Alþjóðlegt Sjónverndarátak Lionshreyfingarinnar.
Lionshreyfingin
og sjónvernd.
Á
alþjóðaþingi Lionshreyfingarinnar 1925 var rithöfundurinn Helen
Keller gestafyrirlesari. Helen Keller sem var bæði blind og
daufdumb fjallaði um þann heim sem blindir og daufdumbir lifa í.
Erindi sitt endaði hún með því að skora á Lionsfélaga að gerast
“Riddarar hinna blindu í krossför gegn myrkri”. Segja má að upp
frá því hafi baráttan gegn blindu verið eitt af höfuðverkefnum
Lionshreyfingarinnar um allan heim.
SightFirst.
Árið
1989 urðu þáttaskil í baráttu Lionshreyfingarinnar gegn blindu en
þá varð til verkfæri sem fékk heitið SightFirst,
langtímaáætlun með fyrirfram ákveðna áherslupunkta. SightFirst
var þróað og unnið af Lionshreyfingunni í samvinnu við færustu
sérfræðinga sem völ var á og síðan þá hefur Lionshreyfingin verið
leiðandi afl á þessu sviði.
Það
var strax ljóst að ekki var nóg að veita verkefni eins og
SightFirst brautargengi. Það varð að fjármagna það með einhverjum
hætti ef einhver árangur átti að verða. Nýtt verkfæri var þróað
og úr því varð Campaign SightFirst.
Fyrra
eða kannski fyrsta Campaign SightFirst átakið fór fram árin 1991 –
1994. Árangurinn varð 200 milljónir dollara. Þessi árangur fór
fram úr björtustu vonum og því ljóst að hægt yrði að gera miklu
meira en upphaflega var gert ráð fyrir.
Væntingar
og árangur SightFirst frá júlí 1991.
Það
voru mörg og stór verkefni sem lagt var upp með eftir þetta vel
heppnaða fjáröflunarátak en hér verða aðeins örfá nefnd.
Gert
var ráð fyrir að bæta augnheilsu 78,5 milljóna. Árangurinn varð
95 milljónir auk þess að létta líf hundruða milljóna aðstandenda.
Stefnt var að byggingu 150 sjónverndarstöðva. 207 augnsjúkrahús
og aunglæknastofur voru byggðar og endurbættar og tækjabúnaður og
aðstaða 314 sjónverndarstöðva endunýjaður og bættur. Auk þess
voru byggðar 30 sjónverndarstöðvar sérhæfðar í augnsjúkdómum
barna.
Stefnt var að þjálfun og fræðslu 2.500 starfsmann á svið
augnlækninga.
83.500
læknar, hjúkrunarfræðingar, og annað starfsfólk á sviði
augnlækninga hefur fengið viðbótarmenntun og þjálfun.
Lionshreyfingin
og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin.
Mikil
og góð samvinna hefur verið milli Lionshreyfingarinnar og
Alþjóðaheilbrygðisstofnunarinnar á sviði sjónverndarmála. Árið
1990 var unnin áætlun á vegum þessara aðila sem gerði ráð fyrir að
blindum í heimunum fjölgaði úr 40 milljónum í 80 milljónir fyrir
árið 2015. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin þakkar það fyrst og fremst
SightFirst verkefni Lionshreyfingarinnar að árið 2005 hafði
blindum fækkað í 37 milljónir.
Nú
gera nýjar áætlanir alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar ráð fyrir að
blindum fjölgi úr 37 milljónum í 74 milljónir fyrir árið 2020
verði ekkert að gert.
Sem
”Riddarar Hinna Blindu” geta Lionsfélagar ekki látið það
viðgangast. Lionsfélagar geta heldur ekki horft upp á það
aðgerðarlausir að á hverri mínútu verðu eitt barn blint og tveir
fullorðnir.
Campaign
SightFirst II
Það er
ljóst að verulega er farið að ganga á það fé sem safnaðist í
Campaign SightFirst I enda hefur ekki verið setið auðum höndum í
sjónverndarmálum. Með það að leiðarljósi og þá staðreynd að 80%
af allri blindu í heiminum má koma í veg fyrir og eða lækna hefur
nýju söfnunarátaki verið hrint af stað, “Campaign SightFirst II”.
Átakið’ stendur yfir í þrjú ár, 1. júlí 2005 – 30 júní 2008.
