Þri.
9. júní 2009
Glænýtt Lionsblað
á vefnum - síðasta blað starfsársins
Komið er
á netið nýjasta eintak Lions með fjölbreyttu og skemmtilegu efni. Smelltu
hér til að skoða nýjasta blaðið og
eldri blöð líka.
Fim.
26. mars 2009
Lionshreyfingin
samþykkir myndarlegt framlag til Hjartaheilla!
Lionshreyfingin hefur samþykkt einnar milljónar króna framlag til samtakanna
Hjartaheilla sem ætlunin er að afhenda í beinni útsendingu í
söfnunarþætti samtakanna á Stöð 2 á laugardaginn. Með framlagi
sínu vill Lionshreyfingin veita samtökunum mikilvægan stuðning
til málefnis sem skiptir alla Lionsfélaga og aðra landsmenn
miklu máli.
Fim.
26. mars 2009
Framlag úr Hjálparsjóði Lions,
vegna eineltisverkefnis, samþykkt
Lionshreyfingin hefur samþykkt að styðja við eineltisverkefni
sem er í umsjá Lionsklúbbsins Úlfars.
Fim.
26. mars 2009
Skráningarfrestur á Lionsþingið
rennur út 31. mars 2009 - Bókaðu þig núna!
Vakin er athygli á því að skráningarfrestur á Lionsþingið rennur
út um mánaðarmótin. Það er því ekki seinna vænna að skrá sig til
þings á Selfossi. Allar nánari upplýsingar og skráningareyðublað
má fá með því að
smella
hér.
Sun.
15. mars 2009
Ráðstefna á vegum Lions: Áhrif
kreppunnar á börn og unglingar
Ráðstefna Lions um
þarfir barna og unglinga var haldin í Norræna húsinu fimmtudaginn
12. mars 2009 kl. 16:30-18:30. Ráðstefnan tókst í alla
staði vel og mikil ánægja með þetta framtak Lions.
Smelltu hér
til að skoða myndir og erindi Guðrúnar Yngvadóttur og
hér til að skoða
dagskrá ráðstefnunnar.
Þri.
10. mars 2009
Áríðandi tilkynning frá
þingnefnd til ritara sem mæta á þingið á Selfossi
Þingnefnd hefur
fengið samtöl og skilaboð frá nokkrum væntanlegum þátttakendum í
ritaraskólanum á Lionsþinginu á Selfossi vegna þess, sem fram
kemur í bréfi þingnefndarinnar til Lionsklúbbanna 29. janúar
sl., að þátttakendur í ritaraskólanum þurfi að koma með fartölvu
með þráðlausum netaðgangi. Væntanlegir ritarar klúbbanna þurfa
ekki að láta það hamla þáttöku í ritaraskólanum þótt þeir hafi
ekki slíka tölvu. Þingnefndin hefur þegar tryggt sér afnot af 16
slíkum tölvum fyrir þátttakendur sem ekki eiga fartölvu og mun
skaffa fleiri ef þörf krefur. Því eru þeir þátttakendur sem ekki
koma með fartölvu beðnir um að láta þingnefndarmenn vita um það
með góðum fyrirvara.
Þri.
3. mars 2009
Glænýtt Lionsblað
á vefnum
Komið er
á netið nýjasta eintak Lions með fjölbreyttu og skemmtilegu efni. Smelltu
hér til að skoða nýjasta blaðið og
eldri blöð líka.
Þri.
3. mars 2009
Stofnfundur fyrsta
Internet-Lionsklúbbsins 6. mars kl. 20:00 í Lionsheimilinu
Stofnfundur fyrsta Internet-Lionsklúbbsins á Íslandi verður
haldinn föstudaginn 6. mars kl. 20:00-21:30 í Lionsheimilinu,
Sóltúni og á "Netinu" (að sjálfsöguðu) (þeir sem ekki komast á
fundinn, geta hringt sig inn með Skype).
Félagar nýja klúbbsins eru fyrrverandi Leofélagar. Í dag eru 37
félagar skráðir í klúbbinn, þar af 4 sem búa erlendis og 4 úti á
landi, sem kemur ekki að sök, þar sem samskiptin verða aðallega
á Netinu. Meðalaldur félaganna er 31 ár, um 1/3 félaganna eru
strákar og 2/3 stelpur, svo meðalaldur Lions á Íslandi lækkar og
konum fjölgar - þetta er allt í áttina.
Lau.
8. febrúar 2009
54. Þing Lionshreyfingarinnar á
Selfossi 22. og 23. maí
Allar nánari upplýsingar ásamt skráningarblöð og kjörbréf má fá
með því að
smella hér.
Mán.
8. desember 2008
Glæsilegt jólablað Lionsblaðsins
á vefnum
Komið er
á netið jólablað Lions með fjölbreytti og skemmtilegu efni. Smelltu
hér til að skoða nýjasta blaðið og
eldri blöð líka.
Mán.
8. desember 2008
Melvin Jones Hátíðarkvöldverður
31. janúar 2009
Þann 31. janúar
2009 verður haldinn, í fyrsta sinn á Íslandi, hátíðarkvöldverður
í minningu Melvin Jones stofnanda Lionchreyfingarinnar.
Kvöldverðurinn verður í Lionsheimilinu Lundi Auðbrekku 25 – 27
Kópavogi og hefst kl. 19.00 með fordrykk.
Matseðill
-
Fordrykkur:
Litríkt freyðivínsstél með ferskum ávöxtum
-
Sítrónulegnar
laxasneiðar með rósapipar og sikileyskri ólífuolíu
-
Humarseyði
-
Kóríander- og
timjangrafinn kindavöðvi með púrtvínssultu
-
Léttsteiktar
hunangslegnar andabringur og villikryddað lambafillé með
plómusósu, grænmeti og döðlum
-
Heimalöguð
cognacssúkkulaðimousse með bláberjasósu
Glæsileg
skemmtiatriði.
Allur ágóði af hátíðarkvöldverðinum rennur til LCIF og
Hjálparsjóðs Íslensku Lionshreyfingarinnar.
Lionsfélagar er hvattir til að mæta og sýna samstöðu í
Lionsstarfinu.
Sala aðgöngumiða er á skrifstofu Lionshreyfingarinnar í Sóltúni
20, sími 561-3122, opnunartími er frá kl. 9.00 til 15.00 alla
daga nema þriðjudaga er opið frá kl. 9.00 til kl. 18.00.
Miðaverð er aðeins kr. 6.900.-
Þri.
25. nóvember 2008
Lionsklúbbur
Seyðisfjarðar bloggar
Já, nú er einn Lionsklúbbur, allavega, farinn að blogga. Þið
getið fylgst með blogginu með því að
smella hér.
Þri.
3. nóvember 2008
Stórtónleikar 13.
nóvember til styrktar BUGL og líknarsjóði Fjörgynjar
Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir tónleikum til styrktar
barna- og unglingageðdeild LSH og líknarsjóði Fjörgynjar þann
13. nóvember í Grafarvogskirkju kl. 20:00. Mikill fjöldi
landsþekktar tónlistarmanna kemur fram og styrkir verkefnið.
Allar nánari upplýsingar um tónleikana má finna með því að
smella hér.
Lau.
1. nóvember 2008
Samfundur í
Lionsheimilinu laugardaginn 15. nóvember næstkomandi
Sameiginlegur
fundur fyrir alla Lionsfélaga verður haldinn í Lionsheimilinu,
Sóltúni 20, laugardaginn 15. nóvember. Fundurinn hefst kl. 14.00
og verður lokið eigi síðar en kl. 16:00. Til umræðu verða
málefni og verkefni Lionshreyfingarinnar.
