THE INTERNATIONAL ASSOCIATION OF

LIONS CLUBS

Lionsumdæmið á Íslandi MD 109

Sóltúni 20 - 105 Reykjavík - sími  561 3122 - fax 561 5122 - netfang: lions@lions.is

Opnunartími skrifstofu: 9:00 - 15:00 alla virka daga

Fræðsla

 

Vilt þú kynnast Lionshreyfingunni?
Skoðaðu þetta!

 Saga hreyfingarinnar

 Klúbbastarf

 Verkefni Lions

 Hafðu samband.

Ýmsar upplýsingar

 English page


 Umdæmi 109 A

 Umdæmi 109 B

 Stjórn og ársskýrslur

 Þing Lionshreyfingar

 Markmið og reglur

 Yfirstjórn 1954 -2009


 Lionsblaðið

 Fréttir frá klúbbum

 Aðsendar greinar


 Alþjóðasamskipti

 Lions Quest

 SightFirst II

 Rauða fjöðrin


 Lionsfræðslan


 Handbók formanns

 Handbók ritara

 Svæðisstjórasíða.

 Mánaðarskýrslur

 Lionsmerkið

   MedicAlert á Íslandi

Alþjóðasíður

Lions International (2280 bytes)

LCIF

LionNet (2290 bytes)

     Netverslun með
     Lionsvörur

   Lions Sverige
   Lions Norge
   Lions Finland
   Lions Danmark

   NSR 2010

 

Klúbbar á netinu

    Lkl. Agla
    Lkl. Akureyrar
    Lkl. Álftaness
    Lkl. Ásbjörn
    Lkl. Bolungarvíkur
    Lkl. Borgarness
    Lkl. Eik
    Lkl. Fjörgyn
    Lkl. Grindavíkur
    Lkl. Grundarfjarðar
    Lkl. Húsavíkur
    Lkl. Kaldá
    Lkl. Keilir

    Lkl. Kópavogs
    Lkl. Mosfellsbæjar
    Lkl. Muninn
    Lkl. Múli
    Lkl. Njarðvíkur
    Lkl. Njörður 
    Lkl. Patreksfjarðar 
   
Lkl. Rán
    Lkl. Seyðisfjarðar
    Lkl. Siglufjarðar
    Lkl. Skyggnir
    Lkl. Stykkishólms
    Lkl. Týr
    Lkl. Úa, Mosfellsbæ
    Lkl. Váli
    Lkl. Vestmannaeyja
    Lkl. Víðarr
    Lkl. Þór
    Lkl. Æsa

 


Fræðsla fyrir þinn klúbb 2009-2010

Lionshreyfingin stendur fyrir miklu fræðslustarfi. Félögum stendur til boða fjölbreytt úrval námskeiða, sem miða að því að efla félagana, styrkja klúbbstarfið og þjálfa leiðtoga.

Eins og venjulega geta Lionsklúbbar og svæði pantað námskeið og valið þann stað og tíma sem best hentar hverju sinni. Mjög margir svæðisstjórar hafa fengið námskeið á svæðisfundi og fengið hrós fyrir það hjá fundarmönnum einnig hafa klúbbstjórnir fengið ýmis námsskeið eða kynningar á málefnum hreyfingarinnar á Lionsfund. Klúbbar eða svæði geta einnig fengið skipulagðan heilan námskeiðsdag fyrir sig og það eru án efa skemmtilegustu og gagnlegustu námskeiðin. Við stingum upp á heilum eða hálfum laugardegi eða sunnudegi. Mjög góð reynsla er af þessu fyrirkomulagi. Mikilvægt er að kynna námskeiðin vel, til að tryggja næga þátttöku.

Hvaða námskeið?

Fjöldi Lions-námskeiða á dagskrá á næstunni
Fræðslunefnd Lions hefur gefið út nýja námskeiðsáætlun með tímasettum námskeiðum á starfsárinu en einnig með sérnámskeiðum sem klúbbar geta pantað eftir óskum. Allar nánari upplýsingar má fá með því að smella hér.

 

Nýliðanámskeið 5. nóvember 2009
Lionshreyfingin heldur nýliðanámskeið fyrir nýja, nýlega eða væntanlega félaga fimmtudaginn 5. nóvember í Lionsheimilinu við Sóltún 20. Námskeiðið hefst kl. 20:00 og því lýkur kl. 22:00. Skráning á sér stað á skrifstofunni okkar í síma 561 3122 eða í Lions hjá lions.is. Allar nánari upplýsingar má fá með því að smella hér.

 

Siðameistaranámskeið

Siðameistaranámskeið var haldið fyrir siðameistara, varasiðameistara eða aðra þá sem halda uppi fjörinu á fundum, fimmtudaginn 8. október 2008 kl: 20.00 í Lionsheimilinu Sóltúni 20, Rvk. Kennari: Hrund Hjaltadóttir fræðslustjóri. Nánari upplýsingar fá hér.

Leiðtogaskólinn 2010

Hið frábæra Leiðtoganámskeið Lions verður haldið í vor dagana 12.-14. febrúar og 5.-7. mars í Munaðarnesi. Allir LIonsfélagar geta sótt um þátttöku í skólanum sem hefur það markmið að þjálfa leiðtoga, byggja upp félaga og styrkja klúbbstarfið. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Lionsskrifstofunni. Nánari upplýsingar má fá hér.