Markmiðið er að 1,4 milljónir Lionsfélaga um allan heim safni 200
milljón dollurum á þrem árum.
Áhersluatriði SightFirst í framtíðinni.
Áhersluatriðum SightFirst í framtíðinni hefur verið skipt í þrjá
flokka.
1.
“Ná tökum á og koma í veg fyrir óþarfa blindu”.
Ø
Ský á auga (Cataract) orsakar um það bil helming allrar blindu í
heiminum. Að minnsta kosti 2 milljónir manna á ákveðnum svæðum í
heiminum fái aðgerð við ský á auga. Fjölga aðgerðum á þeim stöðum
sem þegar er verið að vinna á. Auka fjölda þeirra sem fá menntun
á þeim sjónverndar og fræðslustöðvum sem stofnaðar voru eftir
fyrra SightFirst átakið
Ø
Árblinda
(River Blindness) er mjög algeng í Afríku og latnesku Ameríku.
Til að koma í veg fyrir að fólk fái árblindu þarf ekki annað en að
útvega þeim hreint vatn til að þvo sér upp úr. Hver brunnur
kostar um það bil 90.000 kr. og getur þjónað þúsund manna þorpi í
áratugi. Hrint verður af stað stórátaki til að lækna þá sem þegar
eru blindir af völdum árblindu.
Ø
Bakteríusýking í slímhúð augans
(Tracoma eða Egypskt augnkvef) er meðal þeirra augnsjúkdóma sem
auðveldast er að lækna. Stefnt er að því að fyrir árið 2010 verði
unnið í þeim 15 löndum þar sem þörfin er mest.
2.
“Baráttan gegn nýjum aðsteðjandi hættum”.
Ø
Ungbarnablinda er stóraukið vandamál og ástæðan er í flestum tilfellum
skortur á viðunandi heilbrigðisþjónustu. Stefnt verður að því að
koma á fót 20 nýjum fullkomnum Lions augnsjúkrahúsum og útvíkka
starfsemi þeirra 30 sem fyrir eru. Útvega sérhæfða kennslu fyrir
heilbrigðisstarfsfólk og styrkja grunnheilsugæslu þar sem
ungbarnablinda er algengust.
Ø
Sjónskekkja er alvarlegt vandamál hjá börnum í sumum hlutum heimsins og
leiðir mjög oft til blindu. Stefnt verður að því að koma á fót
allt að 100 gleraugnamiðstöðvum, þjálfa nokkur þúsund sjóntækna og
elfa samstarf við gleraugnaframleiðendur í þeim tilgangi að lækka
kostnað til þeirra sem mest þurfa á að halda.
Ø
Sykursýki verður æ algengari og helst í hendur við hækkandi meðalaldur og
aukið offituvandamál jarðarbúa. 70% sykursjúkra fá skerta sjón.
Sé sjúkdómurinn greindur nógu snemma má draga verulega úr
hættunni.
Ø
Gláka er einnig vaxandi vandamál. 1/3 sykursjúkra og 1/2 glákusjúklinga
vita ekki af aðsteðjandi hættu. Á þessu sviði verður aðallega
unnið að rannsóknar og meðferðarverkefnum svo og þjálfun
heilbrigðisstarfsfólks.
3.
“Sýn fyrir alla”.
Ø
Stór orð sem erfitt verður að uppfylla. Auðvitað er það draumur allra að
blindu verði útrýmt. Það er þó kannski ekki meiningin á bakvið
orðin “Sýn fyrir alla”. Meiningin á bak við þessi stóru orð eru
þau að allir þeir sem ekki er hægt að bjarga frá blindu fá
viðeigandi fræðslu og endurhæfingu sem gerir þeim auðveldara að
lifa í myrkrinu.
Ø
Bæði í þróuðum og vanþróuðum löndum eru einstaklingar sem ekki eiga kost
á nægjanlega góðri heilsuvernd og alls ekki á sviði augnsjúkdóma.
Endurhæfingar- og fræðslustöðvar fyrir blinda og sjónskerta verða
efldar. Komið verður af stað fræðslu og kynningarverkefni fyrir
hundruð þúsunda fjölskyldna með blind eða sjónskert börn. Stutt
verður við sérstakar grunnrannsóknir á þeim Lions augnstöðvum sem
þegar eru starfræktar.