Kaffiveitingar
verða í boði á fundinum.
Lau.
1. nóvember 2008
Íslenska Lionshreyfingin bjargar sjón 91.000 einstaklinga með
SightFirst II
Íslenska
Lionshreyfingin hefur nú safnað 545.922 USD til alheimssöfnunar
Lionshreyfingarinnar, Sight First II,
eða sem nemur 1,75 USD fyrir hvern íbúa landsins. Ekkert annað
land hefur staðið sig betur að sögn Kristins Hannessonar sem
stýrt hefur þessu söfnunarátaki hér á landi. Meðalframlag á
hvern Liosfélaga á Íslandi er 244 USD sem er einstakt í heiminum.
Fyrir 6 USD framlag má bjarga sjón einstaklings þannig að þetta
framlag getur bjargað sjón 90.820 einstaklinga.
Lau.
1. nóvember 2008
Næsta þing norrænna Lionshreyfinga, NSR, haldið í Noregi 16.-18.
janúar 2009
NSR þingið
verður að þessu sinni haldið í Hurdal í Noregi og má fá allar
nánari upplýsingar um þingið með því að
smella hér.
Mið.
29. október 2008
Nýjasta tölublað Lionsblaðsins
á vefnum
Blaðið er fullt af
skemmtilegu efni og áhugaverðum fréttum fyrir Lionsfélaga. Smelltu
hér til að skoða nýjasta blaðið og
eldri blöð líka.
Mið.
29. október 2008
Næsta þing
íslensku Lionshreyfingarinnar á Selfossi 22.-23. maí 2009
54. þing
Lionshreyfingarinnar á Íslandi verður haldið á Selfossi 22. og
23. maí 2009 í boði Lionsklúbbsins Emblu og Lionsklúbbs Selfoss.
Þingstaðurinn verður Hótel Selfoss og þar verða jafnframt
haldnir skólar embættismanna. Allar nánari upplýsingar um þingið
verða birtar hér þegar nær dregur.
Föst.
12. september 2008
Rauð fjöður: Fjórir leiðsöguhundar afhentir blindum við
hátíðlega athöfn
Í
dag var fjórum blindum einstaklingum afhentir leiðsöguhundar sem
hlotið hafa sérstaka þjálfun til þess. Fé sem safnaðist í söfnun
Rauðrar fjaðrar í vor rann allt til þessa verkefnis, rétt um 13
milljónir en það kostar um 6 milljónir að þjálfa hvern hund.
Daníel G. Björnsson, fjölumdæmisstjóri, afhenti einn hundanna og
hélt við það tækifæri ræðu þar sem hann nefndi mikilvægi starfs
Lionsfélaga að málefnum blindra um allan heim og kynnti
þátttakendum Sight First II verkefnið í stuttu máli.
Mjög góður rómur var gerður að framlagi Lionshreyfingarinnar til
þess að gera Blindrafélaginu kleift að kaupa þessa fjóra hunda.
Föst.
12. september 2008
Aukin þjónusta á skrifstofunni - opið lengur á þriðjudögum og
fyrr á morgnana
Frá og með 15. september verður
skrifstofa Lionshreyfingarinnar opin frá kl. 9:00 á morgnana til
kl. 15:00 alla virka daga en til þessa hefur verið opnað kl.
10:00. Sú nýjung er líka tekin upp, til reynslu fram að
áramótum, að hafa opið 9:00-18:00 á þriðjudögum.
Fim.
31. ágúst 2008
Fleiri konur í Lions, blandaðir
klúbbar og verkefni í Malaví
Albert
„Al" Brandel, alþóðaforseti Lionshreyfingarinnar, heims
ótti
Ísland dagana 29.-31. ágúst ásamt konu sinni, Maureen Murphy, en
hún er læknir að mennt. Albert var kjörinn alþjóðaforseti
hreyfingarinnar, fyrir tímabilið 2008-2009, á heimsþingi Lions
sem haldið var í Bangkok 23.-27. júní síðastliðinn. Auk þess að
hafa verið félagi í Lionshreyfingunni í 33 ár hefur Al Brandel
gegnt mörgum trúnaðarstörfum og m. a. setið í stjórn félags
Sameinuðu þjóðanna í BNA.
Hér á landi heimsóttu forsetahjónin nokkra staði þar sem
Lionshreyfingin hefur látið gott af sér leiða og áttu fundi með
menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, um Lions
Quest námsefnið, sem notað er í íslenska skólakerfinu, og
menningar- og umhverfisverkefni á vegum Lions á Íslandi. Þau
heimsóttu einnig Hlein og Rjóður sem notið hafa góðs af fé sem
safnast hefur í Rauðu fjaðrar söfnunum á vegum
Lionshreyfingarinnar.
Alþjóðaforseti átti fund með yfirstjórn íslensku
Lionshreyfingarinnar og hitti Lionsfélaga í kvöldverðarboði í
Kópavogi. Hér á landi eru 0,7% þjóðarinnar í Lionshreyfingunni
og stendur engin þjóð Íslendingum framar hvað það varðar. Þetta
er einstakt að mati Al Brandel og segir hann alþjóðahreyfinguna
get lært margt af því hvernig íslenskt Lionsfólk vinnur að
líknar- og félagsmálum.
Í
samtali við Morgunblaðið sagði Al Brandel að eitt stærsta
verkefni Lions væri sjónvernd, en sérstakt átak Sight First II,
er nú í gangi til að safna fé til sjónverndar um allan heim.
Íslendingar hafa til þessa lagt fram 545.000 USD til Sight first
II sem er það mesta í Evrópu ef miðað er við fjölda íbúa. Hér á
landi hitti hann Einar Stefánsson, prófessor, og ræddi við hann
um sjónvernd. Hreifst Al Brandel mjög af því hversu framarlega
Íslendingar standa í þessum málum og vill hann vinna að því að
Íslenskir augnlæknar komi að sjónverndarverkefni í Malaví með
tilstyrk LCIF, alþjóða hjálparsjóðs Lions, og Sight First II
átaksins.
Annað áhersluatriði alþjóðaforseta Lionshreyfingarinnar er að
fjölga konum í Lionshreyfingunni en hún telur nú 1,3 milljónir
félaga í meira en 190 löndum. Vel hefur miðað í því á
undanförnum árum að laða að konur til starfa í Lions og standa
Íslendingar nokkuð vel á því sviði. Al Brandel leggur mikla
áherslu á að stofnað verði til blandaða klúbba karla og kvenna
innan Lionshreyfingarinnar, það sé hin nýja leið sem falli vel
að fjölskylduvænni stefnu Lions.
Að lokum sagði Al Brandel að Íslenska Lionshreyfingin væri til
fyrirmyndar í öllum störfum sínum og hvatti fólk sem vill láta
gott af sér leiða í skemmtilegum félagsskap að ganga til liðs
við Lions.
Fim.
28. ágúst 2008
Leiðtogaskóli Lions kynnir nýtt
námskeið
Námskeiðið heitir "Viltu hafa áhrif á það
hvernig hjólin snúast. - Leiðtogar og lærdómur" og er einkum
ætlað þeim sem lokið hafa Leiðtoganámskeiði Lions og/eða þeim
sem gegna embættum á vegum hreyfingarinnar. Námskeiðið verður
haldið 25.-26. október og 8.-9 nóvember og er takmakaður
þátttakendafjöldi. Allar nánari upplýsingar má fá með því að
smella hér.
