Mið.
2. nóvember 2009
Mikill kraftur í starfi Lionsklúbbs Grundarfjarðar
Klúbbstarfið hófst í september þegar ný
stjórn lagði fram starfsskrána með
funda- og verkefnaplani sem og skipan í
flokka og starfsnefndir vetrarins.
Fundað er alla jafnan fjórða miðvikudag
í mánuði í Fákaseli sem er félagsheimili
hestamanna í Grundarfirði. Fundirnir eru
matarfundir og er eldamennskunni skipt á
milli flokkanna en allir greiða fast
gjald fyrir matinn og rennur ágóðinn í
félagssjóð. Stærstu fjáröflunapóstar í
starfinu eru fermingarskeytasala hvert
vor en auk þess hefur sala á fiskisúpu á
bæjarhátíð Grundfirðinga verið drjúg
tekjulind sem og jólamarkaður sem hefur
verið að vaxa í umsvifum eftir að sala
jólatrjáa bættist við annan varning.

Laugardaginn 24. október sl. var haldinn
sérstakur kynningardagur félagasamtaka í
samkomuhúsi Grundarfjarðar og var
Lionsklúbburinn að sjálfsögðu með
kynningu á sínu starfi þar. Félagar í
Lionsklúbbi Grundarfjarðar eru nú 36
talsins af báðum kynjum. Á síðasta ári
styrkti Lionsklúbburinn starfsemi
Tónlistarskólans, Dvalarheimilisins
Fellaskjóls auk þess að styrkja
fjölskyldu langveiks drengs. Formaður
Lionsklúbbs Grundarfjarðar er Ragnheiður
Þórarinsdóttir.
Mið.
2. nóvember 2009
Starfið komið á fullt hjá Muninn í Kópavogi
Starfið hófst af krafti í haust með
sjóstangaveiði og kirkjuferð aldraðra og
framundan eru sykursýkismæling með öðrum
Lionsklúbbum í Kópavogi. Lesið nánar um
starfið í Muninn með því að
smella hér.

Mið.
14. október 2009
Frábær árangur Lkl. Önundarfjarðar í
fjölgunarmálum
Lionsklúbbi
Önundarfjarðar hefur aldeilis tekist að
blása meira lífí í klúbbinn á þessu ári
með fjölgun félaga. Þeim hefur tekist að
fjölga félagsmönnum um 10 eða frá því að
vera 11 talsins, í byrjun janúar á 2009,
upp í 21 nú í október.

Nú á seinasta fundi
voru 4 teknir inn í Lionsklúbb
Önundarfjarðar en hinir nýju meðlimir
eru: Teitur Björn Einarsson, Hinrik
Rúnar Haraldsson, Jón Magnússon og
Gunnar Ævar Jónsson. Viðstaddur fundinn
var Kristinn Hannesson, umdæmisstjóri
109B. Kristinn hélt smá erindi fyrir
fundargesti og hafði meðal annars orð á
því hversu ánægður hann væri með Lkl.
Önundarfjarðar að hafa frá stofnun
klúbbsins séð um blysför Flateyringa að
áramótarbrennum þeirra ásamt því að hafa
tekið þátt í uppbyggingu ýmissa verkefna
á Flateyri og nágrenni.

Þó fjölgun félaga hafi
verið vonum framar að þá stefna meðlimir
á að gera enn betur í nánustu framtíð.
Grétar Eiríksson Lkl. Önundarfjarðar.
Fös.
12. júní 2009
Glæsilega myndir í
ljósmyndasamkeppni Lions
Nýlega var haldin
alþjóðleg náttúruljósmyndasamkeppni
Lions og hlutu nokkrar myndir
viðurkenningar hér á landi.