Ø
Víða í heiminum þar sem heilbrigðismál eru talin í góðu lagi er margt
fólk sem verður útundan og stendur berskjaldað fyrir augnsjúkdómum
vegna fátæktar. Þetta á sérstaklega við um konur, börn og
gamalmenni. Lionsklúbbar í þeim heimshlutum fá sérstaka aðstoð
við að ná til fólks sem er í mestri þörf fyrir aðstoð og meðferð.
Hér
hefur aðeins verið stiklað á stóru varðandi það sem stefnt er að
því of langt mál yrði að fara ítarlega yfir þessa metnaðarfullu
áætlun sem unnið verður að næstu 15 árin.
Markmið
íslenskra Lionsfélaga.
Eins og
fram koma hér að framan er heildamarkmið átaksins 200 milljón
dollarar. Íslenskir Lionsfélagar ætla ekki að láta sitt eftir
liggja í þessu átaki og hafa sett markmiðið á 500.000 dollara eð
um það bil 35 milljón krónur. Þessi upphæð jafngildir 15.000 kr
fyrir hvern félaga.
Við
gerum okkur fulla grein fyrir því að þessu markmiði verður erfitt
að ná nema með dyggri þátttöku allra klúbba landsins.
Hvaða
möguleikar felast í verkefnum hér innanlands?
Eins og
áður hefur komið fram eru þau verkefni sem stafnt er að fyrir
þetta fjáröflunarátak þegar ákveðin og því kannski ekki miklir
möguleikar á stórum verkefnum hér á Íslandi. Þeir möguleikar
felast kannski fyrst og fremst í rannsóknarstörfum. Ómögulegt er
að segja til um það fyrirfram hvernig slíkt gengi fyrir sig. Þeir
aðilar sem hugsanlega hefðu áhuga á slíkum rannsóknarstörfum yrðu
að sækja sérstaklega um styrki í sjóðinn.
Einnig
má benda á það að Alþjóðahjálparsjóður Lionshreyfingarinnar, Lions
Clubs International Foundation hefur veitt styrki til ýmissa
rannsóknarverkefna og ekki síst á sviði sjónverndarmála. Þar
liggur því annar möguleiki.
Hvaða
möguleikar felast í verkefnum hér innanlands?
Eins og
áður hefur komið fram eru þau verkefni sem stefnt er að fyrir
þetta fjáröflunarátak þegar ákveðin.
Þeir
möguleikar felast kannski fyrst og fremst í rannsóknarstörfum.
Ómögulegt er að segja til um það fyrirfram hvernig slíkt gengi
fyrir sig. Þeir aðilar sem hugsanlega hefðu áhuga á slíkum
rannsóknarstörfum yrðu að sækja sérstaklega um styrki í
sjóðinn.Vel þekkt er að við eigum hæfileikaríkt
heilbrigðisstarfsfólk. Margar rannsóknir hafa verið gerðar
hérlendis tengt blindu og blinduforvörnum og þar felast okkar
möguleikar. Nú þegar hafa verið veittir yfir 800 rannsóknarstyrkir
til ýmissa verkefna tengt blindu og blinduforvörnum.
Einnig
má benda á það að Alþjóðahjálparsjóður Lionshreyfingarinnar, Lions
Clubs International Foundation hefur veitt styrki til ýmissa
rannsóknarverkefna hérlendis og þar er um hár upphæðir að ræða. Nú
síðast 68 þúsund dollarar til tækjakaupa vegna hjartarannsókna
Og það
tæki var afhent Landspítala Háskólasjúkrahúsi 2005. Allmargir
styrkir hafa verið veittir til annarra verkefna innan
heilbrigðiskerfisisn hérlendis á vegum íslendskra lionsfélaga og
ekki síst á sviði sjónverndarmála. Þar liggur okkar styrkur og
okkar möguleiki.
Alþjóðasamskipti
Starfsárið 2006-2007
Ársskýrsla alþjóðasamskiptastjóra
Starfsárið er senn á enda og eftirfarandi hefur verið gert. NSR
þingið var haldið hérlendis i janúar s.l. og sá Ísland um þingið
núna. Þess vegna stóðum við að námstefnunni og þar var fjallað um
verkefni okkar og samvinnu á Noðurlöndum. Við fjölluðum um
sjónverndarátak okkar og reyndum að skýra út frábæran árangur á
söfnununni hérlendis. Við erum í fyrsta sæti í söfnuninni miðað
við söfnun á hvern Lionsfélaga. Reynt var að fá einhverja af
þjóðunum til að aðstoða okkur við að koma þeim hjálpartækjum sem
við eigum í gámum, en án árangurs. Notuð tæki eru ekki lengur
eftirsóttarverð hjá austantjaldslöndunum fyrrverandi. Samvinna er
í burðarliðnum við ákveðna aðilja sem geta e.t.v. nýtt
tækjakostinn erlendis.