Mán.
28. júlí 2008
Andlát Arnar Gunnarssonar,
fjölumdæmisritara
Örn Gunnarsson fjölumdæmisritari og
vefsíðustjóri Lions á Íslandi lést 12. ágúst 2008, eftir stutt
en erfið veikindi. Örn var umdæmisstjóri 109A 2000-2001 og
fjölumdæmisstjóri 2001-2002. Jóhanna Valdemarsdóttir,
eftirlifandi eiginkona Arnar, er fræðslufulltrúi í umdæmisstjórn
109A. Við vottum henni, og fjölskyldu hennar okkar innilegustu
samúð.
Mán.
28. júlí 2008
Heimsókn alþjóðaforseta 29.-31.
ágúst
Alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar, Al
Brandel, kemur hingað til lands 29. ágúst og fer sunnudaginn 31.
ágúst. Með honum í för er eiginkona hans Maureen Murphy sem er
læknir.
Kvöldverður með alþjóðaforseta 29.
ágúst
Fjölumdæmisstjórn hefur ákveðið að gefa öllu Lionsfólki tækifæri
til að hitta þau í kvöldverðarboði í Lionsheimilinu Lundi
Auðbrekku 25 -27 Kópavogi föstudagskvöldið 29. ágúst kl. 19.00
Matseðill kvöldsins er:
Forréttur: 2 tegundir af mousse (reyktur lax og ferskur
silungur) með sósum
Aðalréttur: lambalæri með öllu tilheyrandi meðlæti.
Verð kr: 3000.-
Leikhópurinn Perlan hefur verið fenginn til að skemmta á sinn
einlæga hátt.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga
kvöldstund með alþjóðaforsetahjónunum. Vinsamlegast látið vita á
netfangið
dgb@heimsnet.is
eða í síma 897 2593 fyrir 20. ágúst.
Einnig má hafa samband við Lionsskrifstofuna í síma 561 3122,
eða senda póst á
lions@lions.is með nafni, símanúmeri og fjölda miða sem
óskað er eftir.
Þri. 21. maí. 2008
Lionsklúbbur Vestmannaeyja með vef
Lionsklúbbur
Vestmannaeyja hefur opnað nýjan vef. Við hvetjum Lionsfélaga um
allt land að skoða vefinn með því að smella
hér.
Mán. 22. maí. 2008
Afhending Rauðrar fjaðrar
Á
aðalfundi Blindrafélagsins sem haldinn var í húsi félagsins að
Hamrahlíð 17, laugardaginn 17. maí afhenti Lionshreyfingin á
Íslandi, formanni Blindrafélagisins afrakstur af sölu Rauðu
fjaðrarinnar, landssöfnunar Lionshreyfingarinnar, sem stóð yfir
dagana 3. til 6. apríl s.l. Söfnunin fékk góðar undirtektir bæði
hjá einstaklingum og fyrirtækjum og tókst vel.Alls söfnuðust
12.917.000 og að frádregnum kostnaði þá koma 12.500.000 í hlut
Blindrafélagsins og mun fara í leiðsöguhundaverkefni þess, en í
haust eru væntanlegir til landsins 4 leiðsöguhundar sem
þjálfaðir eru í Noregi. Þeim til viðbótar koma 2 hundar til
landsins á næsta ári en hafa ber í huga að þjálfun leiðsöguhunds
tekur um eitt ár. Landsbankinn var aðal styrktaraðilinn og lagði
eina milljón í söfnunina. Það gerð meira en greiða allan kostnað
þannig að hver einasta króna sem aðrir lögðu í söfnunina skilar
sér beint til Blindrafélagsins. Lionshreyfingin á Íslandi og
Blindrafélagið þakka Lionsfólki og landsmönnum öllum þann
höfðingsskap og velvild sem þau sýndu við söfnun þessarar háu
fjárhæðar og senda alúðarkveðjur til allra sem að málinu komu.
Við þetta bætast kr 400.000 sem safnast hafa síðan þessi
afhending fór fram.
Þri. 29. apríl. 2008
Farsælu 53. þingi
Lionshreyfingarinnar lokið
Fimmtugasta og þriðja Lionsþing fjölumdæmis 109 var haldið í
Reykjavík dagana 25. og 26. apríl síðastliðinn á Grand Hótel
Reykjavík. Eftirtaldir voru kjörnir til lykilembætta í
hreyfingunni.
Fjölumdæmisstjóri Daníel G. Björnsson, Lkl. Muninn, Kópavogi.
Umdæmisstjóri 109 A Guðrún Björt Ingvadóttir, Lkl. Eik,
Garðabæ.
Umdæmisstjóri 109 B Árni Viðar Friðriksson, Lkl. Hæng,
Akureyri.
Varaumdæmisstjóri 109 A Guðmundur Oddgeirsson, Lkl.
Þorlákshafnar.
Varaumdæmisstjóri 109 B er Kristinn Hannesson, Lkl. Mosfellsbæjar.
Fjölumdæmisgjaldkeri Halldór Kristjánsson, Lkl. Ásbirni.
Nánari fréttir af
þinginu má lesa í maítölublaði
Lionsblaðsins.
Þri. 22. apr. 2008
53. Lionsþing - dagana 25. og 26. apríl
2008
Fimmtugasta og þriðja Lionsþing fjölumdæmis 109 verður haldið í
Reykjavík dagana 25. og 26. apríl næstkomandi. Að þessu sinni er
þingið í umsjá fjölumdæmisráðs. Þinghaldið,
embættismannaskólarnir og námsstefnurnar verða á Grand Hóteli í
Sigtúni og í Lionsheimilinu í Sóltúni (göngubrú er yfir
Kringlumýrarbrautina).
Í framboði til embættis
fjölumdæmisstjóra er Daníel G. Björnsson, Lkl. Muninn, Kópavogi.
Í framboði til embættis
umdæmisstjóra 109 A er Guðrún Björt Ingvadóttir, Lkl. Eik,
Garðabæ.
Í framboði til embættis
umdæmisstjóra 109 B er Árni Viðar Friðriksson, Lkl. Hæng,
Akureyri.
Í framboði til embættis
varaumdæmisstjóra 109 A er Guðmundur Oddgeirsson, Lkl.
Þorlákshafnar.
Í framboði til embættis
varaumdæmisstjóra 109 B er Kristinn Hannesson, Lkl. Mosfellsbæjar.
Í framboði til embættis
fjölumdæmisgjaldkera er Halldór Kristjánsson, Lkl. Ásbirni.
Rauð fjöður 2008

Landssöfnun 3. til 6. apríl
í
samvinnu við Blindrafélagið
Leiðsöguhundar fyrir blinda
LÉTTUM ÞEIM LÍFIÐ
Lionshreyfingin á Íslandi
Fréttatilkynning frá Rauðufjaðrarnefnd 2008
Formlegt upphaf:
Fimmtudaginn 3.
apríl sl. kl. 15:00 opnaði
heilbrigðisráðherra, hr Guðlaugur Þór Þórðarson Landssöfnun
Lionshreyfingarinnar með því að setja 1.000 króna seðil í
söfnunarbauk í hendi Friðgeirs Jóhannessonar og tók síðan Rauða
fjöður úr beisli Errós leiðsöguhundar Friðgeirs.
