Nýir félagar ganga til liðs við Múla á Héraði
þrír nýir félagar gengu til liðs við Lionsklúbbinn Múla núna í haust . Hér má sjá Þorgrím Vilbergsson og Magnús Helgason með formanni og ritara klúbbsins. Áður hafði Ottó Valur Kristjánsson gengið í klúbbinn.

Jólafundur Múla á Hótel Héraði
Síðasti fundur í Lionsklúbbnum Múla var haldinn á Hótel Héraði þann 21. des og var þá ákveðið að félagar gætu boðið mökum til veislu. Salurinn hafði verið skreyttur og mikið haft við. Tveir ungir tónlistarmenn spiluðu jólalögin og var gerður góður rómur að. Eftir vel heppnað kvöld fóru menn glaðir heim fullir bjartsýni og tilbúnir fyrir komandi hátíð.
Frétt frá Lionsklúbbnum Múla Héraði
Í dag hélt Lionsklúbburinn sitt árlega jólaball fyrir Héraðsbúa og nærsveitarmenn. Tókst það í alla staði vel og sérstaklega þó hjá yngst kynslóðinni sem lét mynda sig með jólasveinum sem mættu á svæðið. Sælgæti færðu þeir að sjálfsögðu börnunum auk þess sem dansað var kringum jólatré. Góður rómur var gerður að þessum viðburði og gleði skein úr hverju andliti þegar haldið var heim á leið.