Danir
sögðu frá smáverkefnum sínum stuðning við 23 mismunandi lönd þar
sem Lionsklúbbar gátu valið hvert þeirra þeir vildu styrkja.
Stuðningurinn var frá 20.000 kr.upp í 100.000 íslenskar krónur,
t.d.skólaborð, tölfur, kostun barna í skólagöngu, fóðrun
nautgripa, lýsing í skólstofur og kennaralaun.
Norðmenn vinna að næsta verkefni okkar innan NSR sem er heimili
fyrir börn með alvarlega sjúkdóma svo sem krabbamein. Svíar áætla
að reisa í samvinnu við Norðurlöndin skóla fyrir matreiðslunema og
veitingamenn í Rúmmeníu. Finnar vinna aðallega að
sjónverndarátakinu og luku sinni söfnun á Rauðri Fjöður 2006; þeir
söfnuðu alls 5 milljónum Evra sem fer til ýmissa líknarverkefna.
Höfuðverkefni
hérlendis
Þetta
eru þau verkefni sem ég tel gott að kynna sér ef Lionsklúbbar
vilja takast á við alþjóðlegt starf.
1.
Styðjum LCIF, Alþjóðlega hjálparsjóði Lions.
2.
Styðjum Sight First II verkefnið. Það verður betur kynnt í
lok, en það stendur yfir í 3 ár 2005 -2008.
3.
Taka þátt í Unglingaskiptum.
4.
Taka þátt í NSR verkefnum.
5.
Taka þátt í hjálparverkefnum í þróunarlöndum.
6.
Hefjum umræðu í klúbbnum okkar um hvað við Íslendingar
getum gert til aðstoðar fólki sem býr við sára neyð
7.
Þegar við erum erlendis skulum við leitast við að heimsækja
Lionsklúbba þar sem við dveljum. Upplýsingar um klúbba, nafn,
fundarstað og tíma má finna á Lionsskrifstofunni.
8.
Stofnum til vinaklúbbatengsla hérlendis eða erlendis.
Lionsfélagar, ef áhugi er fyrir hendi get ég aðstoðað ykkur
hvenær sem er , hafið samband.
Nollrir Lionsklúbbar hafa haft samband og margir sinna þegar
einhverju af þessum verkefnum.
Markmið mitt var að Lionsklúbbar settu sér markmið að sinna a.m.k.
tveimur þessara verkefna árlega.
Vert
er að geta þess að Lionsklúbburinn Eir studdi aftur Barnaheimili
okkar í Friazion. Það var NSR verkefni sem við stóðum að á árunum
1992 til 1993. Heimilið er staðsett um 25 km fyrir utan Moskvu.
Börnin fengu nú influensuförvörn í haust, 203 börn og starfsfólk.
Þetta er sannarlega mikilvæg forvörn og mikill fögnuður meðal
starfsfólks með stuðning okkar.
Sight
First II er stærsta alþjóðarverkefni okkar. Því líkur á næsta
starfsári. Hvað ætlum við að gera?
Munu
allir Lionsklúbbar hérlendis taka þátt það er takmark okkar.
Sameinumst í þessu átaki.
Campaign SightFirst:
Árangur og staðreyndir úr söfnun 1991-1994
·
Alls 4,7
milljónum manna með ský á auga (cataracta) fengu sjónina aftur
eftir skurðaðgerð.
·
Bætt sjón
hundruð milljóna manna.
·
Reistir 258
augnspítalar og læknastöðvar.
·
Reistar 300
augnlæknastofur sem afhentar voru með augnlækningatækjum.
·
Menntaðir
68.000 augnlæknar, augnhjúkrunarfræðingar og aðstoðarmenn.
Lionshreyfingin
og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
Mikil
og góð samvinna hefur verið milli Lionshreyfingarinnar og
Alþjóðaheilbrygðisstofnunarinnar á sviði sjónverndarmála. Árið
1990 var unnin áætlun á vegum þessara aðila sem gerði ráð fyrir að
blindum í heimunum fjölgaði úr 40 milljónum í 80 milljónir fyrir
árið 2015. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin þakkar það fyrst og fremst
SightFirst verkefni Lionshreyfingarinnar að árið 2005 hafði
blindum fækkað í 37 milljónir.