Athöfnin átti sér stað í Opnu húsi hjá Blindrafélaginu í Hamrahlíð
17. kl. 15:00 opnaði heilbrigðisráðherra, hr Guðlaugur Þór
Þórðarson Landssöfnun Lionshreyfingarinnar með því að setja 1.000
króna seðil í söfnunarbauk í hendi Friðgeirs Jóhannessonar og tók
síðan Rauða fjöður úr beisli Errós leiðsöguhundar Friðgeirs.
Við
þetta tækifæri hélt Heilbrigðisráðherra ávarp
og lýsti þar þakklæti yfir að fá tækifæri til að opna
landssöfnunin okkar. Ráðuneytið hefur verið í
nánu og góðu samstarfi við Blindrafélagið sem nú
er að skila sér í því að nú eru að koma til landsins
fjórir leiðsöguhundar frá Noregi. Að lokum
þakkaði ráðherra Lionsmönnum fyrir framtakið og
vænti þess að landsmenn tækju nú vel á móti þeim.
Björgúlfur Þorsteinsson fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi tók nú
til máls og kom meðal annar inn á það hvernig Helen Keller,
daufblind konan ,hafi heillað lionsmenn upp úr skónum á heimsþingi
hreyfingarinnar 1925 og hvatti okkutr til að útnefna okkur
„Riddara hinna blindu“. Björgúlfur var sigurviss og hvatti
Lionsmenn til dáða nú um helgina.
Að
lokum sté svo í pontu Halldór
Sævar Guðbergsson formaður
Blindrafélagsins og færði hann þakkir
til Heilbrigðisráðuneytis og sérlega
til þeirra Sifjar Friðleifsdóttur fyrrum
ráðherra og Guðlaugs Þórs Þórðarsonarnúverandi heilbrigðisráðherra og að
lokum þakkaði hann stórhug Lionsmanna
að vilja koma að þessu mikilvæga verkefni
með Blindrafélaginu.
Bankareikningur söfnunarinnar:
Reikningur söfnunarinnar er 0111-15-380460 og
kennitala: 640572-0869 og má hér leggja inn frjáls framlög
til hennar.
Rauðu fjaðrar nefnd 2008:
Guðmundur Rafnar
Valtýsson – sími: 895 8424 – netfang:
grv@ismennt.is
Sigurjón Einarsson – sími: 824 8820 – netfang:
se@ismennt.is
Valdimar Þorvaldsson – sími: 899 9755– netfang:
valdith@aknet.is
Landsbankinn
er
fjárgæslu- og aðalstyrktaraðili söfnunarinnar
Þri. 1. apríl 2008
Nýr Lionsklúbbur í Reykjavík
með konum af erlendum uppruna
Nýr Lionsklúbbur, Aþena með konum af
erlendum uppruna var stofnaður sunnudaginn 30. mars sl.
Stofnfundurinn var í Lionsheimilinu, Sóltúni 20.
Stofnfélagar eru konur á mismunandi aldri. Þær hafa búið
lengi á Íslandi og margar þeirra skilja og tala íslensku.
Þær eru margar íslenskir ríkisborgarar og vilja vera virkir
Íslendingar.
Undirbúningur þessa stofnfundar hefur verið síðan í október sl.
Stofnskrárhátíð verður haldin innan 90 daga og verður kynnt nánar
síðar.
Alþjóðaforseti Lions hvetur til breytinga og hann hvetur okkur
til að bjóða fólki af erlendum uppruna í Lions.
Hann vill gera Lionshreyfinguna fjölmenningarlegri, svo hún
endurspegli betur samfélagsmyndina. Við stofnum nýja klúbb með
nýju fólki, sem mótar klúbbinn sinn í takt við tímann og að sínu
skapi.
Um leið og við bjóðum fólk af erlendum uppruna velkomið inn í
hreyfinguna, er Lions að stíga ný skref inn í fjölmenningarlegt
samfélag. Nýjir félagar sem fá tækifæri til að stofna nýja klúbba
með þeim áherslum sem hentar þeim og nýjum, breyttum tímum, þeir
leggja sitt af mörkum til að Lionshreyfingin á Íslandi verði í
takt við tímann. Við þurfum ekki að vera hrædd við breytingar, við
eigum að sjá tækifæri í breytingum eins og alþjóðaforseti Mahendra
Amarasuriya segir, og hvetur hann til breytinga “Challenge to
Change”.
Sun. 2. mars 2008
Nýr Lionsklúbbur í Reykjavík
með fólki af erlendum uppruna
Lionsklúbburinn Concordia í Reykjavík var stofnaður sunnudaginn
24. febrúar í Lionsheimilinu í Reykjavík.
Stofnfélagar eru 20 konur og karlar, á aldrinum 18–51 árs, en
meðalaldur 36 ára. Flestir félagaranir eru af pólskum uppruna, en
einnig eru Íslendingar meðal félagsmanna. Stjórn klúbbsins skipa:
Eva Agata Alexdóttir formaður, Flosi Sigurðsson ritari, Beata
Tarasiuk gjaldkeri og Piotr Karol Murawski formaður félaganefndar
og varaformaður. Krzystof Kotlarz er ljósmyndari og fréttaritari
klúbbsins. Móðurklúbbur er Lionsklúbburinn Eik í Garðabæ og eru
“leiðsöguljón” (Guiding Lion) þær Lilja Guðrún Hallgrímsdóttir og
Guðrún Björt Yngvadóttir. Lkl Concordia tilheyrir svæði 7 í umdæmi
109A.
Okkar
nýju pólsku félagar hafa búið lengi á Íslandi og eru sestir hér að
til frambúðar. Þau skilja og tala íslensku og eru mörg íslenskir
ríkisborgarar og vilja vera virkir Íslendingar. Undirbúningur
þessa stofnfundar er búinn að vera síðan í október.
Stofnskrárhátíð verður haldin innan 90 daga og verður kynnt nánar
síðar.
Alþjóðaforseti Lions hvetur til breytinga og hann hvetur okkur
til að bjóða fólki af erlendum uppruna í Lions.
Hann vill gera Lionshreyfinguna fjölmenningarlegri, svo hún
endurspegli betur samfélagsmyndina. Við stofnum nýja klúbb með
nýju fólki, sem mótar klúbbinn sinn í takt við tímann og að sínu
skapi.
Um leið og við bjóðum fólk af erlendum uppruna velkomið inn í
hreyfinguna, er Lions að stíga ný skref inn í fjölmenningarlegt
samfélag. Nýjir félagar sem fá tækifæri til að stofna nýja klúbba
með þeim áherslum sem hentar þeim og nýjum, breyttum tímum, þeir
leggja sitt af mörkum til að Lionshreyfingin á Íslandi verði í
takt við tímann. Við þurfum ekki að vera hrædd við breytingar, við
eigum að sjá tækifæri í breytingum eins og alþjóðaforseti Mahendra
Amarasuriya segir, og hvetur hann til breytinga “Challenge to
Change”.
Guðrún Björt Yngvadóttir,
varaumdæmisstjóri 109 A
Lkl. Eik Garðabæ
Þri.
26. feb. 2008
Ný heimasíða MedicAlert®
Sett hefur verið upp ný heimasíða fyrir MedicAlert.
Slóðin er
www.medicalert.is Einnig má fá upplýsingar um
MedicAlert með því að smella á "Verkefni" hér efst á síðunni.
Sun.
