Lionsklúbburinn
Ásbjörn

 

Klúbbfréttir


Ýmsar síður

 

Lions International (2280 bytes)

LCIF

LionNet (2290 bytes)


 MedicAlert Umsóknareyðublað
 

Klúbbar á netinu

    Lkl. Agla
    Lkl. Akureyrar
    Lkl. Álftaness
    Lkl. Ásbjörn
    Lkl. Bolungarvíkur
    Lkl. Borgarness

    Lkl. Eik
    Lkl. Fjörgyn
    Lkl. Húsavíkur
    Lkl. Kaldá
    Lkl. Keilir
    Lkl.
Kópavogs
    Lkl. Mosfellsbæjar
    Lkl. Múli
    Lkl. Njarðvíkur
    Lkl. Njörður 
    Lkl. Patreksfjarðar 
   
Lkl. Rán
    Lkl. Seyðisfjarðar
    Lkl. Siglufjarðar
    Lkl. Skyggnir
    Lkl. Stykkishólms
    Lkl. Týr
    Lkl. Váli
    Lkl. Þór
    Lkl. Æsa

 


Myndir frá jólafundi
Laugardaginn 17. desember voru félagar í Ásbirni, ásamt mökum  með sérstakan jólafund, þar sem boðið var upp á jólahlaðborð o. fl.  Fundurinn var að þessu sinni haldinn í heimili Golfklúbbsins Keilis.  Sigurður Magnússon tók margar myndir á fundinum og má nálgast þær með því að smella á veffangið hér fyrir neðan:
http://www.austurgata.net/gallery/view_album.php?set_albumName=albun32



Myndir frá pökkun jóladagata
F
immtudaginn  17. nóvember síðastliðinn mættu félagar með börn og barnabörn til að pakka jóladagatölum.  Áður en pökkun hófst var haldin mikil hamborgarahátíð í Gaflinum.  Sigurður Magnússon, sérlegur hirðljósmyndari klúbbsins hefur sett myndir frá fundinum og pökkuninni inn á heimasíðu sína. 
http://www.austurgata.net/gallery/slideshow.php?set_albumName=albun29



Lkl. Ásbjörn með góðar gjafir til Sólvangs
Félagar í Lkl. Ásbirni komu færandi hendi, er þeir heimsóttu hjúkrunarheimilið og heilsugæsluna Sólvang í Hafnarfirði þann 17. febrúar sl.  Heislugæslunni voru afhent eftirfarandi tæki:
   - Dopplertæki til að hlusta eftir fósturhjartslætti
   - Tæki til að fylgjast með blóðsykri í heilan sólarhring.
   - Tæki til að fylgjast með blóðþrýstingi í heilan sólarhring.
Þá voru hjúkrunarheimilinu afhendar gjafir til Geisla, kapellu heimilisins.  Um er að ræða stólu, sem er hluti messuskrúða prests og sett til að framkvæma altarisþjónustu (altarisgöngu).  Lkl. Ásbjörn sá árið 2001 um uppbyggingu kapellunnar.

                                                                   

Lionsklúbburinn Ásbjörn - Bæjarhrauni 2 · 220 Hafnarfirði - Sími/tel.: (354) 565 2016 
 - Ritstjóri síðunnar: Halldór Kristjánsson.  Netfang: 
halldor@tv.is