Nú
gera nýjar áætlanir alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar ráð fyrir að
blindum fjölgi úr 37 milljónum í 74 milljónir fyrir árið 2020
verði ekkert að gert. Sem ”Riddarar hinna blindu” geta
Lionsfélagar ekki látið það viðgangast. Lionsfélagar geta heldur
ekki horft upp á það aðgerðarlausir að á hverri mínútu verðu eitt
barn blint og einnig tveir fullorðnir.
Campaign
SightFirst II
Það er
ljóst að verulega er farið að ganga á það fé sem safnaðist í
Campaign SightFirst I, enda hefur ekki verið setið auðum höndum í
sjónverndarmálum. Með það að leiðarljósi og þá staðreynd að 80%
af allri blindu í heiminum má koma í veg fyrir og eða lækna, hefur
nýju átaki tekist til þessa dags að safna 87 milljónum dollara af
þeim 150 sem takmark okkar er.
Að
lokum þakka ég samstarf við Lionsklúbba og Lionsfélaga á þessu
starfsári.Ykkur óska ég gleðilegs sumars og árangurríku
Lionsstarfi á næsta ári.
Jón
Bjarni Þorsteinsson
Alþjóðasamskipti
Starfsárið 2005-2006
Hér
á eftir kemur samantekt um það sem gert hefur verið í þessum
málaflokki á starfsárinu.
Loft
er lævi blandað í heiminum. Ástandið er ógnvænlegt.Sjónvarpsvélar
umheimsins beinast að þessum atburðum og jafnt ungir sem aldnir
hræðast þá. Hvert er maðurinn að fara. Við Lionsfélagar eigum að
láta rödd okkar heyrast og leggja áherslu á einkunnarorð okkar.
Við leggjum lið og þörfina á að færa líknarhlutverk okkar til
allra heimshorna.
Höfuðverkefni.
Þetta eru þau verkefni sem ég tel gott að kynna sér ef
Lionsklúbbar vilja takast á við alþjóðlegt starf.
1.
Styðjum LCIF. Alþjóðlega Hjálparsjóðinn.
2.
Styðjum Sight First 2 verkefnið. Þetta verkefni verður
betur kynnt í lok samantekt minnar og stendur yfir í 3 ár 2005
-2008.
3.
Taka þátt í Unglingaskiptum.
4.
Taka þátt í NSR verkefnum.
5.
Taka þátt í hjálparverkefnum í þróunarlöndum.
6.
Hefjum umræðu í klúbbnum okkar um hvað við Íslendingar
getum gert til aðstoðar fólki sem býr við sára neyð
7.
Þegar við erum erlendis skulum við leitast við að heimsækja
Lionsklúbba á þeim stað er við dveljum á. Upplýsingar um klúbbana
nafn og fundarstað og tíma má finna á Lionsskrifstofunni.
8.
Stofnum til vinaklúbbatengsla hérlendis eða erlendis.
Lionsfélagar ef áhugi er fyrir hendi get ég aðstoðað ykkur hvenær
sem er. Hafið samband. Markmið mitt er að Lionsklúbbar setji
sér markmið að sinna a.m.k. 2 verkefnum árlega. Þetta er hluti af
grein sem ég skrifaði í Lionsblaðið okkar í haust. 2 Lionsklúbbar
höfðu samband og þar flutti ég erindi og fékk góðar undirtektir.
Von mín er að fleirri Lionsklúbbar fylgi í kjölfarið á næsta
starfsári.
Vert
er að geta þess að Lionsklúbburinn Eir studdi aftur
Barnaheimili okkar í Friasion sem stutt var af okkur og unnið sem
NSR verkefni á árunum 1992 til 1993. Það er staðsett um 25 km
fyrir utan Moskvu. Börnin fengu influensuförvörn í haust 188 alls
og starfsfólk. Þetta er sannarlega mikilvæg forvörn.
Sight
First 2 er stærsta alþjóðarverkefni okkar á næstu árum. Hvað ætlum
við að gera ?
SightFirst. 1. Árangur
og STAÐREYNDIR
.
·
Alls 4,7 milljónum manna
með ský á auga (cataracta) fengu sjónina aftur eftir skurðaðgerð.
