|
|
Velkomin á heimasíðu Lionsumdæmis 109 A

Byggjum upp
Mitt kjörorð er “Byggjum upp” og vísa ég þar
til siðareglunnar: “Vertu gætinn í gagnrýni og örlátur á viðurkenningu.
Byggðu upp, en rífðu ekki niður” og vonast ég til þess að þetta geti orðið
okkur að leiðarljósi. Ég legg höfuðáherslu á að byggja upp góðan starfsanda
svo okkur líði vel og sýnum hvert öðru virðingu.
Mikilvægt er að hrósa, þakka og viðurkenna gott starf Lionsfélaga, það eru
einu laun sjálfboðaliðans og við skulum “borga vel”. Það skilar sér í
afköstum í klúbbnum, góðum anda, félögunum líður vel, hætta ekki og
klúbburinn verður áhugaverður kostur og þá fjölgar félögum í klúbbnum.
Við þurfum að styrkja eða byggja upp félagana, klúbbana, svæðin, umdæmin og
ímynd Lions. Við getum styrkt félagana m.a. með fræðslu. Við styrkjum klúbba
og svæði með samstarfi, aukinni kynningu og með því að styrkja ímynd Lions.
Við þurfum líka að styrkja Lionshreyfinguna á Íslandi og stofna nýja klúbba,
því margar hendur vinna létt verk.
Ég hef gert kyndilinn að tákni mínu og umdæmisins þetta starfsár. Við erum
öll að taka að okkur krefjandi verkefni, við verðum öll í forystu fyrir
okkar málaflokk og berum kyndilinn með stolti og lýsum leiðina. Kyndill er
notaður sem tákn fyrir sigurvilja. Kyndilinn stendur m.a. fyrir: Forystu og
kraft. Brennandi þrá eftir að ná árangri og hafa jákvæð áhrif.
Guðrún Björt Yngvadóttir,
umdæmisstjóri 109A, starfsárið 2008-2009
Helstu upplýsingar um
umdæmi 109 A
Hér á eftir eru
tenglar í skjöl með frekari upplýsingum um starfsemi umdæmis 109 A:
|