24. feb. 2008
Framboð til embætta
fjölumdæmisstjóra og varaumdæmisstjóra 2008 - 2009
Þann 15. febrúar sl. rann út frestur til að bjóða sig fram
til embætta fjölumdæmisstjóra og umdæmisstjóra í A og B umdæmi.
Borist hefur eitt framboð í embætti fjölumdæmisstjóra, en það er
frá Daníel G. Björnssyni, Lkl. Muninn í Kópavogi.
Daníel hefur gegnt mörgum embættum fyrir Lionshreyfinguna í gegnum
tíðina. Ber þar hæst embætti umdæmisstjóra í 109 A,
starfsárið 2002 - 2003.
Guðmundur Oddgeirsson, Lkl. Þorlákshafnar
hefur boðið sig fram til embættis vara-umdæmisstjóra fyrir umdæmi 109 A.
Guðmundur hefur gegnt ýmsum embættum fyrir sinn klúbb og meðal
annar verið þrívegis formaður á undanförnum árum.
Kristinn Hannesson, Lkl. Mosfellsbæjar hefur boðið
sig fram til embættis varaumdæmisstjóra í umdæmi 109 B.
Kristin þekkja margir enda hefur hann verið í framlínu
Lionshreyfingarinnar í mörg ár. Má þar nefna að hann gegndi
lengi embætti unglingaskiptastjóra í fjölumdæmi og nú stýrir hann
SightFirst II söfnuninni hér á landi.
Þri. 19. feb. 2008
Framboð til umdæmisstjóra 2008 -
2009 í umdæmi 109 B
S. Valdimar
Bragason, Lkl. Dalvíkur sem gegnt hefur embætti varaumdæmisstjóra
þetta starfsár, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til embættis
umdæmisstjóra á næsta starfsári. Árni V. Friðriksson,
Lkl. Hæng, Akureyri hefur gefið kost á að hlaupa í skarðið og
verða umdæmisstjóri í B - umdæmi á næsta starfsári.
Lau. 9. feb. 2008
Lionsklúbburinn Muninn með nýja
heimasíðu
Lionsklúbburinn Muninn í Kópavogi hefur opnað nýja heimasíðu. Opna má
síðuna með því að fara inn á listann "Klúbbar á netinu" hér til
vinstri, eða einfaldlega með því að smella
hér
>>
Fim. 31. jan. 2008
Lionsklúbbur Grundarfjarðar með nýja
heimasíðu
Lionsklúbbur Grundarfjarðar hefur opnað nýja heimasíðu. Opna má
síðuna með því að fara inn á listann "Klúbbar á netinu" hér til
vinstri, eða einfaldlega með því að smella
hér
>>
Mið.23. jan. 2008
53. Lionsþing - dagana 25. og 26. apríl næstkomandi
Fimmtugasta og þriðja Lionsþing fjölumdæmis 109 verður haldið í
Reykjavík dagana 25. og 26. apríl næstkomandi. Að þessu sinni er
þingið í umsjá fjölumdæmisráðs. Þinghaldið,
embættismannaskólarnir og námsstefnurnar verða á Grand Hóteli í
Sigtúni og í Lionsheimilinu í Sóltúni (göngubrú er yfir
Kringlumýrarbrautina).
Nánari upplýsinar um þinghaldið, kostnað, gistimöguleika o. fl má
fá á Word skjali með því að
smella
hér
>>
Skráningareyðublað má fá
í Excel formi með því að
smella
hér
>>
Kjörbréf
má sækja með því að smella
hér
>>
Mán. 21. jan. 2008
Stofnskrárhátíð Lkl. Úu
Mánudaginn 10. desember síðastliðinn var stofnaður í Mosfellsbæ
nýr Lionsklúbbur með 32 félögum. Klúbburinn sem eingöngu er
skipaður konum hefur fengið nafnið Úa. Nú þegar hafa nokkrar
konur bæst í hópinn og er fjöldi stofnfélaga orðinn 34.
Klúbburinn tilheyrir svæði 2 í umdæmi 109 – B.
Föstudaginn 29. febrúar næstkomandi verður stofnskrárhátíð hins
nýja klúbbs haldin í Hlégarði og hefst hátíðin kl. 19.00.
Fjölumdæmis- og umdæmisþing 2008
Framboð til embætta
Í
samræmi við starfsreglur og lög Fjölumdæmis 109 vill
fjölumdæmisstjórn koma eftirfarandi á framfæri til allra
Lionsfélaga:
Þinghald og tillögur
Fjölumdæmis og umdæmisþing verða haldin í Reykjavík dagana 25. og
26. apríl 2008.
Frestur
til að skila inn tillögum um breytingar á lögum og um mál sem
leggja á fyrir þingin er, samkvæmt 27. gr. laga fjölumdæmis 109,
sem hér segir:
Mál
og/eða tillögur sem klúbbur og/eða klúbbar óska að séu rædd á
umdæmisþingi/ fjölumdæmisþingi, skulu póstleggjast til
umdæmisstjóra/formanns fjölumdæmisráðs eigi síðar en 45 dögum
fyrir umdæmis/fjölumdæmisþing.
Fjölumdæmisráð/umdæmisstjórnir fjalla um slíkar tillögur og gefa
þeim álit.
Framboð til embætta
Tillögur
um framboð til embættis varaumdæmisstjóra fyrir starfsárið
2008-2009 skal senda kjörnefndum fyrir 15. febrúar 2007.
Kjörgengur til embættis varaumdæmisstjóra er frambjóðandi sem
uppfyllir neðangreind skilyrði:
Hann/hún
skal vera:
1.
Starfandi Lionsfélagi og hafa staðið í skilum við klúbb sinn, enda sé
klúbburinn
skuldlaus við Alþjóðasambandið og fjölumdæmi 109.
2.
Hafa lokið eða sé að ljúka embætti sem formaður Lionsklúbbs.
3.
Hafa lokið eða sé að ljúka embætti í umdæmisstjórn.
Ekki
má gegna ofangreindum embættum (2 og 3) samtímis.
Tillögur um framboð til embættis fjölumdæmisstjóra fyrir
starfsárið 2008-2009 skal senda fjölumdæmisritara fyrir 15.
febrúar 2008.
Þeir einir eru kjörgengir til embættis fjölumdæmisstjóra sem hafa
verið umdæmisstjórar
Embætti sem þarf að kjósa um á fjölumdæmisþingi en ekki senda
inn tillögur um eru:
Fjölumdæmisritara til eins árs, fjölumdæmisgjaldkera til eins árs
og tveggja endurskoðenda til eins árs og tveggja til vara.
Alþjóðasamskiptastjóra til tveggja ára 2008 -
2010. Kynningarstjóra til tveggja ára 2008 - 2010.
Með Lionskveðju
Björgúlfur Þorsteinsson, fjölumdæmisstjóri 2007 – 2008
Mið. 12.
des. 2007
Lionsklúbburinn Úa stofnaður í Mosfellsbæ.
Mánudaginn 10. desember var stofnaður nýr Lionsklúbbur í
Mosfellsbæ. Stofnfélagar í þessum nýja klúbbi sem fékk nafnið
Lionsklúbburinn Úa eru 32 konur. Miðað við áhuga þessara
nýju félaga er ekkert líklegra en að stofnfélögum eigi eftir að
fjölga fram að stofnskrárhátíð klúbbsins sem verður haldinn í
Hlégarði þann 29. febrúar 2008.