·
Bætt sjón hundruð
milljóna manna.
·
Reistir 258 augnspítalar
og læknastöðvar.
·
Reistar 300
augnlæknastofur sem afhentar voru með augnlækningatækjum.
·
Menntaðir 68.000
augnlæknar, augnhjúkrunarfræðingar og aðstoðarmenn..
·
Hafið fyrsta alþjóðlega
átakið til að berjast gegn blindu hjá börnum, í samstarfi við WHO
Alþjóðaheilbrigðisstofnunina.
·
Reist 30 sjúkrahús fyrir
börn.
·
Styrkt 784
sjónverndarverkefni í 86 löndum, með 175 milljónum dollara
styrkjum til augnlækninga og rannsókna til að fyrirbyggja og lækna
blindu.
NÆSTA
SJÓNVERNDARVERKEFNI LIONSHREYFINGARINNAR: 2005 til
2008.
Sjónverndarátak II Sight
First II. Lions - Sjón fyrir alla er okkar næsta
sjónverndarátaksverkefni.
Staðreyndir.
·
Um það bil 37 milljónir
manna eru blindir í dag.
·
80% blindu er læknanleg
eða má fyrirbyggja.
·
Þess vegna mun
Alþjóðahjálpar-sjóður Lions (LCIF) og
·
1.4 milljónir Lionsfélaga
hefja nýtt heimsátak til að lækna blindu.
Hvernig
verður Sjónverndarátakið CSF II ?
Markmið
sjónverndarátaksins CSF II er að minnka verulega blindu sem hægt
er að fyrirbyggja og lækna, um allan heim, sérstaklega í
þróunarlöndunum, þar sem 90% af blindu er til staðar.
Markmið CSF II átaksins
er að safna að minnsta kosti 200 dollurum á hvern Lions- félaga
hérlendis.Alls 500 þúsund dollurum. Söfnunarátakið veitir
Melvin Jones viðurkenningu æöstu viðurkenningu LIONS.
Okkar von er að allir lionsklúbbar á Íslandi taki þátt í
söfnuninni.
Að lokum þakka ég gott samstarf við alþjóðasamskiptastjórana á
Norðurlöndum og íslenska Lionsfélaga án stuðnings ykkar væri
ekkert gert.
Gleðilegt sumar
Lionsfélagar með ósk um gott og farsælt Lionsstarf í framtíðinni.
Jón
Bjarni Þorsteinsson alþjóðasamskiptastjóri Lions.
Alþjóðasamskipti – nóv. 2005
Loft
er lævi blandað í heiminum. Ástandið er ógnvænlegt.Sjónvarpsvélar
umheimsins beinast að þessum atburðum og jafnt ungir sem aldnir
hræðast þá. Hvert er maðurinn að fara. Við Lionsfélagar eigum að
láta rödd okkar heyrast og leggja áherslu á einkunnarorð okkar.
Við leggjum lið og þörfina á að færa líknarhlutverk okkar til
allra heimshorna.
Höfuðverkefni
Þetta
eru þau verkefni sem ég tel gott að kynna sér ef Lionsklúbbar
vilja takast á við alþjóðlegt starf.
1.
Styðjum LCIF. Alþjóðlega Hjálparsjóðinn.
2.
Styðjum sight first 2 verkefnið. Þetta verkefni verður
betur kynnt í þessu blaði og stendur yfir í 3 ár 2005 -2008.
3.
Taka þátt í unglingaskiptum.
4.
Taka þátt í NSR verkefnum.
5.
Taka þátt í hjálparverkefnum í þróunarlöndum.
6.
Hefjum umræðu í klúbbnum okkar um hvað við Íslendingar
getum gert til aðstoðar fólki sem býr við sára neyð
7.
Þegar við erum erlendis skulum við leitast við að heimsækja
Lionsklúbba á þeim stað er við dveljum á. Upplýsingar um klúbbana
nafn og fundarstað og tíma má finna á Lionsskrifstofunni.
8.
Stofnum til vinaklúbbatengsla hérlendis eða erlendis.
Lionsfélagar ef áhugi er fyrir hendi get ég aðstoðað ykkur hvenær
sem er. Hafið samband. Markmið mitt er að Lionsklúbbar setji sér
markmið að sinna a.m.k. 2 verkefnum árlega.
Jón
Bjarni Þorsteinsson alþjóðasamskiptastjóri Lions