mikilvægi þessa að hittast minnst einu sinni á ári.
Auk fundarstarfa var boðið upp á sérstaka makadagskrá, ferð í Bláa Lónið og skoðunarferð um Reykjavík og nágrenni.
Á föstudagskvöldinu var kynningarkvöld og lokahóf á laugardagskvöldinu. Þessar skemmtanir eru mikilvægar til að efla tengsl manna á meðal. Það að hitta félaga okkar frá hinum Norðurlöndunum er skemmtileg upplifun og gefur líka tækifæri til að eignast góða vini til frambúðar.
Einnig má hafa samband við undirritaðan í síma 8966883 eða með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.