Stjórn Lkl. Úu skipa:
Formaður, Dagný S. Finnsdóttir.
Ritari, Kristín Davíðsdóttir.
Gjaldkeri, Svanhildur Þorkelsdóttir.
Formaður félaganefndar Anna María Einarsdóttir.
Margir félagar úr Lkl. Mosfellsbæjar og Lkl. Fjörgyn mættu á
fundinn. Auk þess voru mætt þau Áslaug Þórarinsdóttir
umdæmisstjóri, Björgúlfur Þorsteinsson fjölumdæmisstjóri,
Guðmundur Finnbogason útbreiðslufulltrúi umdæmisins, Guðrún Björt
Yngvadóttir varaumdæmisstjóri 109A og Sigmar Steingrímsson
svæðisstjóri. Guðrún tók virkan þátt í undirbúningi að stofnun
þessa klúbbs en á undirbúningsfundunum hélt hún mjög fróðleg og
lífleg erindi um hlut kvenna í Lionshreyfingunni. Þau Áslaug og
Björgúlfur tóku þátt í inntöku félaganna og fylgdust með að
kosning um nafn klúbbsins og kjör stjórnar færi fram með
viðeigandi hætti.
Reglulegir fundir klúbbsins verða haldnir í Hlégarði fyrsta
mánudag hvers mánaðar kl. 19.00.
Fyrst um sinn verður hægt að nálgast upplýsingar um Lkl. Úu með
heimasíðu Lkl. Mosfellsbæjar
www.mmedia.is/kristh
Kristinn Hannesson, formaður Lkl. Mosfellsbæjar.
Lau. 24. nóv. 2007
Leiðtogaskóli Lions kynnir NÝTT námskeið vor 2008
Viltu hafa áhrif á það hvernig hjólin snúast?
Leiðtogar og lærdómur
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem lokið
hafa
Leiðtogaskóla Lions og/eða þeim sem
gegna
embættum á vegum hreyfingarinnar.
Hámarksfjöldi er 20 manns.
Markmiðið er að styrkja leiðtoga við að ná árangri í starfi og að
miðla
þekkingu. Fjallað verður um margvísleg hlutverk leiðtoga samtímans
með sérstakri áherslu á leiðtoga sem leiðbeinanda. Skoðað verður
m.a. klúbburinn sem lærdómsfyrirtæki; einnig viðbrögð félaganna
með aðferðum kennslufræði fullorðinna nemenda. Hvernig er hægt að
...
- ná athygli fólks til að tryggja skilning, áhuga og þátttöku?
- ná augum og eyrum fólks svo að boðskapurinn komist til skila?
- þekkja og virkja þátttakendur og hafa stjórn á aðstæðum?
- skipuleggja viðburði, hanna, kynna og framkvæma til árangurs?
Nánari upplýsingar veita:
Hrund hs: 566-7686 gsm: 663-5675 netfang:
hrundh@itn.is
Guðrún hs: 565-7097 gsm: 896-7097 netfang:
gudrun@hraunfolk.net
Umsóknarfrestur: 25. jan.
Umsóknum svarað: 30. jan.
Leiðtogar og lærdómur
Námskeið fyrir þá sem vilja hafa áhrif
Hvenær: 16.-17. febrúar og 8.-9. mars 2008
= tvær helgar = 4
dagar = 24 klst.+ verkefni
Laugard. Kl. 12-18 og sunnud. kl 10-16.
Laugard. er kvöldverður og dagskrá 18-22.
Hvar: Lionsheimilið Reykjavík.
Verð: Þátttökugjald er 12.000 krónur.
Innifalið er kennsla, námsgögn og matur.
Lionsskrifstofan Sóltúni 20, 105 R. Netfang:
lions@lions.is
FAX 561-5122
Sun. 4. nóv. 2007
Alþjóðasamskipti íslensku Lionshreyfingarinnar
Það er ekki öllum ljóst að íslenska Lionshreyfingin tekur þátt í
ýmsum alþjóðlegum verkefnum. Stærsta verkefnið nú um stundir
er alþjóðlega sjónverndarverkefnið "Sight First II". Auk þess
tekur íslenska hreyfingin þátt í ýmsum öðrum verkefnum og þá
aðallega í samvinnu við Lionsmenn á hinum Norðurlöndunum.
Fræðast má um þessa starfsemi með því að lesa skýrslur Jóns Bjarna
Þorsteinssonar, alþjóðasamskiptastjóra og fv.
alþjóðastjórnarmanns, en þær er að finna á síðunni
"Alþjóðasamskipti"
Fim. 27. sept. 2007
Ársskýrsla Lionshreyfingarinnar á netinu
Ársskýrsla
Lionshreyfingarinnar
fyrir starfsárið 2006 - 2007 er komin
á heimasíðuna. Skýrslan skiptist í tvo hluta, annars vegar
skýrsla fjölumdæmis og umdæma ásamt þinggerðum Lionsþingsins í
Ólafsvík sl. vor. Þessa skýrslu má skoða með því að
smella
hér
eða með því að
smella á "Ársskýrsla 2006 - 2007" í dálkinum hér til
vinstri.
Hins vegar er um að ræða skýrslur frá starfi klúbbanna, en skoða
má þær með því að smella
hér
eða
á "Skýrslur klúbba" í dálkinum hér til vinstri.
Í þessum hluta má kynnast mörgum merkum þáttum í starfi
Lionsklúbbanna um land allt.
Alþjóðlegt sjónverndarátak II - SightFirst II fréttir
Lkl. Freyr í Reykjavík reið á vaðið og gerðist fyrsti Model Club
landsins.
Klúbburinn varð fyrsti klúbburinn til að óska eftir fræðslu um
verkefnið á klúbbfund og ákvað strax á næsta fundi að styðja það
myndarlega með því að gerast Model Club.
Þeir urðu ekki aðeins fyrsti klúbburinn á Íslandi heldur
fyrsti klúbburinn á Norðurlöndum til að taka þessa ákvörðun og
jafnframt fyrsti klúbburinn í Evrópu til að uppfylla að fullu þau
skilyrði sem sett eru fyrir Model Club.
Að öðrum félögum klúbbsins ólöstuðum er það ekki síst að þakka
elju Gunnars Kr. Gunnarssonar að þetta varð að veruleika en hann
sýndi málefninu strax mikinn áhuga og vann að því allt til enda.
Lkl. Njörður í Reykjavík ákvað aðeins nokkrum dögum síðar að
gerast Model Club.
Þannig eru 2 fyrstu Model Club Norðurlandanna íslenskir
Lionsklúbbar.
En hvað er “ Model Club”.
"Model Club" er SightFirst fyrirmyndarklúbbur, Lionsklúbbur
sem vegna sérstaks áhuga á SightFirst verkefninu ákveður að vera í
leiðtogahlutverki og öðrum klúbbum til fyrirmyndar í þessu stærsta
söfnunarátaki sem Lionshreyfingin hefur staðið fyrir. Allir aðrir
klúbbar innan hreyfingarinnar munu líta upp til Modelklúbba og
bera virðingu fyrir framtaki þeirra.
Hvað þarf til að verða Model klúbbur.