Nýliðanámskeið

“Hvað er Lions?” fyrir nýja eða væntanlega félaga, ásamt meðmælanda, félaganefnd eða stjórn og alla þá sem vilja vera “með á nótunum”. Tími: Á vorönn. Nánar auglýst síðar Staður: Lionsheimilið Sóltúni 20, Rvk. Þetta námskeið er líka upplagt fyrir klúbbfundi og svæðisfundi því það er nú þannig að við höfum öll gott af smá upprifjun um Lionshreyfinguna.

Félaganefndanámskeið
Námskeiðið er í formi fyrirlestra, umræðna og verkefna. Þetta námskeið hefur verið mjög vinsælt að panta á svæðisfundi og klúbbfundi vegna þeirra auknu áherslu sem alþjóðastjórn leggur á félagamálin. Þau fjalla ekki bara um það að ná í nýja félaga eða stofna nýja klúbba, heldur fyrst og fremst um hlutverk félaganefndar, leiðir til að halda í félagana og hvernig við komum í veg fyrir að félagar hætti klúbbunum.

Leiðtogaþjálfun - Hvaða efni?
Þetta eru mismunandi fræðsluerindi sem upplagt er að panta á klúbbfund eða svæðisfund. Vaxandi áhugi er á leiðtogaþjálfun og er mikið úrval námskeiða á því sviði. Hægt að velja nokkur og setja saman skemmtilega dagskrá. Hver liður tekur 1-2 klst. eftir því hvort verkefni eru tekin með:

  • Stjórnunaraðferðir – Leiðtogastílar
  • Sterkur leiðtogi - Virkni og frumkvæði
  • Að setja saman teymi - Öflugt hópstarf
  • Árangursrík liðsheild: Virkja og hvetja
  • Samskipti og virk hlustun
  • Stefnumótun - Markmiðasetning
  • • Ákvarðanataka – Að deila út verkefnum
  • Fundarstjórn - Fundarsköp
  • Skipulögð nefndarstörf
  • Verkefnastjórnun
  • Úrlausn vandamála - Að stjórna deilum
  • Áhrifaríkur málflutningur – Ræðumennska

Ræðunámskeið
Þetta námskeið er upplagt fyrir klúbba eða svæði að halda fyrir ca. 12-14 félaga í einu. Námskeiðið er sett upp sem tveggja kvölda námskeið með nokkurra daga millibili til að sem mest komi út úr námskeiðinu. Kostnaður við þetta námskeið er tvö þúsund kr.á hvern félaga sem tekur þátt ( kennslugögn). Klúbbformenn vinsamlega hafið samband ef þið hafið áhuga. Kennarar: Þór Steinarsson Lkl. Fjörgyn, Helgi Sigurbjartsson Lkl. Fjörgyn og Þorsteinn Sigurfinnsson Lkl. Fjörgyn

Leiðtogaskóli Lions - námskeið sem verður haldið síðar

Leiðtogar og lærdómur
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem lokið hafa Leiðtogaskóla Lions og/eða þeim sem gegna embættum á vegum hreyfingarinnar. Hámarksfjöldi er 20 manns. Kostnaður er 12000 kr. Á hvern félaga. Markmiðið er að styrkja leiðtoga við að ná árangri í starfi og að miðla þekkingu. Fjallað verður um margvísleg hlutverk leiðtoga samtímans með sérstakri áherslu á leiðtoga sem leiðbeinanda. Skoðað verður m.a. klúbburinn sem heild getur bætt þekkingu sína, einnig skoðum við hvernig við getum beitt kennslufræði fullorðinna nemenda til að læra nýja hluti. Hvernig er hægt að ... - ná athygli fólks til að tryggja skilning, áhuga og þátttöku? - ná augum og eyrum fólks svo að boðskapurinn komist til skila? - þekkja og virkja þátttakendur og hafa stjórn á aðstæðum? - skipuleggja viðburði, hanna, kynna og framkvæma til árangurs?

Námskeiðið tekur tvær helgar og verður haldið í Lionshúsinu við Sóltún 25.-26. okt. og 8.-9. nóv. 2008. Umsóknareyðublöð á Lionsskrifstofunni og hjá fræðslustjóra. Umsóknarfrestur til 25. september 2008.

Ágætu félagar hafið það þó í huga að Lionskennararnir okkar eru í vinnu alla virka daga og kenna á námskeiðunum í sjálfboðavinnu í frítíma sínum. Þess vegna getur verið erfitt að fara út á land í miðri viku. Helgarnámskeið henta betur nema í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Mikilvægt er að kynna námskeiðin vel til að tryggja góða þátttöku. Miðað er við lágmark 20 manns til að Lionshreyfingin greiði ferðakostnað kennara. Ef þú vilt panta námskeið, fá meiri upplýsingar eða koma hugmyndum á framfæri, vinsamlegast hafðu samband við undirritaða.

Fræðsluteymi fjölumdæmis og umdæma:
Guðmundur Helgi Gunnarsson, fræðslustjóri MD 109
Sími: 5667686 (heima) og 693 4210 (GSM)
Netfang: g.helgi hjá simnet.is

Halldór Kristjánsson, fræðslufulltrúi 109 A
Sími: 555 1187 (heima), 520 9000 (vinna)
Netfang: halldor hjá tv.is

Sigrún Anna Stefánsdóttir, fræðslufulltrúi 109 B
Sími: 568 7759 (heima), 543 6066 (vinna), 822 7759 (GSM)
Netfang: sigrun.anna hjá internet.is

 

                                                                   

Lionshreyfingin á Íslandi - Sóltún 20 · 105 Reykjavík - Sími/tel.: (354) 561 3122 - Fax: (354) 561 5122
Netfang/e-mail:
lions hjá lions.is - Ritstjóri síðunnar: halldor hjá tv.is