Þri.
17. mars
2009
Kútmagakvöld Lionsklúbbs Grindavíkur
Lionsklúbbur Grindavíkur heldur hið
margumtalaða Kútmagakvöldi föstudaginn
27. mars nk. Kl; 18:00, og er þetta
kvöld stærsta fjáröflun klúbbsins. Boðið
er upp á yfir 50 rétta
sjávarréttahlaðborð auk fjöldi annarra
skemmtiatriða. Skemmtun þessi hefur
alltaf verið vel sótt og hafa færri
komist að, en viljað. Hægt er að fara
inná
heimasíðu klúbbsins og skoða
auglýsingu um Kútmagakvöldið.
Lau.
22. nóvember
2008
Hagyrðingakvöld í Aratungu
Hagyrðingakvöld í Aratungu.
Lionsklúbburinn Geysir í Biskupstungum
stóð fyrir hagyrðingakvöldi
laugardagskvöldið 15. nóvember
síðastliðinn. Þessi vel heppnaða
menningarsamkoman var haldin í
félagsheimilinu Aratungu í
Biskupstungum. Einvalalið hagyrðinga var
kallað til. Það var skipað Hjálmari
Jónssyni Dómkirkjupresti, Jóni
Kristjánssyni fyrrverandi alþingismanni,
Sigurjóni Jónssyni frá Skollagróf í
Hrunamannahreppi, Jóni Ingvari Jónssyni
hugbúnaðarfræðingi og Sigrúnu
Haraldsdóttur Húnvetningi og hestakonu.
Þarna var dýrt kveðið og oft á tíðum
fast skotið. Samkoman var vel sótt og
auðfundið að gestir skemmtu sér
virkilega vel. Svo mikið var hlegið að
dæmu voru um að menn væru þjakaðir af
magaverkjum næstu daga á eftir. Þegar
presturinn var kominn á mikið flug orti
Sigurjón:
Nú
Dómkirkjuprestur er dottinn í
stuð
Og djöfull erfitt að topp´ann
En almáttugur elsku guð
Ertu nú til í að stopp´ann

Frá vinstri : Hjálmar Jónsson,
Sigurjón V. Jónsson, Jón Kristjánsson,
Sigrún Haraldsdóttir, Ólafur G Einarsson
og Jón Ingvar Jónsson.
Það var enginn annar
er Ólafur G Einarsson fyrrverandi
ráðherra og forseti Alþingis sem
stjórnaði hópnum. Hann sýndi
snilldartakta í sýnu hlutverki og
laumaði hann að mörgum góðum sögum sem
vöktu ekki minni kátínu en
kveðskapurinn. Þetta er í fyrsta sinn
sem klúbburinn stendur fyrir samkomu af
þessu tagi. Hagyrðingarnir og
liðstjórinn gáfu vinnu sína og
sveitarfélagið lánaði húsið
endurgjaldslaust. Klúbbfélagar kunna
bestu þakkir fyrir. Ágóði af samkomunni
rennur að sjálfsögðu til líknarmála.
Stjórn Lk Geysis.
Fim.
20. nóvember
2008
Lionsmenn gáfu Hlévangi tækjabúnað

Lionsklúbbur Njarðvíkur
færði í gær hjúkrunarheimilinu Hlévangi
tæki að gjöf að andvirði 1,5 milljónum
króna. Um er að ræða tvö tæki, annars
vegar fullkominn mæli sem mælir magn í
þvagblöðru og sparar marga
sjúkrahúsferðina að sögn þeira sem til
þekkja. Hitt tækið er súrefnissía sem
framleiðir súrefni úr andrúmsloftinu og
leysir af hólmi fyrirferðarmikla
súrefniskúta auk þess að minnka kostnað
vegna kútaleigu og súrefniskaupa.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Lionsmenn í Njarðvík koma færandi hendi
til Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum
því áður hafa þeir m.a. gefið lyftara og
svokallaða skutlu. Klúbburinn á 50 ára
afmæli á þessu ári.
Líknarsjóður klúbbsins hefur verið
fjármagnaður með árlegu bílahappadrætti
sem klúbburinn stendur fyrir á
aðventunni. Suðurnesjamenn hafa ávallt
stutt nálefnið dyggilega og er það von
félagsmanna að svo verði einnig nú þegar
sala á happadrættismiðunum hefst á
næstunni.