Fyrst og fremst þurfa félagar klúbbsins að vera tilbúnir
til að rétta blindum hjálparhönd, ekki aðeins á heimavelli, heldur
um allan heim
Modelklúbbur ætti að setja markmiðið eins hátt og hann
treystir sér til en klúbburinn þarf að samþykkja að leggja að
"lágmarki" US$ 400 fyrir hvern félaga í verkefnið
Upphæðina má greiða á 3 árum og að sjálfsögðu úr líknar-
verkefna- eða styrktarsjóðum klúbbsins
Nánari upplýsingar um Campaign SightFirts II má finna á vefsíðunni
www.mmedia.is/kristh
Kristinn Hannesson, verkefnastjóri SightFirst II
Sun. 23. apríl 2006
FRÆÐSLUFUNDUR UM OFFITU
Lionshreyfingin á Íslandi gengst fyrir fræðslufundi fyrir
almenning um offituvandamálið. Þetta er vandamál sem eykst óðfluga
og í kjölfarið fylgja margvíslegir sjúkdómar svo sem sykursýki,
slitgigt, hjarta og æðasjúkdómar. Þetta er flókið vandamál og
margir sem þurfa að koma að meðferðinni. Auðvitað eru
fyrirbyggjandi aðgerðir bestar.
Við höfum fengið úrvals fyrirlesara til að fræða okkur um
þetta mikilvæga málefni.
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 27.
apríl n.k. kl 17.00 -18.30.
Fyrirlesarar eru:
Ludig Guðmundsson endurhæfingarlæknir á Reykjalundi fjallar
um heilsufarslegar afleiðingar offitu.
Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur hjá Lýðheilsustöð
fjallar um næringu.
Guðlaugur Birgisson sjúkraþjálfari á Reykjalundi mun fjalla um
hreyfingu og virkni.
Á eftir fyrirlestrunum verða umræður og fyrirspurnir.
Hér er einstakt tækifæri til að afla sér meiri fróðleiks um
offitu og meðferð við henni og Lionsfólk hvatt til að fjölmenna en
aðgangur er að vanda ókeypis.
Fim 6. apr. 2006
Samfundur á Hótel Héraði 1. apríl sl.
Samfundur Lionsklúbba varhaldinn á Hótel Héraði, Egilsstöðum 1.
apríl sl. Á fundinum skiptust embættismenn fjölumdæmis, umdæma og
klúbba á upplýsingum um starfið í hreyfingunni.
Sjá
fundargerð samfundar.
Fös. 10. mars 2006
Lionsdagurinn hjá Sameinuðu þjóðunum
Í dag, 10.
mars, er Lionsdaginn hjá Sameinuðu þjóðunum.
Hægt er að lesa um
hann á vefsetrinu hér fyrir neðan. Það eru ekki mörg félagasamtök
sem eiga svona dag með SÞ:
http://www.lionsclubs.org/EN/content/programs_int_ldun2.shtml
Sun. 26. feb. 2006
Tveir í framboði til
fjölumdæmisstjóra
Nú er
ljóst að báðir núverandi umdæmisstjórar, þeir Guðmundur Rafnar
Valtýsson og Valdimar Þorvaldsson gefa kost á sér til embættis
fjölumdæmisstjóra fyrir næsta starfsár. Kosið verður á milli
þeirra á fjölumdæmisþingi sem haldið verður á Akranesi í byrjun
júní.
Fös. 27. jan. 06
Lions-Quest - Þórunn Gestsdóttir skrifar
um Tilveruna
Áherslur okkar til daglegra athafna í lífinu eru fjölbreyttar.
Eitthvað afl stýrir okkur til að njóta eða örvænta, læra eða
hyskjast. Eðlið og uppeldið hafa stýriáhrif til athafna og eða
silagangs eftir lífsbrautinni.
Við veljum og höfnum.
Innan Lionshreyfingarinnar höfum við félagarnir tekið afstöðu og
lagt lið um milljónum borgara – heima og að heiman. Okkur er
sérstaklega umhugað um velferð barna, unglinga og eldri borgara.
Við komum víða að málum innan heilbrigðisþjónustunnar, höfum m.a.
lagt fé til heilbrigðisverkefna um víða veröld.
Greinin
öll
Fös. 30. des. 2005
SightFirst II - Ný heimasíða
Kristinn Hannesson, verkefnastjóri SightFirst II hefur opnað nýja
heimasíðu þar sem fjallað er um það mikla söfnunarverkefni sem
LCIF stendur fyrir á næstu þremur árum. Með þessu verkfeni
hefur Lionshreyfingin sett sér það markmið að safna að minnsta
kosti 150 milljónum dollara til að halda áfram því stórkostlega
verkefni sem fór í gang með fyrra SightFirst verkefninu, en
verkefnið felst í að vinna gegn óþarfa blindu. Á heimasíðu
Kristins má finna ýmsar upplýsingar um markmið og framkvæmd
verkefnisins. Sjá heimasíðu:
http://www.mmedia.is/kristh/
Mið.
16. nóv. 2005
STOFNSKRÁRHÁTIÐ LIONSKLÚBBSINS ÚLFARS
STOFNSKRÁRHÁTIÐ LIONSKLÚBBSINS ÚLFARS VERÐUR HALDIN Í GOLFSKÁLANUM
GRAFARHOLTI FÖSTUDAGINN 18. NÓVEMBER KL 19:30
Veislustjóri verður Jón Gröndal varaumdæmisstjóri.
Dagskrá
Afhending stofnskrársskjala
Afhending gjafa
Fjölumdæmisstjóri. Umdæmisstjóri. formaður Njarðar
Kvöldverður
Verð aðeins kr 3000.- per mann
Það væri mjög gaman ef þið
ágætu lionsfélagar sæjuð ykkur fært að mæta með maka ykkar
og fagna með okkur innkomu
Lionsklúbbsins Úlfars inn í okkar ágætu hreyfingu.
Vinsamlegast
tilkynnið þáttöku til mín
hordsig@internet.is eða í gsm. 660-6164
Fh.
undirbúningsnefnar ogLionsklúbbsins Njarðar
Hörður Sigurjónsson
Þri. 15. nóv. 2005
Menningarhátíð Lionshreyfingarinnar í Salnum í Kópavogi
Laugardaginn 19 nóvember 2005 efnir Lionshreyfingin til
menningarhátíðar í Salnum í Kópavogi, frá klukkan 13:30 – 15:00
Dagskrá:
1.
Lionsfélagar og gestir boðnir velkomnir.
2. Ávarp menningarstjóra. Myndir úr starfi
Lionshreyfingarinnar.
3. Gróa Margrét Valdimarsdóttir og Joachin Páll Palomares, ungt
tónlistarfólk sem
notið hefur þess að fara og spila með Orkester
Norden leikur duett.
4. Ávarp fjölumdæmisstjóra um gildi Lionshreyfingarinnar.
5. Gróa Margrét Valdimarsdóttir og Joachin Páll Palomares leika.
6. Kynntur fulltrúi okkar á listahátinni Europa Forum, í
Bournemouth í október 2006
7. Fjölumdæmisstjóri slítur samkomu.
Við vonumst til að þið getið fjölmennt og tekið með ykkur
gesti.Sjáumst heil.
Lionskveðjur
Jón Eyjólfur Jónsson
Menningarstjóri 2005-2006
Fös. 11. nóv.
2005
Nýjar fréttir frá Clement F. Kusiak, forseta LCIF
Clement F.
Kusiak, forseti LCIF hefur sent út fréttir um uppbygginguna á
hamfarasvæðunum í Suðaustur Asíu. Fréttin er á ensku.
Sjá
frétt.
