Nú er lokaspretturinn hafinn fyrir Lionsþingið

Nú er lokaspretturinn hafinn fyrir Lionsþingið

Kæra Lionsfólk.
Við minnum á skráningu á þingið á Álftanesi 10. og 11. maí.  Skráning fer fram hér á Lionsvefnum. Þar er hægt að sjá dagskrár og aðrar upplýsingar um þingið og þingdagana. 

Nú sem aldrei fyrr er áríðandi að mæta á skóla fyrir verðandi stjórnir, þar sem skýrslugerð hefur breyst, með komu hins nýja Lion Portal. Sendið varamenn ef þið komist ekki sjálf.

Við viljum sérstaklega minna á glæsilegar samkomur bæði kvöldin:

Kynningarkvöld föstudaginn 10. maí kl.20:00-23:00. 

Þar munum við hittast, gera okkur glaðan dag njóta tónlistar í umsjá “Didda Trúbó” og góðra veitinga.

Matseðill

  • Miniborgarar, Tortillarúllur með skinku og osti
  • Nachos, salsa og ídýfur, Grænmetisstönglar
  • Voga dýfur, Kínarúllur og súrsæt chilísósa
  • Minipizzur og pastasalat

Lionshátíð í Íþróttamiðstöðinni Álftanesi laugardaginn 11. maí kl.19:30-01:00

Þriggja rétta kvöldverður

  • Rækjukokteill
  • Fylltar kalkúnabringur
  • Tiramisu.
  • Dinnermúsik og veislustjórn í höndum Davíðs og Stefáns óperusöngvara og Helga píanóleikara 
  • Dansleikur þar sem stuðbandið “Allt í einu” mun leika fyrir dansi.

Hér gefst tækifæri til að hitta Lionsfólk af öllu landinu og víðar og er hægt að koma á þessar skemmtanir þrátt fyrir að vera ekki formlegur þingfulltrúi.

Á Lionsþingi er hægt að finna hinn sanna Lions-anda.

Þingstjórnin

Hörður Sigurjónsson  Þing- og Protocolstjóri 
Jón Pálmason  D109A
Sigríður Guðmundsdóttir D109B

Nánari upplýsingar veitir Hörður í síma 8209910