Fim. 27. okt. 2005
Lionsklúbbar bregðast við ákalli verkefnasjóðs fjölumdæmis
Lkl. Siglufjarðar, Lkl. Patreksfjarðar og Lkl. Fjörgyn hafa tekið áskorun fjölumdæmis
um að gefa í verkefnasjóð fjölumdæmis..
Nánar
Mið. 19. okt.2005
Verkefnasjóður fjölumdæmis - óskað eftir framlögum
Undanfarið ár hafa orðið miklar hamfarir hér á jörðinni. Fyrst
ber að nefna hamfarirnar í Suðaustur Asíu á öðrum degi jóla 2004,
síðan fellibylurinn Katrín sem fór yfir Suðurríki Bandaríkjanna.
Við þessum hamförum gat verkefnasjóður íslensku
Lionshreyfingarinnar brugðist með fjárframlögum, en segja má að um
leið hafi verið gengið mjög á höfuðstólinn. Því hefur ekki verið
hægt að bregðast við og leggja fram fjármagn til hjálparstarfs á
hamfarasvæðunum í Pakistan og á Indlandi. Því er skorað á
Lionsklúbba að láta fé af hendi rakna til verkefnasjóðs íslenska
fjölumdæmisins. Reikningsnúmerið er: 1101 -18 – 641540
Kennitala: 640572-0869.
Mið. 19. okt.2005
LCIF aðstoðar hamfarasvæði í Pakistan og Indlandi
Í nýútkomnu fréttabréfi frá LCIF - Alþjóðahjálparsjóði Lions kemur
fram að sjóðurinn hafi nú þegar styrkt hjálpar- og
uppbyggingarstarf í Pakistan og á Indlandi um 230 þúsund dollara.
Í bréfinu er jafnframt leitað til klúbba um að láta fé af hendi
rakna til verkefnisins. Sjá vefslóðina
http://www.lionsclubs.org/EN/content/lcif_pakistanearthquake.shtml
Fim.
13. okt. 2005
Fræðslukvöld um barnaheilsu í Grafarholti
Fræðslukvöld um barnaheilsu verður haldið í Ingunnarskóla,
Grafarholti, mánudaginn 24. október kl. 20:30-22:30.
Fræðslukvöldið er tileinkað heilsu barna.
Á dagskránni verður eftirfarandi:
Atli Dagbjartsson yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins
fjallar um Barnaspítala Hringsins og hvernig hans hefur reynst.
Árni V. Þórsson læknir flytur erindi um sykursýki í börnum
en hann er frumkvöðull að núverandi fyrirkomulagi meðferðar.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrunar- og næringarfræðingur
flytur erindi um næringu barna með tilliti til ofnæmis, óþols og
offitu.
Ingibjörg Karlsdóttir formaður ADHD og stjórnarmaður í
Sjónarhóli mun flytja erindi um hegðun og atferli barna.
Allir eru velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Húsið opnar kl. 20:00.
Börnin eru mikilvægasta eign okkar.
Foreldrar, fjölmennum á fræðslukvöldið, þar sem rætt er um heilsu
barna okkar.
Takið strax frá mánudaginn 24. október. Sjá grein sem birtist um
fræðslukvöldið í Árbæjarblaðinu með því að
smella
hér
Lionsklúbburinn Úlfar, Grafarholti
Mið. 12. okt. 2005
Sjónverndardagurinn – fræðslufundur
Lionshreyfingin á Íslandi stendur fyrir almennum fræðslufundi um
sjónvernd á Kaffi Reykjavík fimmtudaginn 13. október n.k. kl
17.00. Umræðuefnið verður almennt um augnsjúkdóma og fyrirlesarar
verða Einar Stefánsson prófessor í augnlækningum auk
sérfræðinganna Maríu Soffíu Gottfreðsdóttur og Haraldar
Sigurðssonar. Gefst þarna gott tækifæri til að fá fróðleik um
margvíslega þætti augnlækninga.
Allt
áhugafólk er velkomið og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá:
Setning: Fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar á Íslandi Geir
Hauksson
Fundarstjórn: Björn Guðmundsson heilbrigðis og
sjónverndarstjóri
Frummælendur augnlæknarnir
Einar Stefánsson prófessor
María Soffía Gottfreðsdóttir
Haraldur Sigurðsson
Hvert erindi um 20 mín og fyrirspurnir bæði á eftir hverju erindi
og í lokin og síðan almennar umræður.
Ávarp: Jón Bjarni Þorsteinsson fjallar um sjónverndarátak
Lionshreyfingarinnar (Sight First 1 og 2).
Sjónvernd og aðstoð við blinda og sjónskerta hefur frá upphafi
verið eitt höfuðverkefni Lionshreyfingarinnar um allan heim. Það
var meðal annars vegna hvatningar frá Helen Keller sem var bæði
blind og heyrnarlaus. Lionsklúbbar á Íslandi hafa frá upphafi
stutt við sjónvernd á einn eða annan hátt m.a. með tækjagjöfum.
Minna má á fyrstu fjársöfnun Lionshreyfingarinnar hér á landi
undir nafni Rauðu fjaðrarinnar 1972 þar sem ágóðinn rann til
Augndeildarinnar á Landakoti sem nú hefur flutt á Landsspítala
háskólasjúkrahús sem og kaupa á augnlækningatækjum fyrir
heilsugæslustöðvar um land allt.
Alþjóðalionshreyfingin hóf átak í sjónverndarmálum ,, Sight
First” sem stóð frá 1991 -1994 og var safnað 140 milljón dollurum
sem hafa farið í alheims átak gegn blindu og augnsjúkdómum. Einkum
er um að ræða aðstoð við þróunarlönd í glímu við ýmsa augnsjúkdóma
sem leiða til blindu. Þar er miklu hægt að áorka fyrir lítið fé.
Annars staðar hafa spjótin fyrst og fremst beinst að fræðslu um og
greiningu á sykursýki sem er nú algengasti sjúkdómurinn sem veldur
blindu í okkar heimshluta. Nú stendur fyrir dyrum nýtt átak
,,Sight First 2” frá þessu ári til 2008 þar sem reynt verður að
gera enn betur.
Þri. 4. oktt. 2005
Alþjóðaþingið 2006
Eins
og mörgum ykkar er kunnugt, þá stóð til að alþjóðaþing
Lionshreyfingarinnar árið 2006 yrði í New Orleans. Þær miklu
hamfarir sem þar hafa orðið hafa gert þetta ómögulegt.
Þær upplýsingar bárust í dag frá alþjóðastjórn að þingið verður
haldið í Boston, Massachusetts dagana 30. júní til 4. júlí 2006.
Það má kalla kraftaverk að finna stað fyrir þetta viðamikið þing
með svo stuttum fyrirvara. Nánari upplýsingar um þingið má
finna á alþjóðasíðu hreyfingarinnar
http://www.lionsclubs.org
.
Sun. 25. sept.2005
Siðameistaranámskeið "Fjölbreytni í fundarstarfi"
Er gaman í Lions?
Siðameistaranámskeið verður haldið 20. október næstkomandi.
Sjá nánar með að
smella
hér
Fim. 22. sept. 2005
Fjölumdæmisráð, umdæmisstjórnir og stjórnir
klúbba
Upplýsingar um hverjir sitja í fjölumdæmisráði, umdæmisstjórnum og
hverjir sitja í stjórnum klúbba starfsárið 2005 - 2006 eru komnar á
netið. Um er að ræða Acrobat skjal.
Sækja skjalið